Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2006, Qupperneq 52

Skessuhorn - 20.12.2006, Qupperneq 52
52 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 SKESSIíHOBRi Dalimir heilla! Það var um hádegisbil 8. des- ember síðastliðinn að ég svaraði í símann á skrifstofu sveitarstjórnar Dalabyggðar þegar ritstjóri Skessuhorns hringdi. Einhverjum augnablikum síðar ákvað ég að skoða hvort ég treysti mér til að skrifa „kveðju úr héraði“ til birt- ingar í Skessuhorni. Var ég ekki viss hvort ég væri rétti maðurinn í þetta eftir aðeins um eins árs bú- setu í sveitarfélaginu. Um klukku- stund síðar tilkynnti ég að ég myndi slá tdl. Það var í nóvember 2005 sem ég flutti búslóðina til Búðardals frá Reykjavík. Eiginkonan, Mar- grét, og dóttirin, Lísa tíu ára, höfðu flutt vestur þegar skólinn byrjaði og skildu mig eftir til að ganga frá nýseldri íbúðinni okkar, pakka búslóðinni og flytja hana vestur í húsnæði sem við leigðum til vetrarins því ekkert húsnæði var tdl sölu í Búðardal. Margrét er fædd og uppalin í Dölunum og ábyggilega skyld a.m.k. þriðja hverjum Dalamanni og þekkir alla hina líka. Eg aftur á móti þekkti hér aðeins tengdafólkið og þeirra fjölskyldur. Nú tók því við tímabil sem ég er ekki alls ókunnugur eftir marga búslóðaflutninga bæði innanlands og milli Islands og BNA. Enn eina ferðina hef ég þurft að kynnast og komast inn í samfélagið sem ég var nýfluttur í og fólkinu sem þar býr. Svo vel vildi til að ég var ráð- inn tímabundið til ýmissa starfa á sveitarstjórnarskrifstofuna þar sem er kjörinn staður til að kynn- ast mannfólkinu og fýlgjast með því sem er að gerast í þorpinu og sveitunum í kring. Það hefur auð- veldað mér lífið við þessa kynn- ingu að Margrét, eiginkona mín, er starfandi aðalbókari Dala- byggðar og til hennar hef ég stöðugt leitað þegar þörfin hefur verið hjá mér að vita nánar um það sem hefur verið á döfinni hverju sinni. Á undanförnu ári er ég búinn að fylgjast misnáið með lífinu í Dala- byggð og því sem hér er að gerast, umræðunni, skóla-, menningar-, sveitarstjórnar-, sláturhúss-, kynningar- og atvinnumálefnum. Áfram má telja sveitarstjórnar- kosningar, byggingarffamkvæmd- ir bæði einka og sveitarfélagsins, mannlífinu í litlu þorpi og til sveita og áhrif fámennisins á alla þessa þætti. Já, undanfarið ár er búið að vera stíft námskeið fýrir mig í öllum þessum þáttum og fleirum. Fyrir mann sem er margreyndur í stór- borgum Bandaríkjanna og í Reykjavík þar sem hver maður er aðeins dropi í mannhafi, sem hef- ur aldrei fýrr búið í samfélagi þar sem eru innan við sjö htmdruð manns í öllu sveitarfélaginu eru það gríðarleg viðbrigði að kynnast lífinu á þennan hátt, þar sem hver rödd heyrist og flestir hafa eitt- hvað að segja um það sem er á döfinni. Enginn virðist týnast í mannhafi eins og í stórborgunum þar sem einmanaleikinn og rót- leysið ræður oftar en ekki ríkjum. Hér í Dalabyggð ríkir samhygð sem er ómetanlegur eiginleiki meðal manna. Áður en ég flutti í Dalina taldi ég að klisjan „Dalirnir heilla" ættd við heillandi landslag sveitarfé- lagsins. Nú veit ég að það er að- eins rétt að hluta því að Dalina byggir fólk, gott fólk upp tdl hópa, sem ég er afar þakklátur fýrir að hafa haft tækifæri til að kynnast og fýrir hvernig mér hefur undan- tekningarlaust verið tekið hér í sveitinni af hlýhug og með vin- áttu. Burtfluttum Dalamönnum hafði ég nokkrum kynnst í gegn- um Breiðfirðingafélagið í Reykja- vík og Breiðfirðingakórinn sem ég söng með. Allt er það frábært fólk sem ég kynntist þar en nú veit