Ófeigur - 15.08.1951, Side 10

Ófeigur - 15.08.1951, Side 10
10 ÓFEIGUR vatni, skólinn, gistihúsið og búreksturinn, er eins og nýbyggð Islendinga í Vesturheimi, þar sem allt er kom- ið undir hörkudugnaði og ráðdeid við að ryðja skóg- inn, reisa bjálkabýlið, og síðan að breyta frumbýl- ingskofanum í nútíma heimili. Búskapurinn á Laugar- vatni er einstakur í sinni röð. Enginn annar skólamað- ur hefur lagt út í annað eins búskaparátak í hjáverk- um við önnur skyldustörf eins og Bjarni Bjarnason.’ Hann gat ekki horft á að góð bújörð lægi lítt notuð og allar sveitavörur skólans sóttar langt að. Það er raunar ekki aðalatriðið, að skólanemendur geti feng- ið heimafengin matvæh, þó að það sé að mörgu leyti hentugt. Hitt skiptir mestu, að hafa á skólastaðnum miklar og vel gerðar jarðræktarframkvæmdir og stórt og vel rekið bú. Eitt af því allra gagnlegasta, sem skóla- fólkið á Laugarvatni kynnist af verunni þar, er mynd- arbragurinn á öllum búverkum og alveg sérstaklega hreinlætið og hirðusemin við framleiðsluna. * Þau margháttuðu stórbú, sem hér hefur verið vikið að, eru skemmtilegar nýjungar í þjóðfélaginu, sólskins- blettir innan um eyðing gjaldeyrisins með krónufallinu og andvaraleysi þeirra, sem að óþörfu biðja erlenda dugnaðarmenn um gjafir til að geta haldið uppi meiri eyðslu en framleiðslan leyfir. Þeir athafnamenn, sem standa fyrir þessum framkvæmdum eru forverðir í þeirri sókn, sem koma skal, þegar þrotabú þeirra manna, sem hafa látið fimmtu herdeildina koma öðru lýðveld- inu á kné, verður gert upp. Þriðja lýðveldið rís upp úr neyð og hruni dýrtíðar og dauða krónunnar, þá er mikils um vert, að til séu þróttmiklir bændur, bæði þeir fáu, sem hér hafa verið nefndir, vegna sér- stakrar aðstöðu, og sá fjölmenni skari dugnaðar manna, sem sannað hafa með daglegum störfum lífs- mátt sinn í þjóðfélagi, sem hlýtir forystu manna, sem ekki þykir vansæmd að biðja framandi þjóð um fram- lög til að lifa meira eyðslulífi heldur en efnin leyfa. * Á miðjum síðast liðnum vetri gerðust þau tíðindi, að formaður Mblmanna, Ólafur Thors ritaði f jöruga með- mælagrein og birti Mbl mynd af ungum Hafnfirðingi sem var að flytjast, að líkindum til langdvalar, heim frá

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.