Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 57
SBESSUHOfiM
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
57
Ferstikla á Hvalfjarðarströnd.
ember tíl apríl, það er því orðið
alllangt fyrir okkur að sækja alla
þjónustu," svarar Dúfa, en segir
svo hlæjandi frá litla ferðaklúbbn-
um. ,Já, það er þannig að þrátt
fyrir hálfgert ofnæmi fyrir um-
ferðinni, þá höfum við fjórar vin-
konur haldið gangandi í tíu ár
ferðaklúbbi. Við förum einar sam-
an eina skemmtiferð á hverju
sumri. Það er bráðskemmtílegt,"
segir hún og skellir upp úr.
Dúfa gerðist stofnfélagi í
Soroptimistaklúbbsins á Akranesi.
„Það er mjög gefandi starfsemi og
góðir félagar þar,“ og nú segir hún
ffá dálítið hátíðleg. „Svo er það
blessað kvenfélagið, ekki má
gleyma því,“ og bros færist yfir
varir Dúfu. „“Tengdamamma
mín, hún Margrét, setti mig í
kvenfélagið, ég held að hún hafi
gert það um leið og hún vissi að
við Vífill værum farin að draga
okkur saman.“
Heiðursfélagi
í kvenfélaginu
„Félagsheimilið á Hlöðum var
tekið í notkun sama árið og við
Vífill giftum okkur. Með tilkomu
þess breyttist allt verulega til
bamaðar varðandi öll félagsmál.
Kvenfélagið Lilja var stofnað 15.
mars 1936 og er því 70 ára í ár. Eg
man fyrst eftir spunavél félagsins
heima á Bjarteyjarsandi. Mjólkur-
félag Reykjavíkur gaf kvenfélag-
inu fyrrverandi verslunarhús sem
stóð á Hrafneyri sem er nestáin
fyrir neðan Hrafnabjörg. Fyrir-
hugað var að koma spunavélinni í
þetta hús. Það var lélegt, hélt
hvorki vami né vindi og ekki bol-
magn til að lagfæra það, svo það
var selt. Afdrif spunavélarinnar
urðu þau að henni var komið fyr-
ir í geymslu á Saurbæ sem brann
og lauk þar með sögu spunavélar-
innar."
Og Dúfa heldur áfram: „A
hverju sumri sá kvenfélagið um
dansleik á Hlöðum. Þá seldum við
samlokur, pylsur og gosdrykki.
Við höfðum allan ágóða en lögð-
um ffam vinnuna og þrifum fé-
lagsheimilið. Kvenfélagið fór svo
að halda þorrablót í kringum
1960. Þá var allt unnið heima.
Löngu áður en svonefnt „opið
hús“ kom til sögunnar vorum við
farnar að gera hitt og þetta fyrir
yngstu kynslóðina. Má nefna
skemmtanir sumardaginn fyrsta,
við fórum í leikhús með börnin og
svo voru jólatrésskemmtanir um
hver jól. A hverju sumri var farin
skemmtiferð á vegum félagsins."
Mörg og þörf
verkefni Liljunnar
Um sögu kvenfélagsins heldur
Dúfa áfram: „Arið 1967 var hjálp-
arsjóður félagsins stofnaður með
30 þúsund króna framlagi.
Hreppurinn kom síðar að sjóðn-
um sem er í okkar höndum í dag
og með sérstaka stjórn. Kvenfé-
lögin fjögur hér sttnnan Skarðs-
heiðar fengu Dýrleifi Ármann til
að gera skautbúning. Allt silfur á
búninginn smíðaði Kristófer Pét-
ursson á Kúludalsá. Þessi búning-
ur var notaður á 17. júní í um 30
ár. Þessi gullfagri búningur er nú
varðveittur á Byggðasafninu
Görðum og er áffam í eigu kven-
félaganna. Arið 1972 var svo farin
fyrsta skemmtiferðin með hóp
aldraðra. A meðan dvalarheimilið
Höfði á Akranesi var í byggingu
var alltaf í gangi fjáröflun fyrir
bygginguna. Eftir að húsið var
tekið í notkun hefur heimilisfólk-
ið verið heimsótt með skemmtiat-
riði og spjall. Síðan má nefha að
Dagur aldraðra var haldinn hátíð-
legur í fyrsta skipti 1982.“
Dúfa segir að kvenfélagið hafi
beitt sér fyrir fjölmörgum öðrum
verkefnum. „Ekki má t.d. gleyma
öllu námskeiðahaldinu sem verið
hefur á vegum kvenfélagsins.
Hæst ber námskeið með Sigrúnu
Jónsdóttur listakonu. Það þróuð-
ust upp úr því námskeið um allt
héraðið og sýning í Reykjavík sem
var sölusýning. Hér fyrr á árum
voru kvenfélagsfundirnir alltaf
haldnir eftir hádegið, því allar
sveitakonur voru heimavinnandi.
Þessir fundir voru vandaðir, urðu
oft vinnufundir þar sem vandlega
var skipulagt það sem ffam undan
var.“
Félasheimilið brennur
Félagsheimilið að Hlöðum
brann árið 1974. „I brunanum
eyðilagðist mikið af borðbúnaði
kvenfélagsins og nýlega keypt pí-
anó. Gömlu Hlaðir stóðu eins og
margir muna á melnum hér dálít- '
ið fyrir utan Ferstiklu. Nokkrum
árum seinna var svo tekið í notk-
un nýtt félagsheimili ofan við veg-
inn og þar við er sundlaug.“
„Kvenfélagið Lilja hefur ávallt
sinnt kirkjunni okkar. Þegar Hall-
grímskirkja var vígð árið 1957
gáfu félagskonur kirkjunni hökul
sem Unnur Olafsdóttir hannaði
og saumaði. Einnig gáfu kvenfé-
lagskonur einn steindan glugga
eftir Gerði Helgadóttur. Þá keypti
kvenfélagið fermingarkirtla og sá
um þrif kirkjunnar í áraraðir á
vorin fyrir fermingar.“
Dúfa segist nú vera elst allra
starfandi kerlinga í félaginu og
þar er hún heiðursfélagi. Hún
hefur nefnt þessar vörður í sögu
kvenfélagsins dálítið dreymin.
Henni er hér með þakkað kærlega
fyrir spjallið, sérstaklega að veita
lesendum ofurlitla innsýn í starf-
semi kvenfélagsins á Ströndinni.
Starf kvenfélaga á Islandi hafa oft
verið vanmetin.
ÓG
Q&estu óskir utn cflcMega hátíð,
‘t’ókkum vQskiptin á árinu
n
SPARISJÓÐUR ÓLAFSVÍKUR
- bakhjarl í byggð
/loinanifí ái+
KpöÁÁum/
a áfH/tu &e/n eu
/ufa
VINSTRIHREYFINGIN
grænt framboð