Ófeigur - 15.08.1951, Page 30

Ófeigur - 15.08.1951, Page 30
30 ÖFEIGUR litlu leyti. Undir vor þótti stórdómaranum hæfa að fara skyndiherferð til Eyja með liðsafla sinn og beitti nú sömu herkænsku og Mac Arthur er hann flutti víkingasveitir sjóleiðis norður fyrir herlínu bolsivika og lét þær gera strandhögg þar sem þeirra var síst von. Síðan lét hershöfðinginn víkingana koma heim sömu leið með herfangið. Stóð þessi herferð stórdóm- ns í fimm daga. Hann kallaði Helga kaupmann xyrir rétt og var dagsverkið álíka langt og við ame- ríska uppskeruvinnu þegar byrjað er í dögun og haldið áfram þar til kvöldsett er orðið. Lögðu endurskoð- endurnir fram hundrað blöð, kvaðratmynduð, einn meter á hlið. Var reiknað út í Eyjum að yfirborð þess- ara skjala mundi hafa hulið stærstu kálgarða í kaup- staðnum, ef haglega hefði verið úr þeim breitt. Helgi var nú spurður um allt smátt og stórt um útgjöld heimilisins, kúabúsins, verzlananna, gistihússins og út- vegsins, svo að nákvæmari yfirheyrsla getur ekki orðið á dómsdegi þó að öll smáatvik mannlegs lífs kunni að vera bókfærð vegna þeirra reikningsskila. Helgi hafði sjálfur fært allar bækurnar og virtist kunna skil á öllu jafnvel hinum minnstu færslum. Hafði einn af vinum stjórnarinnar í Mbl.flokknum látið sér þau orð um munn fara, að Helgi mundi seint unninn á bókhaldi sínu. Langoftast voru spurningarnar um hina hversdags- legustu hluti, svo sem um kaffi og sykur í heimilis- þarfir Helga eða venjulegan tilkostnað við verzlun og útveg hans. Tveim sinnum brá fyrir nokkurri vonar- heiðríkju á yfirbragði endurskoðendanna. Önnur spurningin var um 150 ensk pund fyrir „gullvörur“ en hitt lág upphæð fyrir vöru með torkennilegu nafni. Mátti telja víst að fjármálaráðherra mundi þykja fengur ef ríkissjóði áskotnaðist margfaldur tollur af gullvöru sem flutt hefði verið inn í óleyfi. En þegar betur var að gáð var ekki um að ræða gullvöru heldur „gaddavír“ og höfðu endurskoðendur mislesið orðið. Hitt saknæmið var um júgursmyrsl fyrir kúabú Helga en það er stórt og líftaug barna í Eyjum því að annars mundi þar háskalegur mjólkurskortur. Þótti stórdóm- aranum miður, að endurskoðendur hans skyldu ekki vera betur læsir heldur en raun bar vitni um. Þegar vorsóknin stéð sem hæst fréttu þjónar rétt- vísinnar, sem voru að verki í Eyjum, að stutt skýrsla

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.