Skessuhorn - 20.12.2006, Qupperneq 4
4
ool >i oii/i M'jyAau^r/aiM
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
Vilja stefiia
olíufélögunum
STYKKISHÓLMUR: Bæjar-
stjóm Stykkishólmsbæjar hefar
vísað til bæjarráðs tillögu minni-
hluta bæjarstjómar rnn að bæj-
arfélagið kreíji olíufélögin um
bætur „vegna samráðs þeirra
undanfarin ár,“ eins og segir í
tillögunni. Tillagan kom ffam
við umræður um fjárhagsáætlun
sveitarfélagsins fyrir árið 2007.
„Stykkishólmur er eitt af þeim
bæjarfélögum sem nefhd em í
skýrslu um samráðsmál olíufé-
laganna og á því rétt á bótum
samkvæmt dómi í máh Reykja-
víkurborgar gegn olíufélögun-
um. Við leggjum til að framlag
til Ljósmyndasafns Stykkis-
hólms verði 2,5 milljónir og fá-
ist skaðabætur frá olíufélögun-
um renni það einnig til Ljós-
myndasafhs og Amtsbókasafiis,“
sagði í tillögunni. -hj
Sldpulagsvinna
vegna
golfvallarhótels
AKRANES: Bæjarráð Akraness
hefur heimilað að hafin verði
vinna við breytingu á aðalskipu-
lagi og deihskipulagi í bæjarfé-
laginu vegna fyrirhugaðrar
byggingar hótels á Garðavelli,
golfvelh Golfklúbbins Leynis á
Akranesi. Eins og ffam kom f
fféttum Skessuhoms í haust era
hugmyndir uppi um byggingu
sex hæða hótels við völlinn.
Óskað var umsagnar skipulags-
og byggingamefndar bæjarins
um hugmyndirnar og taldi
nefndin bygginguna fyllilega
koma til greina á þessum stað en
benti þó á að það hljóti að fara
eftir því hvernig slíkar hug-
myndir séu settar ffam. Það
vom þrír einstaklingar, Guðjón
Theódórsson, Guðmundur Eg-
ill Ragnarsson og Ragnar Már
Ragnarsson, sem óskuðu heim-
iidar bæjarráðs til að hefja vinnu
við breytingar skipulags. -hj
Mikm
samdráttur afla
VESTURLAND: í nóvember
var landað 3.501 tonni af sjáv-
arfangi í höfhum á Vesturlandi.
I sama mánuði í fyrra var land-
að 6.158 tonnum og er sam-
drátturinn því rúm 43 % á milli
ára. Samdráttur er á milli ára í
öllum helstu fisktegunum og
má þar nefnda að í mánuðinum
var landað 1.185 tonnum af
þorski en á sama tíma í fyrra var
landað 2.602 tonnum. Sam-
drátturinn er því tæp 55%.
Fyrstu ellefu mánuði ársins var
landað 84.038 tonnum af sjáv-
arfangi á Vesturlandi en á sama
tíma var landað 93.837 tonn-
um. Samdrátturinn er því rúm
10%. Af einstökum tegundum
má nefna að landað var 9.929
tonnum af loðnu í ár en 31.220
tonnum í fyrra. Þá var landað
25.672 tonnum af þorski en
29.600 tonnum á sama tíma í
fyrra.
Breiðafj arðamefiid vill
rannsaka fækkun sjófugla
Breiðafjarðar-
nefnd hefur óskað
eftir fjármagni ffá
umhverfisráðu-
neytinu svo hægt
verði að rannsaka
ástand sjófugla-
stofna á Breiða-
firði og mögulegar
ástæður fyrir
fækkun í þeim.
Nefndin er lögum
samkvæmt um-
hverfisráðherra til
ráðgjafar um allt
er lýtur að ffam-
kvæmd laga um
vernd Breiðafjarð-
ar og á vettvangi
hennar hefur
fækkun sjófugla
verið til umræðu
og var samþykkti
nefndin á dögun-
um að vekja
athygli umhverfisráðherra á þess-
ari fækkun.
I bréfi til ráðherra segir að mik-
il fuglamergð sé eitt af sérkennum
Breiðafjarðar en á síðustu áram
hafi borið á fækkun sjófugla á
svæðinu. Þá kemur fram að heima-
mönnum og sérfræðingum beri
saman um að undanfarin ár, sér-
staklega árin 2005 og 2006, hafi
verið mörgum sjófuglategundum á
svæðinu sérstaklega óhagstæð og
að fækkað hafi í stofnum ýmissa
tegunda, svo sem toppskarfs, ritu,
teistu, kríu og sumra máfa. Einnig
telja sumir heimamenn að stað-
bundin fækkun hafi orðið á díla-
skarfi.
