Morgunblaðið - 27.06.2019, Side 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2019
Clip-on sólgler á gleraugu
er algjör SNILD!
Fallegar umgjarðir og auðvelt er að
smella því á gleraugun
Eyesland | Grandagarði 13 | Glæsibæ | Sími 510 0110 | www.eyesland.is
27. júní 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.98 124.58 124.28
Sterlingspund 158.16 158.92 158.54
Kanadadalur 94.06 94.62 94.34
Dönsk króna 18.899 19.009 18.954
Norsk króna 14.567 14.653 14.61
Sænsk króna 13.397 13.475 13.436
Svissn. franki 126.98 127.68 127.33
Japanskt jen 1.1588 1.1656 1.1622
SDR 172.43 173.45 172.94
Evra 141.11 141.89 141.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.3186
Hrávöruverð
Gull 1429.55 ($/únsa)
Ál 1746.5 ($/tonn) LME
Hráolía 64.89 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Guðný Rósa
Þorvarðardóttir
hefur sagt upp
starfi sínu sem
framkvæmdastjóri
viðskiptaþróunar
hjá Festi og Bakk-
anum vöruhúsi.
Þetta kemur fram í
tilkynningu frá
Festi. Í framhaldi af
því hefur Festi gert
breytingar á skipu-
riti félagsins, sem felst meðal annars í
því að viðskiptaþróun færist inn í ein-
staka rekstrarfélög samstæðunnar, þ.e.
N1, Krónuna, Elko og Bakkann vöruhús.
Samhliða breytingunum mun Eggert
Þór Kristófersson, forstjóri Festar, taka
við framkvæmdastjórn Bakkans vöru-
húss en Guðný gegndi því starfi áður.
Guðný Rósa hefur sinnt stöðu fram-
kvæmdastjóra hjá Festi og N1 frá árinu
2015 og lætur af störfum um mán-
aðamótin. peturh@mbl.is
Guðný Rósa segir starfi
sínu lausu hjá Festi
Hætt Festi er m.a.
móðurfélag Krón-
unnar og N1.
STUTT
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Svo virðist vera sem fjárfestar hafi
gert ráð fyrir að Seðlabankinn myndi
stíga stærra skref við ákvörðun um
vaxtalækkun en raun varð á í gær. Um
það vitna viðbrögð á skuldabréfa- og
hlutabréfamarkaði í gær. Þetta segir
Stefán Broddi Guðjónsson, forstöðu-
maður greiningardeildar Arion banka
en hann var gestur
Viðskiptapúlsins,
hlaðvarpsþáttar
ViðskiptaMoggans
í gær. Þar benti
hann einnig á að
tónninn í yfirlýs-
ingu peninga-
stefnunefndar
Seðlabankans sem
gefin var út sam-
hliða ákvörðun
hennar um að
lækka stýrivexti um 0,25% í 3,75%,
hefði reynst nokkuð harðari en gert
var ráð fyrir. Í gær lækkuðu flest félög
í Kauphöll Íslands og þá hækkaði
ávöxtunarkrafa lengri óverðtryggðra
ríkisskuldabréfa að jafnaði um 5 til 10
punkta.
Frekari samdráttur í pípunum
Í yfirlýsingu nefndarinnar kemur
m.a. fram að gera megi ráð fyrir frek-
ari samdrætti í þjóðarbúskapnum á
komandi mánuðum og virðist þar ekki
síst vísað til versnandi atvinnustigs.
Atvinnuleysi mælist nú um 3,6% sam-
kvæmt tölum Vinnumálastofnunar.
Rannveig Sigurðardóttir aðstoðar-
seðlabankastjóri sagði þó á kynningar-
fundi í bankanum í gær að einkaneysla
á fyrsta ársfjórðungi hefði reynst
kröftugri en búist var við og að tölur
fyrir annan ársfjórðung virtust vitna
um mikinn þrótt einnig.
Verðbólga hefur reynst í samræmi
við síðustu spá Seðlabankans og telur
hann að hún hafi nú náð hámarki og
muni hjaðna í átt að markmiði, þ.e.
2,5%, þegar líða tekur á árið 2019. Í
gær birti Hagstofan nýja mælingu á
vísitölu neysluverðs.
