Skessuhorn - 20.12.2006, Page 28
28
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
Vesturland 2006 í máli og myndum
Tíu milljón bflar í vor
I aprílmánuði fór bíll númer 10.000.000 í gegnum Hval-
fjarðargöngin. Stjórnendur Spalar tóku á móti ökumanni
bílsins sem reyndist vera Anna Lilja Hauksdóttir frá Húsa-
vík ásamt þremur börnum hennar. Færðu þeir henni gjafir í
tilefni þessa við gjaldskýlið. Umferð í Hvalfjarðargöngum er
margfalt meiri en ætlað var í rekstraráætlunum sem stuðst
var við áður en þau voru opnuð. Ef miðað er við hámarks-
umferð samkvæmt þessum áætlunum hefði tíu milljónasti
bíllinn farið um göngin á árinu 2016 en það gerðist sem sagt
heilum áratug fyrr, eða þann 23. apríl 2006. Umferð um
göngin hefur aukist um 10-12% á ári undanfarin ár og spá
menn því að óhjákvæmilegt verði að ráðast í tvöföldun
þeirra áður en mjög mörg ár líða.
Setrið hefur slegið í gegn
Landnámssetur Islands var opnað við hátíðlega athöfn í
Borgarnesi 13. maí í vor. Húsin tvö; Búðarklettur og Pakk-
húsið við Brákarsund í Borgarnesi, hafa verið tengd saman á
afar glæsilegan hátt með nýrri tengibyggingu og greinilegt
að ekkert hefur verið til sparað til að mynda rétta stemningu
í setrinu. Oumdeilanlega er opnun Landnámsseturs Islands
einn af stærri viðburðunum í ferðaþjónustu á Vesturlandi á
þessu ári og kærkomin nýjung í menningartengdri ferða-
þjónustu í Borgarfirði. Viðtökur við starfseminni hafa verið
afar góðar það sem af er og þar hefur verið bryddað upp á
fjölda nýjunga. Meðfylgjandi mynd er tekin á flugi yfir
Borgarnes á opnunardag Landnámsseturins. Hana tók
Theodór Þórðarson.
Hægri sveiflur og fall
meirihlutans á Akranesi
Landsmenn gengu til kosninga í vor, að þessu sinni til
sveitastjórna. Eftir að úrslit lágu fyrir seint um kvöldið var
ljóst að fremur litlar breytingar yrðu á því sveitarstjórnar-
mynstri sem ríkt hafði á Vesturlandi kjörtímabilið á undan,
með undantekningum þó. Helstu breytingarnar voru e.t.v.
þær að sveitarfélögum fækkar úr 17 í 10 en það hafði hins-
vegar lítið með sjálfar kosningarnar að gera enda löngu
ákveðið. Sjálfstæðisflokkur styrkti stöðu sína á Snæfellsnesi í
kosningunum og myndar nú meirihluta í öllum stærri sveit-
arfélögunum þar; Snæfellsbæ, Stykkishólmi og Grundarfirði
sem um árabil hefur hýst sigursælustu lið landsins í þessari
vinsælu íþróttagrein. A síðustu leiktíð léku lið Snæfells og
Skallagríms við hvern sinn fingur og heimamenn í Stykkis-
hólmi og Borgarnesi voru svo sannarlega með á nótunum.
Ahorfendum fór sífellt fjölgandi og troðfylltu íþróttahúsin.
Þegar deildakeppninni lauk höfðu bæði liðin tryggt sér sæti
í átta liða úrslitum um Islandsmeistaratitilinn. Lið Snæfells
mætti liði KR í átta liða úrslitunum og höfðu KR-ingar bet-
ur. Leikmenn Skallagríms lögðu hins vegar lið Grindavíkur
og lið Islandsmeistaranna úr Keflavík á leið sinni að úr-
slitarimmunni um titilinn eftirsótta. Skallarnir mættu síðan
liði Njarðvíkur í úrslitunum. Njarðvíkingar með alla sína
sögu og reynslu höfðu betur en þurftu fjóra leiki í rimmunni
til þess að tryggja sér titilinn. Segja má að Vesturlandsliðin
hafi haldið áfram þar sem frá var horfið þegar ný leiktíð
hófst í haust og nú á aðventunni var lið Snæfells í efsta sæti
úrvalsdeildarinnar og lið Skallagríms í öðru sæti. Annað
Vesturlandsár er því hugsanlega í uppsiglingu.
_
Lið IA stóðst ekki væntingar
en slapp fyrir hom
Talsverðar væntingar voru gerðar til úrvalsdeildarliðs IA í
knattspyrnu áður en leiktíðin hófst sl. vor. Ekki minnkuðu
væntingarnar þegar „gamlir" og reyndir refir gengu til liðs
við félagið. Það voru tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunn-
laugssynir og bræðurnir Þórður og Bjarni Guðjónssynir.
Allir höfðu þeir um árabil leikið sem atvinnumenn erlendis.
