Skessuhorn - 20.12.2006, Síða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
^kUstnu^L
Frá undirritun samningsins. Frá vinstri eru Guðmundur Kr. Unnsteinsson, Eggert Kjartansson, Páll Brynjarsson og Kristinn Jónasson.
Þrjú sveitarfélög sameinast
um háhraðanet
Sjóvá bauð lægst
í tryggingar
Borgarbyggðar
Þrjú sveitarfélög skrifuðu sl.
laugardag vuidir samstarfssamning
við Hringiðuna um örbylgjuhá-
hraðanet á sunnanvert Snæfellsnes.
Sveitarfélögin sem að verkefninu
koma eru Snæfellsbær, Eyja- og
Miklaholtshreppur og Borgar-
byggð. Það voru Kristinn Jónasson
bæjarstjóri Snæfellsbæjar, Eggert
Kjartansson oddviti Eyja- og
Miklaholtshrepps og Páll Brynjars-
son sveitarstjóri Borgarbyggðar
sem undirrituðu samning við Guð-
mund Kr. Unnsteinsson ffá Hring-
iðunni. Við þetta tækifæri þakkaði
Páll Brynjarsson sveitarstjóri Borg-
arbyggðar Hauki Þórðarsyni Lýsu-
hóli og Eggerti Kjartanssyni á Hof-
stöðum fyrir gott starf við að koma
samningnum á.
Að sögn Guðmundar Kr. Unn-
steinssonar hjá Hringiðunni verður
kerfið líklega sett upp í janúar til
mars og tenging komin á í júlí.
Svæðið sem um ræðir er frá Helln-
inn að Hítará. Aðrir hlutar Borgar-
byggðar verða að bíða fyrst um
sinn.
Þeir félagar skýrðu frá því að
sveitarfélögin hafa lengi unnið að
því að koma þessum samningi á
koppinn. I upphafi var talað við
Emax sem hefur verið með svipaða
þjónustu víða á Vesturlandi. Þeir
reyndust ekki geta boðið sambæri-
leg gæði og hraða og er í samn-
ingnum við Hringiðuna. Ahugi var
því ekki á frekari viðræðum við þá,
„enda reynslan af þeirra þjónustu
ekki eins og vænst var,“ sagði Páll S
Brynjarsson í samtali við Skessu-
hom. „Krafan í samfélaginu í dag
er að allir hafi aðgang að góðum og
hröðum tengingum. Ferðaþjón-
ustuaðilar finna mjög fyrir því ef
samband þeirra við umheiminn, er
lélegt, í þessum málum,“ sagði Páll
ennfremur.
*
Astandið nú
ekki viðunandi
Hvert sveitarfélag leggur tvær
milljónir til verkefhisins og einnig
koma að því fyrirtæki á svæðinu.
Stofnkostnaður með öllum búnaði,
netföngum og fleim verður um
fimmtán þúsund fyrir utan virðis-
auka og mánaðaráskriftin svipuð
eins og í ADSL tenginu, um 4.900
krónur.
Kristinn Jónasson bæjarstjóri
Snæfellsbæjar sagði ástand þessara
mála alls ekki viðundandi á lands-
byggðinni. „Það er ekki hægt að
bera á borð fyrir fólk það sem
landsbyggðinni stendur til boða í
dag. Þótt ljósleiðarinn liggi í gegn-
um sveitarfélögin virðist ekki vera
hægt að fá aðgang að honum. Því er
enginn áhugi á því að ræða við Sím-
ann. ISDN, sem átti að leysa allan
vanda, gerir lítið í dag. Það er dýrt
fyrir sveitarfélagið að nota þann
búnað og við höfum talað um að
við komum til með að spara það á
tveimur ámm sem við leggjum í
þessa framkvæmd.“ I sama streng
tók Páll Brynjarsson sveitarstjóri
Borgarbyggðar.
,JVfiklar kröfur verða gerðar um
gæði,“ segir Guðmundur Kr. Unn-
steinsson frá Hringiðunni. „Við
erum að bíða eftir svari frá Póst- og
fjarskiptastofhuninni um að fá að
nota nýtt tíðnisvið sem lítið hefur
verið notað hér á landi áður. Það
veltur á þeim hvort slíkt verður
gerlegt. Við höfum fengið það stað-
fest utan úr heimi að þetta tíðnisvið
verður notað í ffamtíðinni í meðal
annars tölvugeiranum. Samningur-
inn sýnir þær framfarir sem hafa
orðið á síðustu tveimur árum.“
Fjórmenningarnir vom sammála
um að ef allt færi eins og stefnt væri
að, myndu aðrir koma á eftir. Ef
leyfí fæst fyrir hinu nýja tíðnisviði
verður tnn byltingu að ræða fyrir
landsbyggðina.
BGK
Sveitarstjórn Borgarbyggðar
hefur samþykkt að ganga til samn-
inga við Sjóvá um tryggingar
sveitarfélagsins. Akveðið var fyrir
skömmu að bjóða tryggingarnar út
og skiluðu þrjú fyrirtæki inn til-
boðum. Auk Sjóvár buðu Trygg-
ingamiðstöðin og Vátryggingafé-
lag Islands í viðskiptin. Þrjú þeirra
sveitarfélaga sem sameinuðust í
vor í nýrri Borgarbyggð vom með
tryggingar sínar hjá Vátrygginga-
félagi Islands en Borgarbyggð hin
eldri var með sínar tryggingar hjá
Sjóvá. Iðgjöld sveitarfélagsins
vom fyrir útboðið rúmar níu millj-
Húsakostur Náttúmfræðistofh-
trnar og Náttúmgripasafhsins hafa
verið til umræðu undanfarið, sein-
ast í vikunni sem leið vegna
vamsleka í geymslu þar sem síðasti
geirfuglinn var hýstur. Nú hefur
byggðaráð Borgarbyggðar gefið
það út að sveitarfélagið Borgar-
byggð býður Náttúrffæðistofhun
allt að 100 milljóna króna stuðning
ónir króna á ári.
