Morgunblaðið - 27.06.2019, Side 24
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Síðastliðinn þriðjudag var 331 af 519
íbúðum óseld á tíu þéttingarreitum í
miðborg Reykjavíkur. Um 36% íbúð-
anna eru því seld.
Tölurnar eru fengnar af sölu-
vefjum umræddra verkefna. Þær
kunna í einhverjum tilvikum að vera
úreltar. Sé sú raunin er salan meiri en
hér er gefið til kynna. Einn húsbyggj-
andinn sagðist vera með tilboð í
margar íbúðir. Með sölu þeirra verði
farið að sjást til lands.
Enn fleiri íbúðir eru á leið í sölu í
miðborginni eða í pípunum. Á
skömmum tíma eru um 760 íbúðir að
koma á markað frá Kirkjusandi til
Hörpusvæðisins. Smáverkefni eru
undanskilin. Á annað þúsund íbúðir
til viðbótar eru áformaðar í miðborg-
inni, ásamt því sem uppbygging
fjölda íbúða er áformuð við Hlemm.
Margt ber að hafa í huga við slíka
samantekt. Reitirnir eru ætlaðir mis-
munandi markhópum og innan þeirra
eru fjölbreyttar íbúðir. Dýrustu íbúð-
irnar eru á Hafnartorgi og á Höfða-
torgi en þær geta kostað fullbúnar á
þriðja hundrað milljónir.
Fram kom í Morgunblaðinu á
þriðjudaginn var að sérfræðingar
telja að mögulega þurfi að endurmeta
væntingar um söluverð nýrra lúxus-
íbúða í miðborginni. Salan hefur verið
hæg undanfarið.
Sölutíminn lengst um 50%
Húsbyggjandi sem Morgunblaðið
ræddi við hefur endurmetið áætlaðan
sölutíma íbúða sinna í miðborginni úr
12 mánuðum í 18. Hann benti á hækk-
andi byggingarkostnað vegna launa-
hækkana og veikari krónu. Verðið
verði fryst í einhvern tíma en svo að
líkindum hækkað þegar gengur á
framboðið.
Viðmælandinn hafði það eftir fast-
eignasölum að beðið væri eftir útspili
ríkisstjórnarinnar varðandi aðstoð
við fyrstu kaupendur. Rætt var um
15-30% eiginfjárlán frá ríkinu en sú
lagasetning er áformuð í haust.
„Fasteignasalar segja að litlar
tveggja herbergja íbúðir hreyfist
ákaflega lítið þar til þetta útspil
stjórnarinnar kemur,“ sagði hús-
byggjandinn og benti á að markaður-
inn hafi lítið hreyfst í vor. Kjaradeilur
og gjaldþrot WOW air hefðu haft nei-
kvæð áhrif á markaðinn.
Húsbyggjandinn taldi aðspurður
það ekki vera mistök að skipuleggja
svo margar íbúðir í miðborginni sem
afhentar eru á svipuðum tíma.
„Uppbyggingin hefði hins vegar
mátt vera blandaðri. Það hefði ekki
átt að hætta uppbyggingu í úthverf-
unum sem er ódýrari. Íbúðir niðri í
bæ eru dýrari og henta alls ekki eins
vel fyrir fjölskyldufólk. Það er gjarn-
an mikið um ungt fólk og eldra fólk í
miðbænum en minna um barnafjöl-
skyldur. Framboðið er hins vegar
tímabundið. Það mun ganga á það.
Fjölskyldumynstrið á Íslandi er að
breytast. Margar íbúðanna falla vel
að því,“ sagði hann.
Fara yfir í ódýrari íbúðir
Annar húsbyggjandi sagði búið að
byggja margar stórar íbúðir í hæsta
gæðaflokki í miðborginni. Reikna
megi með að hægja muni á uppbygg-
ingu slíkra íbúða á svæðinu og áhersl-
an færast á hagstæðari íbúðir.
„Það er töluvert síðan húsbyggj-
endur fóru að deiliskipuleggja fyrir-
hugaða reiti með þetta í huga,“ sagði
húsbyggjandinn og nefndi tvö til þrjú
ár í þessu samhengi. Það hefði vantað
venjulegar íbúðir af hæfilegri stærð.
Sala íbúða sem eru 130 fermetrar eða
stærri væri þung. Spurður hvort það
eigi þátt í þessu framboði að lána-
stofnanir láni frekar til smíði dýrari
íbúða en ódýrari telur hann svo ekki
vera. Málið snúist fremur um skipu-
lagsmál. Það hafi tekið langan tíma að
finna leiðir til að smíða minni íbúðir.