Nokkrir leikir voru leiknir á undirbúningstímabilinu með
misjöfnum árangri. Ekki dró það úr væntingum áhuga-
manna um þessa vinsælu íþrótt. Arangurinn lét á sér standa
og þegar fyrri umferð Islandsmótsins var lokið í lok júní var
lið IA neðst í deildinni með sex stig. Stjórn rekstrarfélagsins
fór yfir málin með þjálfaranum Olafi Þórðarsyni og niður-
staðan varð sú að best væri að skipta um þjálfara. Leitaði
stjórnin til tvíburanna Arnars og Bjarka og tóku þeir við lið-
inu. I kjölfarið breyttist leikur liðsins til hins betra en liðið
var þó í fallsæti til loka mótsins. Þegar upp var staðið tókst
liðinu hins vegar að verjast falli og endaði liðið í sjötta sæti
deildarinnar og einnig komst það í átta liða úrslit bikar-
keppninnar. Undir lok móts fóru af stað umræður um hver
yrði næsti þjálfari liðsins. Fram á völlinn steig fyrrum þjálf-
ari liðsins, Guðjón Þórðarson, og lýsti áhuga á starfinu. Eft-
ir að skipt hafði verið um stjórn rekstrarfélagsins var gengið
frá ráðningu Guðjóns. Nokkrir leikmanna liðsins hafa
ákveðið að freista gæfunnar hjá öðrum liðum en lið IA æfir
nú stíft undir stjórn Guðjóns í nýrri knattspyrnuhöll á Akra-
Afburðaærin Móra
Það verður að teljast líklegt að ærin Móra á bænum Hól-
um í Dalasýslu sé búin að festa sig kirfilega í sessi á spjöld-
um sögunnar. Síðastliðið vor bar Móra í 15. skipti og hafði
þar með borið í þennan heim hvorki fleiri né færri en 43
lömbum. Fremur sjaldgæft er að kindur haldi góðri heilsu
þetta lengi og enn síður að þær beri og komi á legg svo
mörgum lömbum á æviskeiðinu. Fyrstu tvö vorin í lífi henn-
ar bar hún tveimur lömbum en sl. þrettán ár hafa þau án
undantekningar verið þrjú á ári og hefur meðalvigt þeirra
aldrei farið undir 18 kíló í fallþunga sem verða að teljast ríg-
væn lömb af þrílembingum að vera. Hinsvegar er það svo að
öll gimbrarlömb undan henni hafa undanfarin ár verið látin
á enda kostakynbótagripur á ferðinni sem eftirpurn er að
eiga undan. Kristján Jónsson, bóndi á Hólum er fóstri
Móru. Hjá honum báru 25 ær í vor og voru 10 þeirra þrí-
lembar, ein fjórlemd og 14 tvílemdar.
Menntaskóli Borgarfjarðar
Fyrsta skóflustungan að Menntaskóla Borgarfjarðar var
tekin í maí af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Haustið
2007 er stefht að því að borgfirskir unglingar geti sest á
skólabekk í hinum nýja skóla í heimabyggð. Framkvæmdir
við byggingu skólans eru nú hafnar.
nesi.
Hvatning fyrir samvinnu heimila
og skóla
Skólar á Vesturlandi eru bæði margir og góðir á öllum
skólastigum. Foreldraverðlaun Heimilis og skóla - lands-
samtaka foreldra voru afhent sl. vor. Sérstök hvatningar-
verðlaun komu á Vesturland og féllu í hlut Foreldrafélags
Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi sem hlaut þau fyrir mark-
visst og öflugt foreldrasamstarf og samvinnu heimila og
skóla. Sýna Snæfellingar þar að margur getur verið knár þótt
hann sé smár.
Fyrsta úthlutun Menningarsjóðs
Menningarsjóður Vesturlands var stofnaður í fyrra og hef-
ur ráðið sér starfsmann, Elísabetu Haraldsdóttur. Sjóðurinn
úthlutaði styrkjum í fyrsta skipti í vor, rúmlega 18 milljón-
um króna til 53 verkefna. Hæsta styrkinn í þessari fyrstu út-
hlutun sjóðsins hlaut Landnámsetur Islands eða um 1,2
milljónir kr. vegna leiksýningarinnar Mr. Skallagrímsson og
sagnamanna á sögulofti. Mikil gróska er í menningarlífi á
Vesturlandi og verkefnin mörg og metnaðarfull og skemmti-
leg sem sækja um styrki til sjóðsins.
Stéftai
irfélag
Vesturlands
Stéttarfélag Vesturlands stofhað
Félagsmenn þriggja verkalýðsfélaga á Vesturlandi sam-
þykktu sameiningu félaganna í nýtt verkalýðsfélag, Stéttar-
félag Vesturlands, sem tók til starfa á árinu. Félögin sem
sameinuðust voru Verkalýðsfélagið Valur í Búðardal, Verka-
lýðsfélag Borgarness og Verkalýðsfélagið Hörður sem starf-
að hefur í sveitarfélögunum sunnan Skarðsheiðar.