Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 67

Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 67
MIÐVHÍUDAGUR 20. DESEMBER 2006 67 ■-f.VtllM.J Rikld fótboltakappi Rikki og Ninna nýgift og komung. Þau gengu t hjónaband ájóladag 1949. Sr. Jón M. Gutjónsson gafþau saman. Ragnheiður, elsta dóttir þeirra, varskírð sama dag. Þessi skemmtilega mynd var tekin sk'ómmu eftir að Ríkharður fermdist. Fermingarpen- ingana notaði hann m.a. til aðfata sig upp og gerði það með stæl. A höfði ber hannfor- láta Battersby hatt, sem var óskadraumur margra ungra manna. Þeir eru ekki margir mennimir sem með framgöngu sinni hafa komið bæjarfélagi sínu rækilega fyr- ir í hugum landsmanna. Það gerður þeir hins vegar án efa knattspymu- kappamir frá Akranesi sem á sjötta áraug síðustu aldar skemmtu lands- mönnvun með frækilegri framgöngu sinni á vellinum. Ekki aðeins vegna hæfileikanna sem knattspymumenn heldtu- einnig með drengilegri og líflegri framkomu. Fremstur þeirra var án efa Ríkharður Jónsson. Rikki er þekktasti knattspymu- kappi sem Island hefur afið og stun- ir segir að hann sé enn sá besti. Fyr- ir skömmu kom út saga hans sem Jón Birgir Pétursson færði í letur. Saga Rikka er saga mikilla sigra en einnig djúprar sorgar og mótlætis. Hún er saga íþróttamanns, félags- málamanns, stjómmálamanns, iðn- aðarmanns, fjölskyldumanns og Skagamanns. Það er bókaútgáfan Tindur sem gefur bókina út og hér að neðan birtast kaflar úr bóldnni. * s Islandsmeistarar IA 1951 - upphaf gullaldar Fjórði og síðasti leikur okkar í mótinu var að kvöldi 20. júní 1951, - þann dag má alveg kalla upphaf gullaldar fótboltans á Akranesi. Það kvöld unnum við Víkinga, sem áður höfðu lagt félaga mína í Fram með 4:0. Möguleikar fyrir leiká kvöldsins vom tveir, þ.e, að við töpuðum fyrir Víkingi og að Fram ynni Val. Þá hefðu Akranes og Fram, mín félög, þurft að kljást um sæmdarheitið „Besta knattspyrnufélag Islands 1951“. En svo fór ekki. Fram hafði tapað gegn Val rétt áður en við gengum til leiksins. Við gengum inn á völlinn gegn Víkingi sem sigurveg- arar, Islandsmeistarar. Við gátum þess vegna tapað leiknum. Eins og oft vill verða þegar svona stendur á, gengum við Skagamenn til leiksins nokkuð kokhraustir, ætl- uðum svona að labba í gegum þetta og mala Víkingana. Við vomm í sig- urvímu og hugsuðum kannski minna um verkefiú kvöldsins. Niðurstaðan var sú að við rétt mörðum jafntefli gegn Víkingi, 2:2 minnir mig. En eitt stig þar og sigur á Islandsmóti. Islandsbikarinn fór á Skagann!!! Það var í fyrsta sinn sem sá bikar fór út fyrir Elliðaámar ef svo má segja, aldrei hafði utanbæjarfélag unnið mótið fyrr. Eg verð að viðurkenna að nokkram vikum fyrr, þegar við fórum að undirbúa hðið fyrir þetta íslandsmót, þá datt mér ekki í hug að við ættum raunhæfa möguleika á að vinna mótið. Þessi sigur var afar óvæntur en að sama skapi mjög kær- kominn. Það var því góð tilfinning að taka við Islandsbikamum þarna vestur á Melavelfi, stór stund fyrir okkur strákana af Skaganum. Og fagnaðar- lætin vora mildl, margir heimamenn fylgdu okkur og fjölmargir Reykvík- ingar héldu með Akranesi og sóttu alla okkar leild. Hátíðahöld á bryggjuimi Heim var haldið með Laxfossi með bikarinn góða. Það þarf varla að taka ffam að stemningin var sérstök. Um borð í skipinu vora 350 ánægð- ir stuðningsmenn. Og þegar skipið lagði að hafnarbakkanum á Akranesi blasti við mannfjöldi, sagt að þar hafi beðið okkar 650 manns. Karlakór- inn Svanir, undir stjóm Geirlaugs Ámasonar söng okkur til heiðurs og Sveinn Finnsson bæjarstjóri ávarp- aði okkur og það gerði líka Guð- mundur Sveinbjörnsson formaður Iþróttabandalags Akraness. Þegar við voram komnir á fast land þurft- um við að faðma og kjassa marga eins og skiljanlegt var. Eg man að Morgunblaðið gat um móttökumar sem við fengum og Oddur fréttaritari, sá ágæti og skemmtilegi penni sagði orðrétt þetta: ,Á leiðinni heim í nótt tókst mér að taka í höndina á Ríkharði og óska honum til hamingju. Hann er nú ,Albert“ okkar Akurnesinga." Okkur var mikill sómi sýndur og það kunnum við vel að meta. Við höfð- um lagt okkur fram við