Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2006, Qupperneq 56

Skessuhorn - 20.12.2006, Qupperneq 56
56 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 l«r Segist vera að mjakast út ströndina Rætt við Dúfu á Ferstiklu um starfsemi kvenfélagsins og sitthvað fleira heima á Ferstiklu. GuShjörg Dúfa Stefánsdóttir í skógræktinni Um Hvalfjarðargöngin fer nú meginhluti umferðarinnar sem áður fór fyrir Hvalfjörð. íbúar jarðanna inn Hvalfjarðarströndina muna í því efai tímana tvenna. Stöðugt ónæði og mikill umferð- arniður er liðin tíð og mörgum fagnaðarefai. Það gefst þá ef til vill betra næði til að njóta fegurð- arinnar á góðum degi þar sem sag- an er margbreytileg. Sjá fyrir sér Hörð Grímkelsson í herfjötrum í Þyrilsnesi, Helgu Jarlsdóttur synda með sonu sína. Koma við í Saurbæ og skoða söguslóðir Hall- gríms Péturssonar, „er svo vel söng, að sólin skein í gegn um dauðans göng.“ Rifja upp söguna um Hvalfjörðinn og illhvelið Rauðhöfða sem blindi presturinn í Saurbæ leiddi inn fjörðinn með staf sínum og kom fyrir í vatni sem síðan heitir Hvalvam, innst í Botnsdal. Sagan segir að fyrir- gangur skepnunar hafi verið því- líkur við að ryðjast upp Botnsá og upp fossinn að vatninu að jörð hafi skolfið eins og í jarðskjálfta. Því heitir fossinn Glymur og hæð- irnar fyrir ofan Glym, Skjálfanda- hæðir. Það er stillt veður þegar rennt er að Ferstiklubænum, sólin merl- ar á firðinum og snjóhvítar Botns- súlurnar standa vörð um byggð- ina. Búið með trjáplöntur og blikkbeljur Á Ferstiklu er tvíbýli. Þar búa bræðurnir Gísli og Vífill Búasynir ásamt fjölskyldum. Að þessu sinni er ætlunin að heimsækja þau Dúfa og Vífil. Til skamms tíma höfðu þau hjónin stórt kúabú og svo lengi sem viðmælandinn man var Vífill Búason í stjórn félags mjólkur- framleiðenda. „Nú er kúabúskapurinn aflagð- ur og við bútun með trjárækt og blikkbeljur,“ segir Vífill og heldur áffam: „Við höfam lagt jörðina undir skógrækt og útihús nýtum sem geymslur fyrir húsbíla, felli- hýsi og fleira í þeim dúr, fyrir Pét- ur og Pál, eins og sagt er.“ Þar með var Vífill horfinn á braut, enda átti hann von á því að talið bærist m.a. að kvenfélaginu en þar er húsmóðirin á heimavelli. Við Dúfa erum sest yfir kaffi- bolla í eldhúsinu. Ut um eldhús- gluggann blasir gamli þjóðvegur- inn við upp í hlíðinni. Spurt er hvaðan húsfreyjan á Ferstiklu I, Guðbjörg Dúfa Stefánsdóttir komi? „Eg er fædd í Reykjavík 7. nóv- ember 1934, flyst þaðan að Litla Sandi og var tekin í fóstúr tveggja ára af hjónunum Guðmundi Jónassyni og Guðbjörgu Guðjóns- dóttur, Bjarteyjarsandi, en þar var Guðmundur fæddur. Eg var fjöreggið þeirra, því þegar ég kom til sögunnar í lífi þeirra voru þau bamlaus. Þegar ég var fimm ára, fæðist þeim fyrsti strákurinn, alls urðu bræður mínir fimm,“ svarar Guðbjörg sem alltaf er kölluð Dúfa. Það er létt yfir henni og ákveðin er hún. „Eg mjakast út ströndina," segir Dúfa á Festiklu og á þá við að næsti áfangi sé garðurinn í Saur- bæ, hún skellihlær eins og henni einni er lagið. Þegar hún er spurð um æsku sína og tilurð þess að hún settist að á Ferstiklu á Hval- fjarðarströnd segir hún: „Skóla- ganga mín var hefðbundin; far- skólinn og bústörfin heima, þau öguðu mann verulega, ég vann aldrei í Hvalstöðinni. Eg var á Húsmæðraskólanum á Varmalandi 1951-1952, þá 16 ára í byrjun skólaársins." í hálfa öld á Ferstiklu Dúfa heldur áffam: „Við Vífill giftum okkur 19. apríl 1956 í Saurbæ. Bróðir fóstra minnar Sr. Sigurjón Guðjónsson, vandaði sig við verkið því við höfam nú hald- ið upp á gullbrúðkaup okkar. Við settumst að í gamla bænum hér á Ferstiklu, innréttuðum háaloffið fyrir okkur og eignuðumst 4 börn, Guðmtmd Rúnar 1956, Búa Grét- ar 1957, Margréti Ósk fæddist 1961 og Guðbjörn Smári 1963.“ Hefðbundin kúabúskapur, barnauppeldi og heimilishaldið, hefar væntanlega tekið allar þínar stundir? „Auðvitað að mestu. Eg reyndar nýt þess að sjá tré vaxa og á mínar uppáhaldsplöntur. Þá höfum við Sísí, Sesselja Ólöf, kona Gísla, lagt talsverða vinnu í æðarvarp. Á stríðsárunum eyðilagðist nánast allt varp hér með ströndinni, ör- ugglega vegna olíumengunar. Okkur hefur tekist að bæta ástandið talsvert og eru sjaldnast færri hreiður en 150 - 200, flest hafa þau verið um 500. Tíðarfarið hefar hér áhrif, óhagstætt vor í ár og fyrra, dregur verulega úr varp- inu. Annars er tófan aðal mein- vætturinn en fuglvargur hefur einnig truflað varpið,“ segir Dúfa. ✓ Onæðissamt fyrir göng En umferðin, var hún ekki að trufla daglegt líf ykkar? „Það var að verða ólíft hérna vegna umferðarþungans. Bensín- lausir ferðamenn, sprungnir hjól- barðar, bilaðir bílar, árekstrar, út- afkeyrslur og sfysfarir, þetta var eilíft vesen. Svo ef kom illviðri, þá hraktist ferðafólk í ljósið hér á Ferstiklu og stundum þurfti að út- búa gistingu. Á daginn tók Fer- stikluskálinn við öllu þessu en ónæðið á næturna lenti á búend- um við veginn. Það var mikill létt- ir að losna við umferðina. Þetta hefar að vísu eina neikvæða hlið. Þjónustan við þjóðveginn hefar líka dregist saman. Búið að loka Olíustöðinni eða Þyrli, Botnsskál- anum og nú er Ferstikluskálinn líka lokaður yfir veturinn, í fyrsta sinn, veturinn 2005-2006 frá nóv- Hjónin Vífill og Dúfa á Ferstiklu hafa verið gift í hálfa öld. *■ Safnasvæðið Á AKRANESI Einstakt og veglegt safn safna á einum staö * CXsfttt/n^ ycstff/fi 'SC/ft otj cPe,slfe/u/i/ifjit/fi ö/ftt/ti 'tj/eóifey/Htjófct otj^/ttrstcftfttr tt /[fjjtt ttri . jföfifítt/n stt/ii'sfiib(i/i tr ttri/itt se/it cr tttl fitítt Sími 431 5566 Fax 431 5567 y. www.museum.is Netfang: museum(o’museum.is áskwm Vestlend i ng um Am 09 jViðai* mæð þðkk fyHt* samstaHfið ú ávinu að líðci T
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.