Morgunblaðið - 27.06.2019, Side 8

Morgunblaðið - 27.06.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2019 Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Mán.–Fös. 09–17 Glæsilegar danskar innréttingar í öll herbergi heimilisins Morgunblaðið flutti fréttir af þvífyrr í vikunni að unglingar í Hagaskóla hafi þurft að búa við ófull- nægjandi loftgæði í skólanum og liðið fyrir. Ingibjörg Jósefs- dóttir skólastjóri lýsti miklum áhyggjum vegna þessa og sagðist ekki fá nein svör.    Hún sagði að hennihefði verið bent á það af sviðsstjóra á skólasviði borgarinnar að ná fundi með borg- arstjóra og það hefði hún reynt.    Hún hefði óskaðeftir fundi með honum án árangurs og farið eftir það þá leið sem öllum borgarbúum á að vera fær, að senda boð í gegnum vef- síðu borgarinnar og óska fundar með borgarstjóra.    Rúmum fimm vikum síðar hafðihún ekki fengið svar.    Þetta er fjarri því eina dæmið umsamskipti, eða öllu heldur sam- skiptaleysi, borgarstjóra við borg- arbúa.    Ítrekað hafa komið fram kvartanirum að borgarstjóri sé ekki til við- tals og ýmist svari ekki eða láti vísa á aðra.    En það hlýtur að vera mikið að efjafnvel skólastjórar í skólum borgarinnar fá ekki svar frá borg- arstjóra og gefst ekki kostur á fundi.    Allir skilja að borgarstjóri er upp-tekinn við að klifra upp á vitana í borginni, en gæti hann ekki samt sýnt skólastarfinu þar ögn minna áhugaleysi? Ingibjörg Jósefsdóttir Má biðja um minna áhugaleysi? STAKSTEINAR Dagur B. Eggertsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja á mánudag var lagt til að lundaveiðitímabilið þetta árið stæði í rúma viku, þ.e. dagana 8.-15. ágúst. Er tímabilið sem lagt er til því tveimur dögum lengra en það sem lagt var til í fyrra, þegar það stóð frá 10. til 15.ágúst. Virðist þróunin því vera í þá átt að lengja veiðitímabilið, en til saman- burðar má nefna að aðeins þrír veiði- dagar voru leyfðir árin 2015 til 2017. Í fundargerð ráðsins kemur fram að ráðið telur afar mikilvægt að stýr- ing veiða á lunda í Vestmannaeyjum taki á öllum stundum fyrst og fremst mið af viðkomu stofnsins. Samkvæmt lögum er veiðitímabil lunda að öllu jöfnu frá 1. júlí til 15. ágúst eða 46 dagar. Í fundargerðinni segir einnig: „Reynsla síðastliðinna ára hefur sýnt að þeir fáu dagar sem lundaveiði er heimiluð eru nýttir til þess að við- halda þeirri merkilegu menningu sem fylgir veiðinni og úteyjarlífi almennt. Þá er tíminn nýttur til að viðhalda húsnæði úteyjanna og huga að öðru sem fylgir úteyjunum. Lundaveiði- menn hafa sýnt ábyrgð í veiðum sl. ár og veiðifélögin eru áfram hvött til að standa vörð um sitt nytjasvæði og upplýsi sína félagsmenn um að ganga fram af hófsemi við veiðarnar.“ Leggja til lengra lundaveiðitímabil  Taka mið af viðkomu stofnsins  Lundaveiðimenn hafa sýnt ábyrgð Morgunblaðið/Eggert Eyjar Ef tillagan verður samþykkt verður lundinn veiddur í viku. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Listaverkið „Orbis et Globus“, er ekki á leiðinni úr Grímsey í bráð, að minnsta kosti ekki fyrr en árið 2047 þegar heimskautsbaugurinn yfrgefur eyna. Þetta staðfestir María Helena Tryggvadóttir, verkefnastjóri ferða- mála á Akureyrarstofu, en frá því var greint í Morgunblaðinu í gær að nokk- urrar óánægju hafi orðið vart meðal Grímseyinga um listaverkið. „Heimskautsbaugurinn er sam- kvæmt eðli sínu ekki stöðugur. Hann hreyfist. Það var það sem var á bak við þetta listaverk hjá Kristni Hrafns- syni og Studio Granda, að láta lista- verkið sýna eðli náttúrulegs fyr- irbæris,“ segir María. Hún segist vita til þess að skiptar skoðanir séu á kúlunni en frá því að kúlan kom í Grímsey 2017 hefur Grímseyingum þótt ferðamenn verja minni tíma í bænum. „Samgöngur eru þannig að stoppið í Grímsey er það stutt að ferðamenn gera sér ekki grein fyrir því hvað felst í því að labba norður á Fót að heim- skautsbaugnum. Þeir auðvitað heillast af eyjunni og þetta tekur lengri tíma en þeir gera ráð fyrir.“ María segir Akureyrarbæ hafa breytt áherslum í markaðssetningu Grímseyjar vegna þessa og mæli nú með að fólk dvelji í eina nótt á eyjunni vilji það stíga yfir bauginn. Hún segir ógerlegt í nútíma- samfélagi að ferðamenn sætti sig við ranga staðsetningu heimskautsbaugs- ins. „Í dag eru allir með síma með GPS,“ segir María. „Sumir labba bara sjálfir með símann sinn og finna ná- kvæmlega hvar baugurinn er.“ Spurð um þá gagnrýni sem aðkom- an að kúlunni hefur fengið, en henni hefur verið lýst sem drullusvaði, segir María að bærinn hafi í tvígang sótt um styrki til að lagfæra hana en ekki hlotið þá. Segir hún aðkomuna þó vísbend- ingu um að listaverkið sé mikið að- dráttarafl fyrir eyjuna og bjóði upp á tækifæri fyrir ferðaþjónustuna á Grímsey. Kúlan ekki úr eynni fyrr en árið 2047  Mæla með að fólk dvelji yfir nótt í Grímsey Umdeild Kúlan í Grímsey.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.