„Byggingarreglugerðin er kapítuli
út af fyrir sig. Á undanförnum árum
hefur hún bannað venjulegar smá-
íbúðir. Þær urðu að vera 40-50 fer-
metrar til að standast reglugerð. Eins
og annars staðar þurfa margir á Ís-
landi ekki svo stórar íbúðir.“
Húsbyggjandinn benti svo að-
spurður á tímatöf á markaðnum.
„Við höfum séð það í gegnum tíðina
að það er gjarnan skipulagt á vitlaus-
um enda á hagsveiflunni. Vegna tafa í
skipulagsferli koma íbúðirnar í sölu
þegar kröfurnar eru breyttar,“ sagði
maðurinn sem taldi það einnig hafa
haft áhrif á markaðinn með íbúðir í
miðborginni að borgin hefði þrengt að
skammtímaleigu íbúða til ferða-
manna á vissum svæðum.
„Með því varð ljóst að ákveðinn
þrýstingur var að fara af eftirspurn á
dýrustu stöðum. Það komu enda fleiri
góðar íbúðir í sölu,“ sagði maðurinn
sem spáir því að raunverðið breytist
lítið næstu ár í miðbænum. Hann vildi
koma því á framfæri að nú væri gott
tækifæri til að kaupa stórar og vel
staðsettar íbúðir í miðborginni í háum
gæðaflokki. Slíkt framboð muni ekki
skapast í bráð. Hann taldi það mundu
taka tvö til fjögur ár fyrir ferðaþjón-
ustuna að vinna upp áhrifin af falli
WOW air.
Á Brynjureit Útsýnið frá einni þakíbúðinni á Hverfisgötu 40. Íbúðin er á tveimur hæðum.
Morgunblaðið/Baldur
Hafnartorg Útsýnisíbúð við Geirsgötu. Fasteignasali sagði íbúðina kosta um 200 milljónir.
64% miðborgaríbúðanna óseld
Meira framboð á leiðinni Húsbyggjandi reiknar með 50% lengri sölutíma en hann gerði í upphafi
3
4
5
6
8
9
10
14
11
16
12
17
13
18
19
26
25
20
22
23
27
1
7 21
2
15
24
Óseldar íbúðir í miðborg Reykjavíkur
Samkvæmt söluvefjum
26. júní 2019
Kortagrunnur: Stamen
Íbúðir í söluferli Fjöldi Seldar Óseldar
1 Höfðatorg 94 64 30
2 Kirkjusandur 77 6 71
3 Frakkastígsreitur 68 37 31
4 Hverfi sgata 85-93 70 10 60
5 Hverfi sgata 94-96 38 16 22
6 Hafnartorg 70 22 48
7 Brynjureitur 49 0 49
8 Klapparstígur 30 11 8 3
9 Klapparstígur 28 4 0 4
10 Tryggvagata 13 38 25 13
Samtals 519 188 331
Væntanlegt* U.þ.b. fjöldi
11 Brynjureitur 2 21
12 Austurhöfn við Hörpu 70
13 Borgartún 28 21
14 Borgartún 41 30
15 Sólborg, Kirkjusandi 52
16 Hverfi sgata 88-92 30
17 Ingólfstorg 16
Samtals 240
*Heimildir: Kynningarefni borgarstjóra,
fréttasafn Morgunblaðsins, kynnt deiliskipulag.
Dæmi um verkefni í bið eða á teikniborðinu U.þ.b. fjöldi
18 F-reitur Kirkjusandi 30 23 Héðinsreitur 330
19 Annar íbúðaturn á Höfðatorgi 100 24 Snorrabraut 60 49
20 Borgartún 24 65 25 Frakkastígur 1 20
21 Borgartún 34-36 86 26 Guðrúnartún 100
22 Vesturbugt 176 27 Byko-Steindórsreitur 80
Samtals 1.036
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2019
Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta
Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda
og hagræða málin fyrir húsfélög
Traust - Samstaða - Hagkvæmni
eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005
Ráðgjöf
Veitum faglega ráðgjöf
til húsfélaga
Bókhald
Höfum umsjón með
bókhaldi fyrir húsfélög
Þjónusta
Veitum persónulega þjónustu
sem er sérsniðin að hverju
og einu húsfélagi