Þá bendir nefndin á að málið
hafi verið rætt á Alþingi og í nor-
rænu samstarfi hafi verið bent á
nauðsyn þess að kanna fækkun í
stofnum sjófugla á Norður-Atl-
antshafi.
HJ
Skólanefiid vill loka öflum
leikskólum á sama tfina
Skólanefhd Akraness hefur sam-
þykkt að mæla með því að sumar-
lokanir allra þriggja leikskóla bæj-
arfélagsins verði á sama tíma á
næsta ári tvær vikur í kringum
verslvmarmannahelgina. A undan-
förnum ámm hafa leikskólarnir
verið lokaðir tvær vikur á sumri en
ekki á sama tíma. A fundi skóla-
nefhdar kom fram að leikskóla-
stjórar telji að æskilegasta fyrir-
komulagið sé að leikskólarnir loki
allir á sama tíma tvær vikur
aðliggjandi að verslunarmanna-
helgi. „A þeim tíma em flestir for-
eldrar í sumarleyfi og skipulagið
verður auðveldara frá ári til árs ef
alltaf er um sama tímabil að ræða,“
segir orðrétt í bókun nefndarinnar.
Þá samþykkti skólanefnd að
styðja ósk leikskólastjóra um að
leikskólarnir loki einn dag á ári „til
að sinna fræðslu starfsfólks," eins
og segir í ósk leikskólastjóra.
Nefndin kynnti sér málið í öðr-
um sveitarfélögum og bókaði að
starfsfólk hefði alla jafna einn dag
á ári sem ætlaður er til námskeiða-
halds auk tveggja skipulagsdaga.
„Skólanefhd styður að gerð verði
tilraun með að heimila leikskólum
að hafa þrjá skipulagsdaga á kom-
andi ári 2007 og hann tímasettur á
skipulagsdegi gmnnskólanna.
Málið kom til afgreiðslu bæjar-
ráðs sem ákvað að kalla sviðsstjóra
fræðslusviðs til viðræðna um mál-
ið.
HJ
Skýr stefiia Borgarbyggðar við
afgreiðslu lj árhagsáætlunar
Þegar fjárhagsáætlun Borgar-
byggðar og stofnana hennar fyrir
árið 2007 var gerð sameinuðust
meiri- og minnihluti bæjarstjómar
um bókun í þremur liðum þar sem
ástæða þótti til að vilji sveitarstjórn-
ar kæmi skýrt ffam. Var það gert
þar sem ekki vom forsendur til að
meta hversu mikið fjármagn þurfti í
þau verkefni sem þar em nefnd. I
fyrsta lagi segir að sveitarstjórn
mtmi vinna í samstarfi við Dvalar-
heimih aldraðra í Borgamesi að því
að opna dagvistun fyrir aldraða í
húsnæði Dvalarheimilisins sem
fyrst á árinu 2007.
f öðra lagi að sveitarstjórn muni
vinna í samstarfi við stjórn Mennta-
skóla Borgarfjarðar að því að
byggja upp farsælt og gefandi
félagslíf við skólann og í þriðja lagi
mun sveitarstjóm vinna í samstarfi
við stjóm skólans að því að byggja
upp skólaakstur úr dreifbýli. IIJ
Sveitarstjóm Hvalíj arðarsveitar
vill stöðva efiiistöku í Hvalfirði
Sveitarstjóm Hvalfjarðarsveitar
hefur óskað eftir því við Orkustofn-
tm að hún sjái til þess að efnistaka
Björgunar ehf. í Hvalfirði verði
stöðvuð nú þegar vegna umhverfis-
spjalla. Vísar sveitarstjóm þar til
bráðabirgðaleyfis sem Iðnaðarráðu-
neytið veitti Björgun fyrir nokkra til
efhistökunnar þar sem segir að
Orkustofnun, sem eftirhtsaðih með
ffamkvæmd leyfisins skuh hvenær
sem er heimilt að stöðva nýtingu á
námum komi fram gransemdir um
að vinnslan valdi umhverfisskaða.
Skuh í slíkum tilfellum fara ffam at-
hugun á því hvort grunsemdir eigi
við rök að styðjast.
