Skessuhorn - 20.12.2006, Qupperneq 21
■iátasunv/ii^S
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
21
Sagan um eplið
Konumar í golfklúbbnum höfðu
ákveðið að afla fjár fyrir klúbbinn.
Ein konan var að ræða málið við
eignmann sinn. „Við ætliun að vera
kylfusveinar næstu tvær vikur en vit-
um bara ekki hvað við eigum að kalla
okkur. Kylfusveinn er jú karlkynsorð
og okkur var búið að detta í hug að
kalla okkur annað hvort kylfumeyjar
eða kylfukonur en finnst það ekki
nógu firumlegt.“ „Eg er með til-
lögu,“ segir eiginmaðurinn.
„Hvemig líst þér á golfskjóður?"
Bindi, hvað sem
tautar og raular
Borgfirskur bóndi hafði verið á
fullu í þurrkinum. Eftír erfiðan dag
er ekkert eins gott og fara í sjóðheitt
bað. Bóndi hafði varla komið sér fyr-
ir í kerinu þegar konan, sem var að
baka fyrir saumaklúbbinn síðar um
kvöldið, kom æðandi inn í baðher-
bergið og sagði að minkur væri að
spóka sig á hlaðinu. Bóndinn brá við
hart og hljóp út á Adamsklæðunum
einum fata en hafði þó vit á að taka
með sér byssu. Ekkert sá hann til
ferða minksins og í þarm mund er
hann hætti leitinni rennur í hlað sig-
inn jeppi, fullur af saumaklúbbskon-
um. Að vonum brá konunum í brún
og var það í fyrsta sinn í tuttugu ára
sögu klúbbsins sem þær urðu orð-
lausar. En bóndinn lét sér hvergi
bregða heilsaði þeim virðulega að
hermannasið og hvarf á braut. Um
kvöldið þegar konan hans skreið upp
í bóhð gaukaði hún því að honum að
hann hefði átt að sýna frúnum þá
kurteisi að setja upp bindi.
Nokkrir lesendur Skessuhorns
hafa séð ástæðu tíl að tjá sig um at-
burð er átti sér stað á tónleikum í
síðustu vilcu. Birtum sýnishom frá
tveimur:
Kyrja glaðir ár og öld
Amarstapabræður
en eftir þetta ko'rakvöld
þeir kallast Flókahræöur.
Hér situr hann Flóki
í hálfgerðu móki.
Er sunginn var Sússi
strauk hann ífússi.
Ekki meira úr sveitinni að sinni.
Umsjón: Bima Konráðsdóttir
í þriðja bindi Borgfirskrar
blöndu, þar sem Bragi Þórðar-
son tekur saman fróðleik og
sagnir úr Mýrar- og Borgar-
fjarðarsýslu, er að finna marg-
ar áhugaverðar frásagnir fólks
af minnisstæðum atburðum
sem það hefur orðið fyrir. I
einni slíkri segir Guðlaugur
Jónsson, lögregluþjónn í
Reykjavík frá því þegar haim
smakkar í fyrsta sinn á ævinni
epli og er gaman að draga
þessa sögu fram í dag, sem
virðist svo ósköp fjarlæg og
forn á okkar tímum, tímum
allsnægtar, offramboðs og
jafnvel óhófs af ýmsu tagi.
Fyrsta eplið
Þegar talað er um fyrsta
eplið, þá er ekki óeðlilegt að
einhverjum detti í hug eplið,
sem formóðir mannkynsins
lagði sér og bónda sínum til
munns endur fyrir löngu, og
hefur orðið svo geypilega af-
drifaríkt öllu mannkyni svo
sem kunnugt er af trúarkenn-
ingu kirkju vorrar. En það er
ekki eplið hennar Evu, sem hér
verður gert að umtalsefni,
heldur fyrsta eplið, sem mér
auðnaðist að sjá og neyta. Sá
viðburður gerðist árið sem ég
var í Landbrotum. Eg get bú-
ist við því, að ungu fólki hér á
landi nú og síðar þyki það
næsta lítdð umtalsvert og því
síður í ffásögur færandi, að eitt
sérstakt epli var étið árið 1909.
En það mega hinir sömu vera
vissir um, að í þá daga voru er-
lendir ávextir hlutir í íslenskri
fjallabyggð. A þessum tíma
hafði ég aldrei séð erlend ald-
in, nema þá ef til vill í mynda-
blöðum. Og ég held að ég
megi fullyrða, að þá hafi líka
verið uppi í landinu fjöldi full-
orðins fólks á ýmsum aldri,
sem var engu ffóðara en ég í
þessum efnum. Þetta umrædda
epli hefði að öllum líkindum
ekki orðið mér svo minnis-
stætt, sem raun hefur á orðið,
ef ég hefði keypt það í sölubúð
eða þegið það að gjöf ffá ein-
hverjum hollvini, og síðan
styfið það úr hnefa, eins og nú
er algengt að sjá gert. En hér
er engu slíku til að dreifa.
