Ófeigur - 15.08.1951, Page 14

Ófeigur - 15.08.1951, Page 14
14 ÖFEIGUR menntun þeirra borgaraforkólfa, sem hafa látið kom- múnista leika bæði með menn og málefni íslendinga. Nú er heppilegur tími til að gera sér ljóst, hvert muni vera hið sanna hlutverk Benjamíns með þjóðinni. Kenning kommúnista um, að hann sé eftirlitsmaður lánadrottna landsins er vel frambærileg. Eftir því sem slíkar skuldir aukast og sú þróun er mjög ör í ár, kem- ur að því, að hér verður einhver eftirlitsmaður. Viðreisn landsins getur á vissan hátt verið undir því komin að ala þjóðina upp til að vera sjálfbjarga. Mér sýnist ekkert lakara, að Benjamín eða einhver annar röskur Islendingur gegni þessu starfi, meðan þess er þörf frem- ur en útlendur maður. Hinn mikli kunningskapur Benjamíns við íslenzka og erlenda bolsivika er kostur á eftirlitsmanni því að frá fimmtu herdeildinni munu framvegis, eins og hingað til, stafa flestar úrfelliblik- urnar. I fyrra stríðinu var hér enskur maður Mr. Cable, • mjög laginn og áhrifamikill maður í eftirliti stórveldis með smáþjóð. Önnur skýring er til nefnilega að Benjamín sé yfirnáttúrleg persóna með æðri sjónarhring. Móti því mælir hið fyrsta spádómsorð hans um áhrifaleysi gengisfellingarinnar á lífskjör almennings. Þar sem sú kenning reyndist alröng, verður erfitt að halda Benja- mín á Delfi-línunni. Þá er eftir þriðja og líklegasta skýringin, að Benjamín sé ekki framfærslufulltrúi Bandaríkjanna hér á landi. Hann sé ekki heldur yfir- náttúrleg manneskja. Hann sé efnilegur ungur mað- ur, sem hefir fallið fyrir fimmtuherdeildinni en rétt sig við líkt og Valtýr Stefánsson og fleiri góðir borg- arar. Að íslenzka stjórnin ætli sér hinsvegar um stund að umgangast Benjamín líkt og Aðalbjörg Kristnamurta og hafa af honum trúarlegan stuðning bæði hér heima og í Ameríku. Ýmislegt sem stjórnin þarf með, svo sem gengisfellingu, þegar átta ára stórfjandskapur tveggja liðsodda endaði í stórvináttu og bræðralagi sömu forkólfa gerir óhjákvæmilegt gagnvart „almúgan- um“ að fá á slíku athæfi vísindalegan helgiblæ. Ef Benjamín getur aðstoðað hið íslenzka mannfélag til að trúa á gengisfall, bátagjaldeyri, nýjar kauphækkanir og nýjar krónulækkanir samhliða því að Bandaríkin veita íslenzka mannfélaginu rausnarlegan harðæris-

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.