Skessuhorn - 20.12.2006, Síða 22
22
MIÐVTKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
Sólin er sest og kuldalegt
kyöidið tekið við völdum. Ský
'skyggir á stjörnur og tungl.
Dimma og drungi leggjast yfir
láð og lög. Jörðin er auð. Hún
kyndir þannig undir dekkra
kvöldi og nærir nóttina á meira
myrkri. Það er skammdegi og
augsýnilegt að skammdegið er
skuggalegt í öllu sínu veldi þeg-
ar allt er autt, dimmt og kalt.
Skyndilega fellur snjór á fold.
Skýið léttir á byrði sinni. Logn-
drífan svífur til jarðar eins og
fiður og gefiir sér nægan tíma til
að íhuga hvar skuli lent að þessu
sinni. A örfáum augnablikum
hefur ásýnd jarðar breyst að
miklum mun. Hin auða jörð
sem endurspeglaði dökka liti er
ekki lengur fyrir hendi. Landið
er nú litað hvítum, skærum og
björtum litum. Almálaða landið
kastar skærri birtu sinni til móts
við myrkur næturinnar. Lengi
vel má vart á milli sjá hvort hef-
ur betur, ljósið eða myrkrið. Þá
gerist atburður sem ríður bagga-
muninn. Skýið, sem hafði málað
marauða jörðina, klofnar í
tvennt. Fullur máni brýst fram í
allri sinni dýrð með óteljandi
stjörnur sér til fulltingis.
Tunglið varpar ljósi sínu yfir
fannhvíta jörðina, sem endur-
kastar henni til himinsins. Það
myndast tengsl milli himins og
jarðar. Allt lýsist upp og verður
sem nýr og heiður dagur. Skap-
arinn er í góðu skapi. Hann er í
sannkölluðu jólaskapi. A einu
augabragði hefur hann breytt
dimmri og drungafullri nótt
vonleysis í skýlausa birtustund
vonar og eftirvæntingar. Þannig
vinnur Drottinn Guð, skapari
himins og jarðar.
Um langan aldur hafði legið
myrkur yfir mannkyni, myrkur
sem einkenndist í raun og veru
af tilgangsleysi og vonleysi. Líf
mannkyns var autt, dimmt og
kalt. En mitt í öllu vonleysinu,
eða fyrir 2000 árum, sáu vitring-
ar í Austurlöndum skæra og
skínandi stjörnu renna upp á
himininn. Hennar vegna varð
dagljóst og ratljóst til Betlehem,
og það nýttu þeir sér. Þar fundu
þeir frelsarann fæddan, Jesú
Krist, ljós heimsins. Guð hafði
vitjað lýðs síns í syni sínum.
Guði var svo annt um sköpun
sína og börn sín að hann gaf son
sinn eingetinn, til þess að hver
sá maður sem á hann trúir
myndi ekki glatast heldur hafa
eilíft líf. Hann sendi ljósið til
lýsa myrkvuðu mannkyni og
gefa því von og tilgang með lífi
sínu. En myrkrið var mikið,
magnþrungið og áþreifanlegt.
Það vildi ekki taka á móti ljósinu
en reyndi í staðinn að fyrirkoma
því. Það voru tvísýnir tímar.
Ljós og myrkur mættust og átt-
ust við. Ljósið var fest á kross
og birtan fór dvínandi, allt leit
út fyrir svanasöng þess. A þriðja
degi þaðan í ffá gerðust undur
og stórmerki. Ljósið lýsti að
nýju og af enn meiri krafti en
fyrr. Það lýsti af sannkölluðum
dýrðarljóma eilífs lífs. Þannig
gaf það mönnunum von og trú á
eilíft líf og frelsi frá synd og
dauða. Þannig vinnur Drottinn
Guð í syni sínum, frelsaranum
Jesú Kristi.
Jólin eru að ganga í garð.
Kristnir menn búa sig undir að
taka á móti ffelsara sínum. Há-
tíðin, nú sem endra nær, sækir
misjaftilega að fólki. Það er mis-
vel búið undir að fagna fæðingu
ffelsarans. Sumir eru staddir á
upplýstum hátindi hamingju og
gleði. Aðrir í dimmum dal sorg-
ar og þjáningar. Sumar fjöl-
skyldur eru að halda sín fyrstu
jól effir nýstofnað samband eða
hjónavígslu eða eftir að nýr ein-
staklingur fæddist inn í fjöl-
skylduna. Aðrar fjölskyldur eru
hins vegar að syrgja látinn ástvin
og halda sína fyrstu jólahátíð án
návistar hans. En hvort sem
menn eru staddir á hamingju-
tindi, í hryggðarmyrkri, eða mitt
á milli, þá á fagnaðarerindið um
fæðingu frelsarans erindi til
þeirra allra. Það erindi gerir
góða hamingju að sannri ham-
ingju og breytir sárri sorg í
huggunarríka gleði. Það kveikir
hjá okkur effirvæntingu, von og
tilhlökkun um það sem í vænd-
um er. Það vekur þrá til þess
hugsa hlýtt til bræðra okkar og
systra með bögglum eða bréf-
um. Fagnaðarerindið gleður og
huggar, kveikir von og vekur
þrá. Þannig vinnur Drottinn
Guð í huggaranum, hinurn
heilaga anda.
Megi Drottinn Guð gefa okk-
ur gæfuríka aðventu og gleðileg
jól.
Magnús Magnússon
sóknarprestur í Olafsvík