Forsaga málsins er sú starfsleyfi
Björgunar til efnisöfiunar rann út í
júní árið 2005. Fyrir skömmu ákvað
umhverfisráðherra að nýtt starfsleyfi
skuh háð umhverfismati. í ffamhald-
inu var fyrirtækinu veitt starfsleyfi til
bráðabirgða ffam til ársins 2008.
Einar Om Thorlacius sveitarstjóri
segir í samtali við Skessuhom að
uppdæling malarefna hafi verið við-
stöðulaus í tæp tíu ár. Það sé mat
heimamanna að malartakan hafi
þegar valdið miklum náttúraspjöU-
um í sjó og við strendur fjarðarins.
Fram hafi komið í viðræðum við þá
aðila sem vinna munu að mnhverfis-
matinu að það taki mjög langan
tíma. Því telji sveitarstjóm það ekki
réttlætanlegt að malartaka sé leyfð á
meðan og því hafi nú verið óskað eft-
ir því að hún verði stöðvuð nú þegar.
HJ
Lækka og hækka
gjaldskrár
FAXAFLÓAHAFNIR: Stjórn
Faxaflóahafiia sf. hefur ákveðið
að hækka almenna gjaldskrá
fyrirtækisins um 5% ffá ára-
mótum en jafhframt var ákveð-
ið að lækka aflagjald, sem lagt
er á aflaverðmæti landaðs afla,
úr 1,3% í 1,27%. Þá var einnig
ákveðið að lækka gjald vegna
siglingavemdar. I tilkynningu
frá Faxaflóahöfnum segir að
aflagjald í höfiium fyrirtækisins
sé sennilega það lægsta sem
þekkist hjá höfiium. Á áram
áður var aflagjald það sama í
höfnum landsins en fyrir
nokkrum áram var því fyrir-
komulagi breytt og er gjaldið
því ákveðið hjá hverri höfn fyr-
ir sig. -hj
Skaðabætur
vegna
Höfðasels 5
AKRANES: Bæjarráð Akraness
hefur samþykkt fallist á að
greiða lóðarhafa lóðarinnar nr.
5 við Höfðasel á Akranesi 4,2
milljónir króna í skaðabætur.
Lóðarhafinn hafði stefnt bæjar-
félaginu og krafist skaðabóta að
fjárhæð tæpar 6,7 milljónir
króna auk dráttarvaxta og máls-
kostnaðar. Lögmaður bæjarfé-
lagsins mælti með dómssátt í
málinu og var á það fallist. For-
saga málsins er sú að lóðarhaf-
inn, Júlíus Ólafsson, fékk lóð-
inni úthlutað á sínum tíma og
skyldi hún byggingarhæf í maí
2002. Vegna hárrar grann-
vatnsstöðu lóðarinnar tókst
ekki að ganga ffá byggingu á
lóðinni fyrr en í janúar 2005
eftir að bæjarfélagið hafði grip-
ið til ráðstafana til þess að
lækka vatnsstöðuna. Lóðarhaf-
inn krafðist bóta vegna tapaðra
leigutekna og afnotamissis af
húsnæðinu. Bótafjárhæðin
byggðist á mati dómkvadds
matsmanns. -hj
Framboðslisti
VG tilbúinn um
miðjan janúar
NV-KJÖRDÆMI: Uppstill-
ingarnefiid Vinstri hreyfingar-
innar-græns ffamboðs í Norð-
vesturkjördæmi stefnir að því
að kynna tillögu sína að upp-
stillingu ffamboðslista flokksins
í kjördæminu um miðjan janú-
ar. Björg Gunnarsdóttir for-
maður nefndarinnar segir
nefndina hafa starfað að upp-
stillingunni á undanförnum
dögum og hafi starf nefndar-
innar gengið vel. Jón Bjarnason
þingmaður flokksins í kjör-
dæminu hefur lýst yfir áhuga á
að leiða lista flokksins áfrarn.
Fleiri hafa ekki boðið sig opin-
berlega ffam til setu á listanum.
Samkvæmt skoðanakönnunum
að undanförnu hefur flokkur-
inn aukið mjög fylgi sitt og gæti
átt möguleika á fá tvo menn
kjörna.
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Sími: 433 5500
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200
sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950.
Verð í lausasölu er 400 kr.
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Birna G Konráðsdóttir 864-5404 birna@skessuhorn.is
Kolbrá Höskuldsdóttir 868-2203 kolla@skessuhorn.is
Augl. og,dreifing:Hekla Gunnarsd. 821 5669 hekla@skessuhorn.is
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is