Morgunblaðið - 27.06.2019, Síða 16

Morgunblaðið - 27.06.2019, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2019 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin • Síðbuxur • Kvartbuxur • Jakkar • Pils • Töskur 30% afsláttur TILBOÐ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Séð af Sandafelli ofan við Þingeyrar- kauptún er Höfðafjall sem er norðanmegin við Dýrafjörð, fagur- blátt. Frá vegi neðan úr flæðarmáli upp á efstu brún er fjallið nánast algróið lúpínu sem hefur breitt hratt úr sér á undanförnum ár- um. Þetta vekur athygli. Víða á landinu eru víð- feðmar breiður lúpínu sem bind- ur jarðveg og hef- ur reynst góður undanfari annars gróðurs. Á höfuð- borgarsvæðinu má í þessu efni til- taka Keldnaholt, Úlfarsfell og Esju- hlíðar við Mógilsá. Á Vesturlandi eru stór svæði í Hvalfirði og Skorradal lúpínugróin, á Norðurlandi vestra í Vesturhópi og við Þingeyrar, á Norðurlandi eystra er nærtækt að nefna uppgræðslusvæði á Hólasandi. Á Suðurlandi má tiltaka Haukadals- heiði, Þjórsárdal og Mýrdalssand. Að sjá heilt fjall í hinum bláa lit jurt- arinnar er þó sennilega einsdæmi. „Áður fyrr var rof og landeyðing í fjallinu svo jarðvegur var að hverfa. Nú hefur allt slíkt verið stöðvað. Hér í fjallinu sjáum við hvernig lúpínan virkar best, berar skriður eru að gróa upp og vantsheldni í jarðveg- inum er meiri sem aftur eflir allan annan gróður, svo sem birki og ýms- ar grastegundir, “ segir Sighvatur Jón Þórarinsson, bóndi á Höfða, í samtali við Morgunblaðið. Framvindan er hröð Víða í Dýrafirði og á nálægum slóðum eru miklar lúpínubreiður og er reynslan góð. „Frumkvæðið um notkun lúpínu kom frá Landgræðsl- unni og sem landeigandi samþykkti ég þessa uppgræðsluaðferð,“ segir Sighvatur. „Það var haustið 1997 sem lúpínufræi var sáð í mela og illa gróin svæði í hlíðinni og árið eftir voru lúpínuplöntur gróðursettar í fjallið í láréttum línum. Eftir það hefur framvindan verið hröð og tel ég að lúpínan sé hraðvirkasta leiðin sem við höfum til þess að skapa líf- massa á örfoka landi, auk þess sem jurtin bindur kolefni vel í jarðveg- inum. Lúpínan er því öflugur frum- herji ef svo má segja.“ Spýtur til að tálga Umfangsmikil skógrækt er stund- uð á Höfða í Dýrafirði. Í sumar verða þar gróðursett um 12 þúsund plöntur: sitkabastarður, rússalerki, alaskaösp, stafafura, birki og reyni- viður. Fyrir er á jörðinni talsverður skógur eftir gróðursetningu sl. 20 ára og er birki í meirihluta á jörðinni. Einnig stæðilegar aspir í skjólbelt- um sem sumar eru 14 m háar. „Ég vænti þess að elsti hluti skóg- arinns verði orðinn til nytja eftir um tuttugu til þrjátíu ár. Í dag er hér ekki annað að hafa en spýtur til að tálga,“ segir Sighvatur á Höfða. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Dýrafjörður Fjarlægðin gerir fjöllin blá, segir máltækið. Það gerir lúpínan raunar líka eins og hér sést í Höfðafjalli. Fjallið er fagurblátt  Höfðafjall við Dýrafjörð er algróið lúpínu  Sennilega einsdæmi  Góður undanfari annars gróðurs, segir bóndi Sighvatur Jón Þórarinsson Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Sífellt fleiri börnum er vísað til Greiningar- og ráðgjafarmið- stöðvar ríkisins (GRR) og tæplega þriðjungur þeirra er af erlendum uppruna, en tilvísunum meðal þeirra barna hefur fjölgað sér- staklega á árinu 2018. Grunur var um einhverfuröskun hjá flestum börnum sem send til greiningar hjá stofnuninni á árinu, eða hjá 67% þeirra. Þetta kemur fram í ársskýrslu GRR. Þar segir enn fremur að tilvís- anafjöldinn sé