Ófeigur - 15.08.1951, Blaðsíða 33
ÖFEIGUR
33
um í Árbæjarmálinu, þá flýtti hann sér ekki að fram-
kvæma féránsdóminn og ekki heldur að tyfta Gunnar
fyrir mjög ógætileg orð um undirmenn ráðherra, sem
herjuðu á skip Gunnars í landhelginni. Enn fremur
líta sannir Mblmenn í Eyjum svo á, að þegar Jóhann
þriðji jarl í Eyjum fékk pappíra sína í tunnu en ekki
með póstinum, þá hefði að vísu mátt segja að aðferð-
in væri óvenjuleg. En réttvísin leit svo á að tunna værí
að mörgu leyti öruggari skjalageymsla heldur en póst-
pokar. Vitnuðu þeir í það fordæmi, að Matthías Joch-
umson fékk sínar fyrstu bókmenntasendingar í belgj-
um að Skógum við Þorskafjörð, beinlínis til að forða
bókunum frá að blotna í meðförum póstanna. Svo
fjærri fór því að nokkurs kala eða tortryggni gætti
gagnvart Jóhanni jarli út af þessum umbúðum að
hann var, undir eins og vitneskja fékkst um þessa tækni,
gerður að fjármálaráðherra og gætti þess starfs með
heiðri og sóma í fyrstu stjórn Alþýðuflokksins. Þessar
og þvílíkar röksemdir bera greindir íhaldsmenn í Eyj-
um fram til skýringar á aðstöðu dómsmálaráðherra.
Þætti þeim raunar bezt við eiga að Helgi Benediktsson
tæki við fjármálastjórninni þegar Eysteini endast ekki
lengur sínir ráðherradagar. Enn er ein ástæða bor-
in fram í Eyjum til sönnunar þvi að Eysteinn standi
að hemaði stórdómarans og það er fjármálahliðin.
Allur hernaður er dýr og það er vitað, að dómsmála-
ráðherra hefir ekki undir sínum höndum þá sjóði sem
með þarf tii að standast útgjöldin við þann liðsafla,
sem stöðugt er beitt við innrásir til Vestmannaeyja.
Láta Vestmanneyingar skammt milli stórra högga
gagnvart Eysteini um hin kostnaðarsama ófrið hans.
Vilja þeir að jarldæmi þeirra sé ekki haldið eins og ný
Norðurkórea heldur að blóm friðarins megi jafnan
dafna þar. Segja Eyjarmenn að þeir hafi jafnan verið
góðir jarlsmenn. Þeir segjast hafa beðið fyrir Gunnari
þegar hann beið ósigur hér á jörðinni út af Árbæjar-
málinu. Þeir segjast hafa kosið Jóhann þingfulltrúa og
ráðherra eftir að féndur hans tóku illa upp póstflutn-
ing hans í tunnunni. Þeir segja ennfremur að fyrir
þeirra tilverknað sé Helgi kaupmaður nú æðsti maður
í bæjarfélaginu, forseti bæjarstjórnar og að honum
farnist betur að búa með bolsivikum heldur en hin-
um æfðu stjórnmálamönnum á meginlandinu, sem bera