Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2006, Side 26

Skessuhorn - 20.12.2006, Side 26
26 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 aklMUIIUkJ Vestmiand 2006 í máli og myndum Sveitarfélögum fækkar Á þessu ári var tekin ákvörðun um fækkun sveitarfélaga á Vesturlandi. Saurbæjarhreppur og Dalabyggð voru samein- uð í sveitarfélagið Dalabyggð. Þá var samþykkt sameining Kolbeinsstaðahrepps, Hvítársíðuhrepps, Borgarbyggðar og Borgarfjarðarsveitar og ákveðið eftir kosningu að sveitarfé- lagið fengi nafnið Borgarbyggð. Norðan Skarðsheiðar eru sveitarfélögin í Borgarfirði því einungis tvö því Skorradalur er sem fyrr sjálfstætt svetarfélag. Sunnan Skarðsheiðar sam- einuðust sveitarfélögin Leirár- og Melasveit, Hvalfjarðar- strandarhreppur, Skilmannahreppur og Innri Akranes- hreppur í Hvalfjarðarsveit. Háskólasetur Snæfellsness stofhað I febrúar á þessu ári var haldinn stofnfundur Háskólaset- urs Snæfellsness. Háskólasetrið er fræðasetur Háskóla Is- lands á Snæfellsnesi og er staðsett í Stykkishólmi. Setrið er fyrst og fremst rannsóknasetur með áherslu á náttúrurann- sóknir á Snæfellsnesi og Breiðafirði, enda er náttúran þar með eindæmum fjölbreytt og rannsóknatækifæri óþrjótandi. Á myndinni býður Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri stjóm set- ursins velkomna þegar hún hélt sinn fyrsta fund í Stykkis- hólmi. Slysaár Umferðarslys á árinu vom mörg og alvarleg. Þegar þetta er skrifað hafa 30 látist í umferðinni á landinu öllu, mun fleiri en síðustu ár. Þessi mikla slysaalda, ástand vega, of hraður akstur og slæm umferðarmenning var mikið til um- ræðu í þjóðfélaginu á árinu. Ljóst þykir að bæði þurfa marg- ir ökumenn að bæta hegðun sína í umferðinni sem og stjórn- völd að bæta vegi og vegamannvirki til að takast eigi að snúa þróuninni við. Tvöföldun Vesturlandsvegar hlýtur að verða eitt helsta baráttumál íbúa hér á Vesturlandi á næstu ámm. Alvarlegustu slysin verða þar sem mikil umferð er á einni akrein til hvorrar áttar og ekkert sem skilur akreinarnar sundur. Á fjölförnum vegum út frá höfuðborginni urðu al- varlegustu slysin á þessu ári, að undanskilinni Reykjanes- braut þar sem búið er að tvöfalda langan kafla leiðarinnar með aðskilnaði bíla eftir akstursstefnu. Sprenging í uppbyggingu sumarhúsa Sumarhúsum í Borgarfirði hefur fjölgað mjög hratt á und- anförnum ámm og ekkert lát virðist á þeirri uppbyggingu því nú í árslok liggja fyrir hjá skipulagsyfirvöldum beiðnir um deiliskipulag á mörgum byggingasvæðum með hundmð- um lóða fyrir sumarhús sem ætlunin er að byggja á næstu ámm. Samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins era sumarhús í Borgarbyggð og Skorradalshreppi nú 1.780 talsins og hefur fjölgað um 121 á árinu eða tæp 7,3% og fjöl- mörg sumarhús era nú í byggingu. Þetta er heldur meiri aukning en milli áranna 2004 og 2005 þegar sumarhúsum á Vesturlandi fjölgaði í heild um 7%. Unnið er að deiliskipu- lagi margra svæða í Borgarbyggð undir sumarhús auk þess sem lögð hafa verið drög að stækkun margra þeirra sem fyr- ir eru. Er þar um að ræða allt frá nokkrum sumarhúsalóðum upp í svæði þar sem gert er ráð fyrir hundruðum bústaða. Aukningin verður því mikil á allra næstu áram. Dregið úr flöggun Snemma á árinu hittust forráðamenn ýmissa fyrirtækja og stofnana sem hafa starfsstöðvar sínar í nágrenni þjóðvegar- ins sem liggur um Borgarnes. Ástæða fundarins var sú að ræða fánamál. Nokkur umræða hafði verið um það að varla liði sá dagur að ekki væri flaggað í hálfa stöng í Borgarnesi. Fram kom að menn hefðu fullan skilning á því að fólk vildi sýna hinum látnu virðingu sína en á móti