Eplið féll mér í hendur á mjög
óvæntan og sérkennilega hátt,
og ég át það, án þess að vita,
hvað það var, sem ég var að
leggja mér til munns, svo að
því leyti var líkt á komið með
okkur Adam sáluga, eins og
reyndar offar. Sá var þó munur
á, að hér var hvorki með í spil-
inu, svo ég viti, kona eða högg-
ormur. Og effirköstin urðu
þau ein fyrir mig, að ég fékk
gott bragð í munninn og holla
næringu.
Sagan er þessi: Pilturinn
Haraldur Lífgjarnsson var
sendur að Landbrotum frá
Rauðamel einhverra erinda, og
ég fylgdi honum úr hlaði, þeg-
ar hann hélt aftur heimleiðis.
Þetta var um veturnætur. Jörð-
in var héluð og frosin, fjallvöm
öll opin að öðru leyti en því, að
þau voru lítið eitt klakarennd
við bakkana. Við strákarnir
fylgdum alfaratroðningi frá
bænum, og brátt komum við
að Landbrotalæk, sem heita
má, að falli meðffam túnfæti.
Eg var í skinnsokkum, en Har-
aldur ekki, svo að ég tók hann
á bakið og bar hann yfir
lækinn.Handan við lækinn tók
við lítlil sandeyri og lá troðn-
ingur um hana, síðan tók við
sjálfur lækjarbakkinn með tals-
vert djöupu götuskarði. Þegar
ég kom upp úr læknum, tók ég
effir rauðleitum hnoðra, sem
lá í götutroðningnum á sand-
eyrinni. Eg tók hann upp, og
fannst okkur strákunum hann
næsta merkilegur. Hvorugur
okkar þekkti þennan hlut, en
af ilm, sem lagði af honum,
komumst við að þeirri niður-
stöðu, að hér væri um ávöxt að
ræða, og eftir nokkrar bolla-
leggingar og umhugsun, að
annað hvort væri þetta epli eða
appelsína. Við höfðum heyrt
þá ávextd nefnda, en ekki séð,
og töldum okkur vita af umtali,
að þeir væru hið mesta sæl-
gæti. Okkur kom nú saman um
að skera þennan ávöxt í sundur
til ffekari ffóðleiks. Var það
þegar gert, og kom í ljós, að
hann var gegnffosinn. Ekki var
hann ljótur í sárið - það var nú
eitthvað annað - og ilmurinn
af honum var meira en lítið
lokkandi. Þessu næst var að
prófa, hvernig hann væri á
bragðið, og lesandinn mun
fara nærri um reynslu okkar í
því efni. Er skemmst ffá því að
segja, að við nörtuðum þarna í
okkur sinn helminginn hvor af
ávextinum, þótt ffosinn væri,
og þóttumst aldrei áður hafa
bragðað meira lostæti né ann-
að eins.
Er ég kom heim, sagði ég ff á
þessum fundi okkar strákanna
og lýsti honum að bragði og
útliti. Húsmóðir mín hafði
verið langdvölum í Reykjavík
og kunni því góð skil á ávöxt-
um. Hún kvað það alveg vafa-
laust, að þarna hefði verið um
epli að ræða.
Það upplýstist aldrei, hvem-
ig stóð á því, að eplið lá þarna
á víðavangi. Að vísu þótti það
liggja í augum uppi, að einhver
vegfarandi hefði misst það
þarna, en hver sá vegfarandi
var, er enn óráðin gáta.
Ef einhver, sem les þetta,
skyldi minnast þess, að hafa
tapað epli haustið 1909 á leið-
inni ffá Landbrotiun að Haf-
fjarðará, þá getur hann séð af
þessari ffásögn, hverjir fundu
það og hvar það lenti að lok-
um.
Þar sem eplið lá, var alfara-
vegur á umræddum tíma en
langt ffá því, að geta talist fjöl-
farinn, allra síst á þessum árs-
tíma. Gatan lá um hlaðið í
Landbrotum, og dagana á
undan þessum atburði var ekki
kunnugt um neinn vegfaranda,
er hugsanlegt þótti, að hefði
epli meðferðis. Það hlaut því
að vera ffá einhverjum þeim,
sem enginn á bænum hafði
orðið var við, t.d. farið um að
næturlagi.
Því fer vitanlega fjarri, að
þessi atburður sé stórbrotinn,
en samt er hann mér minnis-
stæður. Og sérkennilegur er
hann að því leyti, að líklega em
þess fá dæmi - jafnvel engin -
að smalapiltar gæði sér á nýj-
um erlendum ávexti, er þeir
hafa hirt upp af frosnum víða-
vangi í íslenskri sveit um vet-
urnætur, og að fyrstu kynni
þeirra af slíkri vöm skyldi verð
með svo óvenjulegum hætti.
r
NÝHÖNNUN
TEIKNISTOFA
Hvanneyrargötu 3 - Hvanneyri - 311 Borgarnes
Sími: +354 437 1500 - Fax: +354 437 1501
nyhonnun@nyhonnun.is - www.nyhonnun.is
©ftiSBOd® J% pÆS ®gj pímák MmrnM é?