Skessuhorn - 20.12.2006, Síða 27
^ssunuh.
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
27
Vestiirland 2006 í máli og myndimi
Vestlensk fegurð
Keppnin um Ungfrú Vesturland var haldin í mars. Þar
kepptu 10 stúlkur til úrslita. Það var Aldís Arnardóttir, 19
ára gömul Skagamær, sem var krýnd sú fegursta að þessu
sinni. Aldís var einnig kjörin ljósmyndastúlka keppninnar.
Elísa Guðrún Elísdóttir hafnaði í öðru sæti en þriðja sætið
hreppti Lilja Hlín Ingibjargardóttir. Karlpeningurinn var
ekki síðri því fulltrúar Vesturland í keppninni Herra Island
náðu fyrsta og þriðja sæti í keppninni. Þetta voru þeir Krist-
inn Darri Röðulsson og Steinar Helgason báðir frá Akra-
nesi.
Mesti sinubruni sögunnar
Einu umfangsmesta slökkvistarfi sem um getur í sinu-
brunum hér á landi lauk tæpum þremur sólarhringum eftir
að sígarettustubbur kveikti fyrstu glóðina í sinu í Hraim-
hreppi á Mýrum í lok mars. A fimmtudag og fram á laugar-
dagskvöld loguðu eldarnir alla jafhan á stórum svæðum oft á
mörgum stöðum samtímis og gerði það slökkvistarf enn erf-
iðara. Neikvæðar hliðar fækkandi búpenings í sveitum
landsins endurspegluðust e.t.v. betur en áður í þessum miklu
eldum því fullyrða má að sinueldar sem þessir hefðu aldrei
orðið að þessu gríðarmikla báli ef beitarálag væri meira en
það er í dag. Astæða er til að hafa áhyggjur af því að sinueld-
ar verði í ffamtíðinni stærri og erfiðari viðfangs af þessum
sökum. Heimamenn á Mýrum, slökkviliðsmenn úr Borgar-
nesi, héraðinu og víðar að, björgunarsveitir og ýmsir sjálf-
boðaliðar unnu frábært starf á Mýrum. Tókst þessu einvala-
liði að forða því að fólk, fénaður og mannvirki yrðu eldi að
bráð. Þetta eru sannar hetjur.
Norðurál framleiðir nú 220 þús. tonn
Akveðið var á árinu að flýta viðbótarstækkun Norðuráls á
Grundartanga en verkefnið mun auka framleiðslugetu ál-
versins úr 220.000 tonnum á ári í 260.000 tonn. Gert er ráð
fyrir að framkvæmdum verði lokið á fjórða ársfjórðungi
næsta árs. Nú í haust var tekin í notkun stækkun verksmiðj-
unnar í 220.000 tonn sem unnið hefur verið að á undanförn-
um tveimur árum.
Vímuefni komu við sögu
Oft á árinu mátti lesa fréttir um árangur lögreglu í barátt-
unni við fíkniefnasala hér í landshlutanum. I einni rassíu
lögreglunnar í Borgarnesi í aprílmánuði voru haldlagðar
hvorki fleiri né færri en 228 kannabisplöntur á sveitabæ á
Mýrum. Þá fundust einnig þurrkuð kannabislauf og stöngl-
ar ásamt ýmsum búnaði til ræktunar, svo sem lampar, hita-
gjafar, viftur og loftræstibúnaður. Að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi var ræktunin á ýmsum stigum og því ljóst að hún
hafði staðið yfir í þónokkurn tíma. Gárungar höfðu það á
orði að þar með hefði horfið síðasta græna stráið, sem þá var
að finna á Mýrum, einungis nokkrum dögum eftir að Mýra-
eldarnir geysuðu!
Ár Vesturlands í körfuknattleiknum
Óhætt er að segja að árið 2006 hafi verið ár Vesturlands í
körfuknattleiknum. Ógnar nú landshlutinn Suðurnesjum
Starfsfólk KB banka óskxv þcr 09 þtnum
Við þökkum möskiptin \ árinu scm cr aö Iíöa
K B B A I I K I