kæmi að það félli kannski um sjálft sig þegar fáninn væri fast að því ofnotaður í þessu skini. Venja var fyrir því í Borgarnesi að flaggað væri í hálfa stöng bæði þegar einstaklingur félli frá og einnig þeg- ar viðkomandi væri jarðsettur. Töldu málsaðilar að nú væri svo komið að fleiri þúsund bflar færa í gegnum Borgarnes á hverjum degi og að þegar fjöldi fána væri dreginn í hálfa stöng við þjóðveginn þá gæfi það þá mynd að allur bærinn væri í stöðugri sorg. I kjölfarið var ákveðið að draga veralega úr flöggun í hálfa stöng með þeirri undantekningu að áfram er flaggað við Dvalarheimilið þegar ástæða er tdl. Vatn í útflutning Fyrirtækið Islind hefur á árinu unnið að undirbúningi vatnsverksmiðju í Rifi í samstarfi við innlenda og erlenda fjárfesta. Undirbúningur verkefnisins hefur gengið sam- kvæmt áætlun og tímasetningar staðist við þau skref sem stigin hafa verið til þessa. Samkvæmt fréttum mun verk- smiðjan skapa a.m.k. 80-120 ný störf í Snæfellsbæ og er hér um veralega ánægjulega viðbót við atvinnuflóra Snæfellinga að ræða. ■> - ______', ■.J*-,'':,v y Líflegur fasteignamarkaður Fasteignaverð hækkaði mikið á fyrri hluta þessa árs og var þessi hækkunarhrina áframhald frá árinu 2005 þegar fram- boð íbúðarhúsnæðis var minna en eftirspurn. Mjög mikið seldist á árinu af íbúðarhúsnæði á öllum svæðum á Vestur- landi og víða var mikið byggt. Helst hamlaði skortur á iðn- aðarmönnum því að uppbygging varð ekki hraðari en raun bar vitni. Verð á bújörðum og jarðnæði almennt í landshlut- anum hækkaði einnig mikið á árinu. Flestar jarðir seljast fljótt eftir að þær era settar á sölu og verð hefur stigið mik- ið og í mörgum tilfellum um tugi prósenta á fáum misseram. Landeigendur hafa margir nýtt sér hækkandi verð og aukna eftirspurn og ákveðið að selja. Margir hafa áhyggjur af ný- liðun í hefðbundnum landbúnaði af þessum sökum. Svo virðist sem það skipti nútíma jarðakaupendur litlu máli hvort búskapur sé stundaður á jörðunum eða ekki, heldur vega ýmis önnur atriði þyngra fyrir þá, svo sem veiðihlunn- indi, nettengimöguleikar, afþreying og fl. Á myndinni er verið að taka fyrstu skóflustungu að nýju 500 íbúa hverfi í Krosslandi í Hvalfjarðarsveit. Margar reiðhallir í pípunum I febrúar á þessu ári rituðu fulltrúar Hestamannafélaganna Skugga og Faxa, Hrossaræktarsambands Vesturlands og Borgarbyggðar undir viljayfirlýsingu um að standa saman að uppbyggingu reiðhallar á félagssvæði Skugga í Borgarnesi. Fyrsta skóflustungan var tekin að byggingunni tímanlega fyrir kosningar í vor. Ekki er byggingin þó risin og örlar reyndar ekki á henni enn sem komið er. Á árinu veitti land- búnaðarráðuneytið miklu fé til reiðhallabygginga víðsvegar um land, en peningurinn var afrakstur sölu Stofnlánadeildar landbúnaðarins sem var einkavædd á árinu. Til Vesturlands fóra 45 milljónir. Borgnesingar fengu væna úthlutun til byggingar sinnar reiðhallar, Snæfellingar fengu einnig styrk til reiðhússbyggingar og Dalamenn fengu dúsu. Akurnes- ingar gleymdu hinsvegar að sækja um í tíma og fengu ekk- ert. Myndarleg reiðhöll reis hinsvegar án styrkja nú síðsum- ars á Miðfossum í Andakfl þar sem útvegsbóndi reisti 1600 fermetra hús sem vígt var fyrir nokkrum dögum. . N Sparisjóður á Akranes Það er ekki á hverju degi sem nýr banki eða sparisjóður opnar. Það gerðist þó í lok febrúar á þessu ári að Sparisjóð- urinn á Akranesi hóf starfsemi sína við Stillholt 18. SPA er í eigu Sparisjóðs Mýrasýslu en rekinn sem sjálfstæð eining. Samhliða almennri sparisjóðsstarfsemi er umboð Trygg- ingamiðstöðvarinnar einnig á sama stað.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.