Morgunblaðið - 27.06.2019, Síða 1

Morgunblaðið - 27.06.2019, Síða 1
F I M M T U D A G U R 2 7. J Ú N Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  149. tölublað  107. árgangur  ATVINNUBLAÐ MORGUN- BLAÐSINS MYNDLISTAR- KEPPNI ÞJÓÐANNA SEGIR SÖGU SEM SKIPTIR MÁLI FENEYJATVÍÆRINGURINN 62 GLOWIE GEFUR ÚT 64FINNA VINNU 5 SÍÐUR Vaxtalækkanir hjálpa » Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, segir vaxtalækkunina í gær munu örva íbúðamarkaðinn. » Kaupmáttur hafi haldist sterkur og verðbólga lítil. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fjárfestar hafa endurmetið sölu- áætlanir nýrra íbúða í miðborginni og gera jafnvel ráð fyrir hverfandi hagnaði vegna dræmrar sölu. Einn fjárfestirinn áætlaði að salan tæki 12 mánuði en miðar nú við 18 mánuði vegna aðstæðna. Annar fjár- festir gerir nú ráð fyrir að 12 mán- uðir bætist við sölutímann. Slíkar tafir geta þýtt mikinn vaxtakostnað. Annar húsbyggjandi sagði fjár- festa ekki tilbúna að leggja fé í upp- byggingu íbúða í miðborginni við þessar aðstæður. Sá markaður væri enda „ekki nógu spennandi“. Nú eru til sölu 330 íbúðir í tíu nýj- um fjölbýlishúsum í miðborginni. Þær fyrstu komu á markað síðla árs 2017 og eru einhverjar enn óseldar. Hluti er nýkominn í sölu. Miðað við að meðalverðið sé 55 milljónir er samanlagt söluverð óseldra íbúða rúmir 18 milljarðar. Um 240 íbúðir til viðbótar koma á markað á næst- unni og kemur mikill meirihluti þeirra á næstu 12 mánuðum. Þá eru á annað þúsund miðborgaríbúðir á ís eða á teikniborðinu. Rúmur þriðjungur seldur  Um 330 nýjar íbúðir í miðborginni eru óseldar  Það eru um 64% af framboðinu  Fjárfestar stíga á bremsuna  Um 240 íbúðir til viðbótar eru á leið á markað M64% miðborgaríbúðanna … »24 Sólin skein glatt og hiti náði 29 stigum á Austur- landi í gær. Nemendur í vinnuskóla Fljótsdals- héraðs fóru í stórfiskaleik í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum í lok vinnudags. Ferðamenn flykkjast nú á svæðið þegar margra vikna sólskinstíð á sunnanverðu landinu er búin í bili og tjaldsvæðið á Egilsstöðum var þétt setið í gær. „Við segjum að hamingjan sé á tjaldsvæðinu hér, hvaðan er stutt að sækja alla þjónustu eða fara á áhugaverða staði í nágrenn- inu,“ segir Margrét Árnadóttir sem veitir tjald- svæðinu forstöðu. Stórfiskaleikur í sólinni á Egilsstöðum Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson Einmunablíða var á Austurlandi í gær  Mikil tímamót verða á Alþingi 1. september nk. þegar Helgi Bernódusson lætur af starfi skrifstofustjóra Alþingis og við þessu starfi æðsta embættis- manns þingsins tekur Ragna Árnadóttir, fyrst kvenna. Embættið er að stofni til frá árinu 1593 þótt starfsheitið hafi breyst síðan þá. Karlar, alls rúm- lega 40 talsins, hafa fram til þessa haft þetta starf með höndum og því má segja að 426 ára vígi karla sé að líða undir lok með komu Rögnu. Á upphafsárunum voru karlarnir sem starfinu gegndu ýmist kallaðir alþingsskrifarar eða lögþingsskrif- arar. Embætti skrifstofustjóra Al- þingis var gert að föstu starfi árið 1915. Síðan þá hafa fimm karlar gegnt því. »26 Ragna rýfur karla- vígi til 426 ára Ragna Árnadóttir „Við lítum svo á að þetta standi öll- um þeim sem eru með lausa kjara- samninga hjá okkur til boða,“ segir Sverrir Jónsson, formaður samn- inganefndar ríkisins, um sam- komulag um frestun kjaraviðræðna fram í ágúst. Í samkomulaginu felst 105.000 króna fyrirframgreiðsla sem hver fé- lagsmaður fær greidda fyrsta ágúst vegna væntanlegra launahækkana og friðarskylda til 30. september. Fjögur stéttarfélög hafa gengist undir samkomulagið en Bandalag háskólamanna, BHM, er ekki fylli- lega sátt við það. Þórunn Sveinbjarnardóttir, for- maður BHM, segir ákvæði um frið- arskyldu óviðeigandi. „Friðarskylda á einfaldlega ekki við núna, það gildir friðarskylda þeg- ar kjarasamningar eru í gildi, lögum samkvæmt. Nú hafa kjarasamningar verið lausir í tæplega þrjá mánuði og við erum í samningaviðræðum við ríkið.“ »4 105.000 krónur fyrir fram  Samkomulag um frestun viðræðna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.