Færist nær markmiði
Samkvæmt henni hækkaði vísitalan
um 0,37% í maí og mælist þá 12 mán-
aða verðbólga 3,3% en hafði verið 3,6%
undangenginn mánuð. Þrátt fyrir já-
kvæðar verðbólguhorfur bendir Seðla-
bankinn á að frekari veiking krónunn-
ar gæti sett strik í reikninginn en í máli
Más Guðmundssonar í gær á fyrr-
nefndum kynningarfundi kom fram að
gengið hefði veikst um 2,5% frá síðasta
vaxtaákvörðunardegi, sem bar upp á
22. maí. Stefán Broddi segir hins vegar
að fátt bendi til skarprar veikingar
krónunnar fram undan, viðskiptaaf-
gangur sé viðvarandi og að flestar hag-
stærðir gefi til kynna að viðnámsþrótt-
ur efnahagslífsins sé talsverður. Þá
bendir hann einnig á að Seðlabankinn
sé reiðubúinn til að grípa inn í og
sporna gegn mikilli lækkun krónunnar
ef það megi koma í veg fyrir að verð-
bólgan fari af stað. Stór gjaldeyris-
varaforði staðfesti að bankinn hafi
burði til þess. Í kjölfar vaxtalækkunar-
innar tilkynnti Íslandsbanki að hann
hygðist breyta vaxtakjörum sínum frá
og með næstu mánaðamótum. Þannig
myndu óverðtryggðir vextir húsnæð-
islána lækka um 0,25 prósentustig og
að þá myndu bílalán og -samningar
Ergo einnig lækka með sama hætti. Þá
myndu breytilegir innlánsvextir lækka
um 0,1 til 0,25 prósentustig og kjör-
vextir útlána lækka um 0,1 prósentu-
stig. Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbankanum eru vaxtakjör bank-
ans þar nú til skoðunar í ljósi nýjustu
fregna úr Svörtuloftum. Sömu sögu
var að segja þegar forsvarsmenn Arion
banka voru inntir eftir því hvernig
bankinn myndi bregðast við nýjustu
tíðindum.
Harðari tónn en markaður-
inn hafði gert ráð fyrir
Morgunblaðið/Eggert
SÍ Már Guðmundsson kynnti í síðasta sinn vaxtákvörðun bankans. Nýr bankastjóri tekur við í ágústmánuði að öllu
óbreyttu. Sagði Már að sér væri létt, þegar hann var inntur eftir því hvað honum væri efst í huga við þessi tímamót.
Íslandsbanki boðar vaxtalækkun í kjölfar stýrivaxtalækkunar upp á 0,25 prósentur
Stefán Broddi
Guðjónsson
Svo virðist sem bifreiðasala sé eitt-
hvað að taka við sér eftir erfiða mán-
uði í upphafi árs. Þetta segir Jón
Trausti Ólafsson, formaður Bíl-
greinasambandsins í samtali við
Morgunblaðið.
Líkt og Morgunblaðið greindi frá
fyrr á þessu ári dróst bifreiðasala
fyrstu mánuði ársins saman um 40%
miðað við sömu mánuði árið áður.
Þrátt fyrir að nú séu jákvæðari teikn
á lofti er útlit fyrir áframhaldandi
samdrátt næstu mánuði.
Að því er fram kemur í skrán-
ingartölum frá Bílgreinasambandinu
var skráður fjöldi nýrra bifreiða á
götum í maímánuði ársins í ár sam-
tals 2.013. Það er tæplega 30% sam-
dráttur frá fyrra ári þegar fjöldi
skráninga var 2.859.
Notaðir bílar seljast mjög vel
Sé horft á fyrstu fimm mánuði árs-
ins 2019 í heild sinni er samdráttur-
inn umtalsvert meiri, eða um 36%.
Alls voru seldar bifreiðar fyrstu
fimm mánuði ársins 5.935 talsins.
Árið 2018 var fjöldi seldra bifreiða
9.286.
„Salan er að rétta sig af smám
saman. Samdrátturinn síðustu mán-
uði er minni en í upphafi árs. Þess ut-
an styttist í að fjöldi nýrra spennandi
bíla, sem fólk hefur verið að bíða eft-
ir, komi á markað,“ segir Jón Trausti
og bætir við að sala notaðra bifreiða
hafi verið gríðarlega góð fram til
þessa. „Það er mikil aukning þar
milli ára og ég get ekki annað sagt en
að notaði markaðurinn hafi verið frá-
bær það sem af er ári,“ segir Jón
Trausti. aronthordur@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Bílasala Komandi mánuðir líta
betur út en í fyrstu var talið.
Minni samdráttur
í sölu nýrra bíla
Komandi mán-
uðir líta betur út
en fyrst var talið