Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2006, Page 68

Skessuhorn - 20.12.2006, Page 68
<r MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 68 I stuttu jólaleyfi frá stífii námi Rætt við Brynju Þorbjörnsdóttur, fyrrum útibússtjóra en núverandi námsmann af Hvalfjarðarströnd Brynja við tölvuna heima á Kalastöðum. Jafnan vekur athygli þegar það spyrst út að fólk á miðjum aldri tekur sig upp og hefúr nám. Hvað þá ef námið er sótt á erlendum vettvangi og enn frekar ef það er sótt í mörgum löndum. Brynja Þorbjörnsdóttir býr á Kalastöðum II með bónda sínum Þorvaldi a Magnússyni. Hafa þau til skamms tíma búið þar með hefðbundinn búskap, kýr og fé, og alið upp þrjú börn. Börnin eru löngu flogin úr hreiðrinu og búskapurinn aflagður. Þorvaldur vinnur við smíðar og Brynja hefúr sinnt ýmsum störfum utan heimilisins en stundar nú framhaldsnám og fjarnám við Thunderbirdskólann, Glendale í Arizona og stefnir á að ljúka Global MBA námi á næsta ári. Það spurðist að Brynja væri nú stödd í jólaleyfi heima á Kalastöð- um II. Hún gaf sér stund frá heimanámi og jólaundirbúningi, þegar hún var spurð hvort mætti tefja hana lítillega og forvitnast um skólann og ferðalög hennar. Akurnesingxir öll ungdómsárin „Eg er fædd á Akranesi 7. júní 1958 og uppalin þar, sótti hefð- bundin skóla, var skáti og starfaði með Skagaleikflokknum, lærði til sjúkraliða og vann á sjúkrahúsinu. Við Þorvaldur kynntumst ung og fyrsta barnið okkar Rakel Bára, ■+ fæddist 1976. Hún er nú vélaverk- fræðingur í Danmörk. Reyndar eru öll börnin okkar í Danmörk um þessar mundir. Bjarki Þór fæddist 1981 og er rafmagnsverk- fræðingur og stundar nú fram- haldsnám í Danmörku. Yngst er íris Björg fædd 1984. Hún er að læra hjúkrun, en hefur tekið það með nokkrum tilbrigðum. Hún byrjaði að læra hjúkrun í Kanada, fór þaðan til Danmerkur og tók síðan eina önn á Irlandi, en er aft- ur komin til Danmerkur" segir Brynja. %■ Fór í nám á Bifröst Brynja hikar nú ögn við, eins og hún sé á báðum áttum en segir svo: „Mig langaði alltaf í meira nám en fannst margir þröskuldar í veg- inum. Ég hafði aldrei setið við tölvu, aldrei lært bókfærslu eða t vélritun en var góð í tungumálum. Eg sá auglýsingu frá Bifföst og vissi að rekstrarfræði væri eitthvað sem mig langaði til að læra. Á hinn bóginn var Iris Björg fimm ára, drengirnir 8 og 13 ára, þannig að ég vissi að þetta yrði mikið álag á mig og fjölskylduna.11 Hér bros- ir Brynja, þagnar aftur og segir svo ákveðin: „Eg held að Jón Sigurðs- son sem þá var skólastjóri á Bifröst hafi aldrei fengið jafn undarlega upphringingu og hann fékk frá mér. Eg ákvað að hringja í hann og lagði spilin á borðið. Nema hvað, hann var svo jákvæður og ákveðinn í að ég skyldi láta reyna á hvort ég kæmist ekki í skólann. Þetta réði úrslitum. Við þetta samtal tví- efldist ég í vissu um að láta á þetta reyna, tók Irisi Björgu með uppeft- ir haustið 1989 og náminu lauk ég á þremur árum. Eg stend í þakkar- skuld við Jón og ber mikla virð- ingu fyrir honum. Hann var eigin- lega bjargvættur á þessum tíma.“ Söðlað um Síðan rekur Brynja stuttlega starfsferil sinn eftir að námi lauk á Bifröst: „Fyrst vann ég hjá Markaðsráði Borgarness sem var fullt starf fram á haust, en átti að liggja niðri yfir veturinn. Því leitaði ég á önnur mið og 1993 fékk ég starf sem at- vinnufulltrúi á Akranesi en hóf svo störf hjá íslandsbanka 1996 og var þar í 9 ár. Á þessum árum kom oft fram löngunin til að halda áfram námi en starfið í bankanum var krefjandi. Ég vissi að ef ég ætlaði að gera eitthvað í þessu þá þyrfti ég að hætta í bankanum og leita að starfi sem hægt væri að sinna námi samhliða, þó svo það hafi ekki gengið upp þegar til kom út af öll- um ferðalögunum. Eg taldi mig einnig þurfa að hressa upp á tungumálkunnáttuna því ég hafði ekki notað hana mikið hjá bankan- um. Svo var það 2005 að ég fékk starf á Evrópumiðstöð Impru á Iðntæknistofnun. Þarna vann ég við að aðstoða íslensk fyrirtæki og frumkvöðla við að leita sér að sam- starfsaðilum í Evrópu ásamt öðr- um áhugaverðum verkefnum. Þar fékk ég góða þjálfun í að rita ensk- an texta. Á þessum tíma skoðaði ég marga möguleika á áframhaldandi námi. Ég staldraði við Thunder- bird í Arizona, þar voru ljón í veg- inum en afar áhugavert nám.