Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2006, Page 29

Skessuhorn - 20.12.2006, Page 29
 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 29 Vestiirland 2006 í máli og myndum með fjóra af sjö bæjarfulltrúum á öllum þessum stöðum. Á Akranesi kolféll meirihluti Framsóknarflokks og Samfylk- ingar, Framsókn tapaði yfir helmingi atkvæða sinna frá síð- ustu kosningum og Samfylking tapaði einnig stórt og manni, en fæstir bjuggust við því að flokkurinn fengi einungis tvo menn í bæjarstjórn. Sjálfstæðisflokkur á Akranesi vann lítið á frá síðustu kosningum, hélt sínum fjórum bæjarfulltrúum og myndaði strax meirihluta með Frjálslyndum og óháðum sem náðu inn einum manni. Sigurvegarar kosninganna á Akranesi voru Frjálslyndir og Vinstri grænir. I sameinuðu sveitarfélagi í Borgarfirði, sem nú heitir Borgarbyggð, vann Borgarlistinn mann af Framsóknarflokki en Sjálfstæðis- flokkur er stærsta stjórnmálaafl sveitarfélagsins með um 38% fylgi. Sami meirihluti var áfram eftir kosningar í Borg- arbyggð. I nýju sveitarfélagi sunnan Skarðsheiðar; Hval- fjarðarsveit, vann E listi undir forystu Hallfreðs Vilhjálms- sonar á Kambshóli stórsigur og hreinan meirihluta, eða fjóra af sjö fulltrúum í sveitarstjórn. I sameinuðu sveitarfélagi í Dalasýslu þurfti að rnynda meirihluta tveggja flokka, en í kosningunum fékk N listi mest fylgi, eða 42,2% og þrjá menn af sjö £ sveitarstjórn. N og H listi mynda meirihluta en V listi er í minnihluta. I kjölfar kosninga er oft skipt um kall- inn í brúnni og því eru nýir sveitarstjórar nokkrir á Vestur- landi. Má þar nefna Gísla S Einarsson á Akranesi, Einar Orn Thorlacius fór frá Reykhólum og stýrir nú Hvalfjarðarsveit, Gunnólfur Lárusson er í Dalabyggð og Guðmundur Ingi Gunnlaugsson í Grundarfirði. Ölvun á bæjarhátíðum Bæjar- og héraðshátíðir á Vesturlandi voru að vanda haldnar í sumar. Flestar gendu þær vel en á einstaka þeirra setti ölvun ungmenna áberandi og dapran svip á annars góð- ar samkomur. Segja má að á Færeyskum dögum í Olafsvík hafi ástandið verið verst, sem og á Irskum dögum á Akranesi þar sem nokkur hundruð krakkar létu ófriðlega. Fréttaflutn- ingur af hátíðunum varð því nokkuð á þá lund að allt hafi verið í hers höndum. Það var hinsvegar orðum aukið. Um- fjöllun um hátíðirnar varð til þess að önnur sveitarfélög gerðu sínar hátíðir lágstemmdari en ella til að draga úr komu þeirra sem ekki sækja þær vegna tengsla sinna við svæðin. Landsmót hestamanna Landsmót hestamanna var haldið í Skagafirði í sumar. Vestlensk hross stóðu sig ágætlega á mótinu sem og knapar. Bestum árangri náði borgfirsk ættuð yngismær; Freyja Amble Gísladóttir og Krummi frá Geldingalæk sem sigruðu í ungmennaflokki og Jamila Berg og Segull frá Akrakoti lentu í 7. sæti. En það er fleira gert á hestamannamótum en bara að horfa á hross. Aðalræðumaður á kvöldvöku hátíðar- innar var Gísli Einarsson, fréttamaður sem fór á kostum að vanda. Harm er í dag eftirsóttasti skemmtikraftur lands- manna og kemur sem slíkur víða við. Innkoma hans á völl- inn á Vindheimamelum þótti einkar glæsileg á fremur lág- gengum mósóttum hesti sem hann reið „út og suður“ um á áður en messað var yfir mannskapnum. Skútumar í Gmndarfirði Nítján franskar skútur og tvær íslenskar áttu viðkomu í Grundarfirði í júlí í keppninni Skippers d’Islanders. Heim- sókn þeirra vakti mikla athygli enda ekki á hverju degi sem svo glæsileg sjóför fara um firði landsins. íkveikjufaraldur Kveikt var í á nokkrum stöðum á Akranesi í sumar og var um hreinan og kláran íkveikjufaraldur að ræða. Lögregla stóð lengi ráðþrota en þegar leið ffá tóku línur að skírast og ungir piltar hafa nú játað að eiga hlut að máli. Utköll Slökkviliðs Akraness voru m.a. af þessum sökum óvenjulega mörg á árinu eða á 51 talsins. Bœkurnar Byggðir Borgarfjarðar TILBOÐ Til sölu eru bœkurnar Byggðir Borgarfjarðar l-TV bindi. I bindi er ítarleg byggðasaga héraðsins frá landnámi. 11-111 er byggðalýsing með myndum aflögbýlum og ábúendum. IV bindi er ábúendatal á öllum lögbýlum i Mýra- og Borgarfjarðarsýslu frá 1880-1995. Tilvaldar afmœlisgjafir eða jólagjafir - SENDUM í PÓSTKRÖFU Seiuiiim 'Ve&dendingum Búnaðarsamtök Vesturlands Hvanneyrargötu 3 - Hvanneyri - 4371215 0 ifc 7|' # Oskum viðskiptavinum okkar svo og Vestlendingum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir viðskiptin á liðnu ári # HYRNUTORGI • BORGARNESI

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.