Orð og tunga - 08.07.2019, Page 135
Tinna Frímann Jökulsdóttir og fleiri: Nýyrði tengd tölvum 123
6 Niðurlag
Í þessari grein er gefið yfirlit yfir niðurstöður úr nýlegri rannsókn
á viðhorfum gagnvart íslenskum nýyrðum og aðkomuorðum og
notkun á nokkrum slíkum orðapörum sem tengjast tölvum og tækni.
Hvað viðhorf varðar kom í ljós að mikill meirihluti þátttakenda styður
myndun íslenskra nýyrða og tóku fleiri sterka afstöðu með þeim
en veika. Slíkan samhljóm mátti finna í öllum aldurshópum þó að
hlutfallið lækki aðeins með lækkandi aldri. Einna áhugaverðast við
samanburð þessara niðurstaðna við áðurnefnda umfj öllun Kristjáns
Árnasonar (2005) og Hönnu Óladótt ur (2007) er sú staðreynd að
þessar nýju niðurstöður sýna jafnvel enn jákvæðara viðhorf gagnvart
nýyrðamyndun en eldri rannsóknir. Eins og Kristján nefnir í grein
sinni mætt i velta því fyrir sér hvort aukin alþjóðavæðing geti haft
þau áhrif að íslenska skipti nú minna máli í sjálfsmynd Íslendinga en
áður. Niðurstöðurnar sem Kristján fj allaði um bentu ekki til þess að
svo væri raunin á meðal almennings en nú, tæpum tveimur áratugum
síðar, ætti að vera farið að bera á slíkum áhrifum séu þau væntanleg.
Svo virðist þó ekki vera.
Þegar kemur að notkun nokkurra íslenskra nýyrða er sam hljóm ur-
inn þó ekki alveg jafn skýr. Greina má augljósan mun á því hvort þátt-
takendur segjast nota íslenska nýyrðið eða aðkomuorð eft ir því um
hvaða fyrirbæri/orðapar er að ræða og af því má draga þá ályktun að
uppruni orðanna, þ.e.a.s. hvort orðið sé íslenskt nýyrði eða enskt að
uppruna, liggi ekki til grundvallar orðavali. Þegar litið er á niðurstöður
án aldursfl okkunar kemur í ljós að yfi rleitt tekur meira en helmingur
þátt takenda, sem velja íslensku hverju sinni, sterka afstöðu með ís-
lensku en því er öfugt farið með aðkomuorðin þar sem þeir sem þau
velja virðast þá líklegri til að taka veika afstöðu. Mögulegt er að tengja
þett a við einhvers konar togstreitu milli þess sem fólki, sem kýs frekar
aðkomuorð, fi nnst að það eigi að gera, þ.e.a.s. nota íslensk nýyrði og
þess sem það raunverulega gerir.
Þar sem uppruni orðanna virðist ekki liggja til grundvallar vali
fólks var gerð tilraun til að leita skýringa í öðrum þáttum. Myndun
nýyrðanna virðist ekki hafa merkjanleg áhrif en þó þarf líklega
fl eiri en ellefu orðapör til að leggja mat á það. Niðurstöður Kristjáns
og Hönnu benda m.a. til þess að aldur nýyrðanna og það hversu
algeng þau eru skipti máli sem og aldur málnotenda og virðist það í
einhverjum tilvikum í samræmi við þær niðurstöður sem eru birtar
hér. Aðrar skýringar voru reifaðar í tengslum við einstaka dæmi og
tunga_21.indb 123 19.6.2019 16:56:11