Að sögn Eiríks Olafssonar, bæj-
arritara Borgarbyggðar vora til-
boð fyrirtækjanna með mismun-
andi útfærslum en miðað við sex
ára samningstíma vom tilboðin
þannig að Sjóvá bauð rúmar 6,7
milljónir króna á ári, Trygginga-
miðstöðin bauð tæpar 6,9 milljón-
ir króna og Vátryggingafélag Is-
lands bauð rúmar 7,4 milljónir
króna. Eiríkur segir ekki endan-
lega ljóst hversu mikið sparast við
útboðið en fljótt á litið geti það
verið um 15-20%.
til að greiða fyrir því að leysa megi
húsnæðisvanda stofnunarinnar og
Náttúrugripasafhsins. Skilyrðið er
að stofnunin verði flutt að Hvann-
eyri en þar em uppi hugmyndir um
að reisa veglegt landbúnaðarsafn.
Samkvæmt heimildum Skessu-
horns er vilji í ríkisstjórn um að
taka málið til alvarlegrar skoðunar.
MM
HJ
t' . > 'kihí. 4 . ‘ ”H|| ;*,Vj
Náttúrugripasafti
boðið velkomið til
Hvanneyrar
Meirihluti bæjarstjómar Akraness
klofiiar í afgreiðslu bankatilboðs
Meirihluti bæjarstjórnar Akra-
ness klofnaði þegar atkvæði vom
greidd um hvaða tilboði skyldi tek-
ið í bankaviðskipti bæjarfélagsins.
Atkvæði minnihluta bæjarstjórnar
þurfti til að ákveða hvaða tilboði
yrði tekið. Tillaga um að vísa mál-
inu til bæjarráðs var borin upp á
fundinum en hún var ekki borin
undir atkvæði og er færð til bókar.
Bæjarfulltrúi gerir athugasemd við
málsmeðferðina en segir málið
ekki hafa áhrif á meirihlutasam-
starfið í framtíðinni.
Eins og fram hefur komið í
fréttum Skessuhorns ákvað Akra-
neskaupstaður fyrir nokkru að
segja upp bankaviðskiptum við
Landsbanka Islands og bjóða við-
skiptin út. Tilboð bámst frá Glitni
hf., KB banka hfí, Landsbanka Is-
lands hf. og Sparisjóðnum á Akra-
nesi. Starfshópur sem skipaður var
Andrési Olafssyni fjármálastjóra
bæjarins, Jóni Pálma Pálssyni bæj-
arritara og Jóhanni Þórðarsyni
endurskoðanda mat tilboðin og
komst að þeirri samhljóða niður-
stöðu að tilboð Landsbankans væri
hagstæðast. Þegar álit starfshóps-
ins var lagt fyrir bæjarráð þann 7.
desember lagði Sveinn Kristinsson
bæjarráðsmaður minnihlutans til
að gengið yrði til samninga við
Landsbankann en sú tillaga var
felld. Meirihluti bæjarráðs taldi
eðlilegt að kynna niðurstöðu
starfshópsins fyrir þeim banka-
stofnunum sem gerðu tilboð áður
en formleg ákvörðun yrði tekin um
framhaldið.
A fundi bæjarstjórnar í síðustu
viku var málið síðan tekið fyrir og
lagði Gunnar Sigurðsson forseti
bæjarstjórnar fram tillögu um að
tilboði Landsbankans yrði tekið.
Sæmundur Víglundsson bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins lagði fram
tillögu um að málinu yrði vísað til
bæjarráðs að nýju til frekari athug-
unar. Meirihluti bæjarstjórnar var
því ekki samstíga í málinu og ljóst
að til þess að afgreiða málið þyrfti
atkvæði minnihlutans. Að lokinni
umræðu um málið var tillaga Sæ-
mundar hinsvegar ekki borin upp
heldur tillaga forseta og var hún
samþykkt með átta atkvæðum gegn
einu atkvæði Sæmundar.
I samtali við Skessuhorn segir
Sæmundur að hann hafi áður en
málið kom til afgreiðslu bæjar-
stjórnar haft samband við alla þá
banka er buðu í viðskiptin. For-
svarsmenn þriggja banka hefðu
gert talsverðar athugasemdir við
þær forsendur sem starfshópurinn
hefði gefið sér við yfirferð tilboð-
anna og því orkaði niðurstaða
starfshópsins að þeirra mati tví-
mælis. Engar athugasemdir hefðu
hinsvegar verið uppi frá Lands-
bankanum. „Mér þótti því rétt að
fara betur yfir málið til þess að fá
úr því skorið hvort sjónarmið allra
bjóðenda hefðu komið fram, sem
að mínu áliti er fullkomnlega eðli-
legt þegar verk og eða viðskipti era
boðin út. Því miður var ekki fallist
á mín sjónarmið," segir Sæmund-
ur. Aðspurður hvort málið hafi
einhver eftirköst í samstaffi meiri-
hlutans segir hann svo ekki vera af
sinni hálfu.
Tillaga Sæmundar kom ekki til
afgreiðslu á fundinum og hún er
ekki færð til bókar í fundargerð.
Sæmundur segir það mistök að til-
lagan hafi ekki verið borin upp og
telur að hún hafi ekki notið stuðn-
ings meirihluta bæjarstjórnar.
Hann segist hinsvegar ætla að gera
athugasemdir við fundargerðina á
næsta fundi bæjarstjórnar. HJ