æfíngarnar og það skilaði sigri, - þeim fyrsta. Shkar móttökur áttum við efitir að fá oftar á næstu áram. Sturlaugur Böðvarsson útgerðarmaður gaf Iþróttabandalaginu stórgjöf í tilefhi af Islandsmeistaratigninni, 10 þús- tmd krónur sem verja átti í þágu íþróttanna á Akranesi. Sigurinn á Is- landsmótinu hafði gríðarleg áhrif á Akranes, það var nánast bylting í knattspyrnumálum, og lyfti sjálfsáliti bæjarbúa sem fundu fyrir óvæntri upphefð. Areiðanlega hafði þetta líka sitt að segja fyrir önnur bæjarfé- lög landsins sem aldrei höfðu hugað að þátttöku í Íslandsmótinu. Þessi fyrsti sigur okkar var óvænt- ur en vannst ekki af sjálfu sér. Hann skapaðist af mikilli samheldni í lið- inu, mikilli vinnu og góðri ástundun leikmanna. Eg minnist þess ekki að hafa nokkra sinni komist í kast við samherja sem ekki vildu hlýða. Menn fóra í einu og öllu eftir því sem fyrir þá var lagt. Æskuástin „Við Ríkharður erum afin upp á Akranesi. \fið erum jafiialdrar segi ég þótt hann sé fæddur í nóvember 1929 en ég í maí 1928, sem er skýr- ingin á því að ég er svona jarðbund- in eins og ég er,“ segir Hallbera Le- ósdóttir eiginkona Ríkharðs í nærri 57 ár. „Hann er Niður-Skagamaður, ég Upp-Skagastelpa. Hann er í KA en ég í Kára, og það hatrömm Kára- stelpa sem gaf ekkert eftir.“ Hallbera er gamansöm og skemmtileg kona og talar hreint út um hlutina. Slagurinn við KA „Þetta var mikill slagur milli félag- anna. Við stelpumar vorum víst ekk- ert betri í þeirri baráttu sem var innan vallarins sem utan. Pabbi minn sótti ekki mildð íþróttir, en einhverju sinni var hann að horfa á leik KA og Kára á gamla íþróttavellimmi og varð vitni að atviki sem honum líkaði illa. I kringum gamla malarvöllinn var skurður, mýrarrauða hafði safiiast á botninn, eirlituð drulla, sem litar fatnað og festist á húð. Nú þama var einhver KA-stelpa á skurðbarminum og var að segja eitthvað sem okkur Kkaði ekki. En ég var óheppin, ég var ekkert að hrinda stelpimni, bara ýtti vel við henni, og hún endasent- ist ofan í skurðinn og var heldur óffýnileg á eftir. Eg fékk góðan fyr- irlestur hjá pabba þegar heim var komið, þess vegna er mér þetta svo minnisstætt." Hvenær sástu Ríkharð fyrst? „Það var held ég þegar bekkurinn hans var að æfa leikrit. Þessir krakk- ar vora árinu yngri og maður hafði ekki neitt samneyti við stráka sem vora svona ungir. Þama stóð Rík- harður uppi á sviði og lék héra, hugsaðu þér. Og hann var skotinn í fyrsta þætti! Þetta fannst manni vígalegt í meira lagi. KA-randaflug- an skotin, en það kölluðum við þessa gutta, randaflugur. Nei, maðvur var ekki hrifinn af strákum í stuttbuxum og ullarsokkum eins og drengimir vora þá. Eg held að hann Ríkharður hafi ekld verið neitt sérstaklega eftir- tektarverður. Einu sinni voram við stelpumar að spásséra rúntinn þegar Ríkharður kemur þessi elska á hjól- inu sínu, rosalega flottur. Hann fór að sleppa stýrinu og vingsa hand- leggjunum um allt, en allt í einu fór hann beint ofan í drullupoll og datt hann með miklum tilþrifum á jörð- ina og var heldur lúpulegur en við hlógum okkur máttlausar," segir Hallbera og hlær dátt. Ríkharður skoraði eitt sinnfjögur m 'órk í landsleik gegn Svíum og reyndarfimm en eitt var dæmt af. Þessum úrslitum varfagnað um land allt. Félagar Ríkharðs hófu hann á gullstól og báru til búningsklefa. Frá vinstri: Karl Guðmundsson, Sæmundur Gíslastm og Þórður Þórðarson. Ríkharður og Hallbera ásamt bamahópnum árið 1969. Yst til vinstri er Ingunn Þóra, þá Málfríður Hr 'ónn, Sigrún og Ragnheiður. Ríkharður heldur ájóni Leó nýfæddum og við hlið hans er eiginkonan Hallbera Leósdóttir. Myndina tók Helgi Daníelsson. Að myndatöku lokinni spurði Helgi Sigrúnu hvenær litli bróðiryrði skírður. Sigrún svaraði að bragði: I hálfleik! Fögnuður í heimabyggð. Þegar Skagastrákamir komu til Akraness með Laxýoss seint um kvöld beið þeirra múgur og margmenni á bryggjunni. Ríkharður heldur á Islandsmeist- arabikamum, enfyrir aftan hann á vinstri hönd má sjá Guðjón Finnbogason, Svein Teitsson og Þórð Þórðarson, en þeir voru allir miklir vinir ogfélagar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.