ég að hér í Dölunum er heillandi fólk, hér í Dölunum er heillandi mannlíf, hér í Dölunum er heill- andi fegurð landsins og hér í Döl- unum er heillandi að búa. Því vil ég nota þetta tækifæri til að þakka öllum Dalamönnum nær og fjær fýrir árið sem er að líða, hvernig mér hefur verið tekið hér í Dala- byggð og óska þeim öllum gleði- legra jóla og árs og ffiðar um ó- komin ár. Dalimir heilla! Finnbjöm Gíslason. Hugleiðing á aðventunni Enn erum við minnt á að það er til vetur á Islandi. Þessi alvöru vetrarkafli er orðinn svo langur að þeir sem voru farnir að kvarta yfir tíðarfarinu eftir fýrstu vikuna eru steinhættir að minnast á veðrið. Við sem erum fædd um miðja síð- ustu öld munum ekki annað eins. Okkur hér á Snæfellsnesinu finnst samt að við séum búin með rok- skammtinn okkar í ár og eitthvað fram á það næsta. Það verður þó að viðurkennast að rokið hefur verið óvanalega fjölbreytt, hvesst af ýmsum áttum með alls konar tilbrigðum, en ekki bara norðan- átt. Það er reyndar ákveðinn kostur eins og einn nágranni minn sagði því það sem fauk í vestanáttinni í gær, kemur vænt- anlega til baka í austanáttinni á morgun. Eða þannig. En nú er farið að styttast í jólin og að ég tali nú ekki um að daginn tekur senn að lengja á ný. Það eru tímamót sem ég bíð nú eiginlega eftir allt árið. Við í sveitinni sem enn erum að vasast í þessum hefðbundna bú- skap lifum við þá fjölbreytni að hver árstími hefur sína áherslu í lífsbaráttunni. Nú er haustverk- unum lokið, smölun lokið, búið að gera bjúgun, fýlla stampana af kjöti, hangikjötið bíður jólanna, hrútarnir í startholunum, jóla- hlaðborð og aðventukvöld yfir- staðin og við tekur hjá flestum til- tölulega rólegt tímabil yfir vetrar- mánuðina þar til vorverkin hefj- ast. Þá gefst tími til að hlaða batt- eríin, rifja upp það sem gerðist skrítið og skemmtilegt á liðnu ári (gott þegar undirbúa skal þorra- blótið) skipuleggja framkvæmdir sumarsins og auðvitað lesa jóla- bækurnar. Þó sífellt fleiri setjist að í sveit- inni og hafi afkomu af öðru en kindum og kúm dugar það ekki alltaf til að fýlla skörðin. Víða fækkar fólkinu og einnig hækkar meðalaldurinn því það er ekki á færi unga fólksins að hefja búskap í sveit nema þá að ná í konu (karl) með jörð og kvóta. Það er ekki gott mál fýrir skólana í sveitunum því það er jú unga fólkið sem er duglegast við að fjölga mannfólk- inu. Þó landið sem við lifum á sé ekki stórt, er landrýmið samt gríðarlegt ef miðað er við íbúa- fjöldann á skerinu. Þetta leiðir til þess að þar til nú allra síðustu ár hefur land verið lítils metið, með- an hver ræktanlegur blettur er gjörnýttur og verðmætur sam- kvæmt því hjá þeim þjóðum sem við berum okkur gjarnan saman við. Undanfarin ár hafa bændur ver- ið að taka við sér og stækka og tæknivæða bú sín. Um leið fækkar framleiðendum því markaðurinn stækkar ekki að sama skapi. Það sem meðal annars gerist þegar hefðbundinn kúa- og fjár- búskapur leggst af, er að land sem nýtt hefur verið til matvælafram- leiðslu eða væri nýtanlegt til þess, er nánast skipulagslaust tekið undir skógrækt, frístundabyggð og þ.h. Nytjaskógrækt er lang- tímabreyting á landnotkun, engu síður en frístundabyggð. Gæti það verið skammsýni hjá okkur að beina ekki þessari landnotkun inn á svæði sem ekki eða síður verða nýtt til matvælaframleiðslu fram- tíðarinnar? Sendi félögum mínum og ná- grönnum í Grænni skógum svo og öðrum lesendum Skessuhorns jólakveðjur af Snæfellsnesi. Halla Guðmundsdóttir, Dalsmynni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.