“ Thunderbird kennir einum hópi á ári í Evrópu og þarna veljast inn einstaklingar allsstaðar úr heimin- um.“ Draumurinn rætíst Brynja lýsir nú býsna flóknu ferli við að komast að í skólanum og segir að alls hafi það tekið um fjóra mánuði frá því umsóknarferlið hófst og þar til því lauk á síðast- liðnu vori. „Við erum 24 nemendur frá 11 þjóðlöndum, t.d. frá Indlandi, Brasilíu, Kuwait, Rússlandi og USA. Allir með mjög mikla stjórnunar- reynslu af fjöl- breyttum svið- um. Kennararnir eru allir há- menntaðir og all- ir mjög reynslu- ríkir ffá störfum í atvinnulífi eða fyrir ríki. Við fáum góða innsýn í menningarleg viðhorf hinna ýmsu þjóða og hópurinn miðlar sinni reynslu af stjórnun við ólíkar aðstæður. Þá fæst líka glögg mynd af því hvernig suðupottur það er þegar rekast saman ólík trúarbrögð og viðskipti,“ segir Brynja. Hún nefndi sem dæmi um ólík viðhorf í afstöðu til gjafa. „I Kuwait eru gjafir í viðskiptum hinn eðlilegasti hlutur en hér heima á Islandi er oftast litdð á gjafir sem mútur. Námið er sótt allfast því við erum í tímum allan daginn til klukkan 18. Fyrir utan hádegisverðarhlé eru aðeins 15 mínútur tvisvar sinnum. Á kvöldin er svo sinnt ýmsum verkefnum sem eru bæði hóp- og einstaklings- bundin." * Utrás íslenskra fyrirtækja Spurð um hvort sé þá sé ekki gott að geta skotist heim og notið jólaleyfisisins, hlær Brynja við og segir jólafríið hér heima núna vera vinnufrí. Hún segist þurfa bæði að skila verkefnum og prófum. „Klukkan gengur á mig ytra, ég þarf því að halda stíft við áætlun til að ná að skila af mér. Hef að vísu verið að lenda í hremmingum, því nettengingin sem við erum með hér heima frá Emax hefur stöðugt verið að svíkja mig.“ „Við erum tvær héðan frá Islandi í þessu námi, ég og Lára Jónas- dóttir sem hefur starfað hjá Sjóvá, íyrstu nemendurnir frá Islandi í Thunderbird Europe sem er hald- ið í samstarfi við CMC í Tékk- landi. Við vorum að ljúka verkefni fyrir tvö fyrirtæki hér á landi sem hafa áhuga á að flytja hluta starf- seminnar erlendis. Þetta tengist einu fagi sem við vorum að klára og fólst í frumathugun á tveimur löndum, ég tók Singapore og Slovakíu, en Lára var með Ví- etnam og Rússland," segir hún. Flakk framundan Framundan hjá Brynju er ströng tímasett verkefnaáætlun til ágúst- mánaðar á næsta ári. „Þann 4. janúar fer ég til Arizona, til höfuðstöðva skólans. I febrúar til Prag, þar er m.a. kennt í húsnæði þar sem síðasti mið- stjórnarfundur Kommúnista- flokksins var haldinn. I mars fer ég til Kína, í apríl er það Prag, í júní er það Moskva og júlí aftur til Prag“, segir Brynja. En hvað með jólahaldið hér heima, nærðu fjölskyldunni saman um jólin? ,Já, þau koma tvö börnin okkar heim og ég er búin að fá matseðil- inn frá Kaupmannahöfn. Það verð- ur kalkúnn á aðfangadagskvöld," segir húsmóðirin á Kalastöðum II að lokum. ÓG Allir nemendumir, staddir í Sviss. * Frá heimsókn til WTO (World trade organization) í Sviss. F.v. Brynja, Lára og Tatíanafrá Rússlandi. Hún er sérfrœiiingur hópsins í spilavítum og lúxus hótelum og ein af 5 topp sljómendum í 6 þiísund manna jýrirtœki. -*

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.