umfram það sem stofnunin geti annað, miðað við nú- verandi fjölda starfsmanna og verklag. Of löng bið sé eftir grein- ingu og annarri þjónustu stofn- unarinnar. Sólveig Sigurðardóttir, stað- gengill Soffíu Lárusdóttur, for- stöðumanns Greiningar- og ráð- gjafarmiðstöðvar ríkisins, segir að orsök fjölgunar tilvísana sé meðal annars sú að fleiri börn búi hér- lendis nú en áður. Spurð hvort börn af erlendum uppruna eigi erfitt með að aðlagast kerfinu á Íslandi segir hún: „Tvítyngd börn af erlendum uppruna eru einhverra hluta vegna ekki að aðlagast kerfinu hérna nægilega vel. Þetta er náttúrulega nýtt málumhverfi, þau eru mörg hver ekki fullfær í íslensku og það kemur niður á samskiptum þeirra við hin börnin í leikskólanum og námsstöðu þeirra í grunnskóla, eins og við höfum heyrt ann- arsstaðar í kerfinu.“ Af öllum tilvísunum sem bárust á árinu 2018 áttu 105 börn (29%) erlent foreldri, annað eða bæði. Fjölskyldurnar komu frá 37 þjóð- löndum. Langflestar komu frá Pól- landi eða 28, tíu fjölskyldur komu frá Filippseyjum, níu frá Litháen og sex frá Taílandi. Spurð hvers vegna stofnunin standi í ströngu með að sinna eft- irspurninni segir Sólveig að fjár- skortur sé vandamál annars vegar en hins vegar líti liðsmenn stofn- unarinnar í eigin barm, til lausnar vandamálsins: „Við erum að leita eftir sam- starfi við sveitarfélögin í þeim til- gangi að skoða hvort hægt sé að breyta vinnulaginu þannig að stofnunin komi fyrr að málum.“ Tvö samstarfsverkefni eru í burðarliðnum, annars vegar lands- hlutasamstarf og hins vegar sam- starf við Reykjavíkurborg. Sífellt fleiri bíða eftir greiningu  Tæpur þriðjungur tilvísana til GRR varðar börn af erlendum uppruna Mikil fjölgun » Á árinu 2018 bárust Grein- ingar- og ráðgjafarmiðstöð rík- isins 366 tilvísanir. » Í 67% tilvika var til staðar grunur um einhverfurófs- röskun. » Af öllum tilvísunum áttu 105 börn erlent foreldri, annað eða bæði. » Að jafnaði berast mun fleiri tilvísanir fyrir drengi en stúlk- ur en 70% tilvísana árið 2018 voru fyrir drengi. » GRR á í erfiðleikum með að anna eftirspurninni. » Bið eftir greiningu er „of löng“. Tilvísanir fyrir börn af erlendum uppruna Fjöldi tilvísana sem bárust Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins 2000-2018 70 60 50 40 30 20 10 0 Annað foreldri erlent Báðir foreldrar erlendir Heimild: Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, ársskýrsla 2018 105 börn áttu erlent foreldri (annað eða bæði) árið 2018 Fjölskyldurnar komu frá 37 þjóðlöndum ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 65 40 28 39 47 Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fyrrverandi stjúpdóttur sinni. Hann var dæmdur til að greiða henni 1,8 milljónir króna í miska- bætur og þóknun skipaðs verjanda síns upp á tæpar 1,7 milljónir króna. Brotaþoli hafði krafist fjögurra milljóna króna í miskabætur. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa 15. desember 2017 á heimili sínu nýtt sér yfirburði sína gagnvart henni. Hann var sambýlismaður móður stúlkunnar. Brotaþoli lýsti í skýrslutöku því að eftir að móðir hennar og ákærði hefðu skilið að skiptum hefði ákærði farið að koma skringilega fram við sig. Þetta hefði gerst í svokölluðum pabba- helgum. Ákærði hefði þá talað við hana eins og hún væri fullorðin. Nánar tiltekið hefði hann komið fram við hana eins og hún væri kærastan hans. Braut gegn fyrrverandi stjúpdóttur Héraðsdómur Reykjaness Mað- urinn fékk tveggja og hálfs árs dóm.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.