Morgunblaðið - 27.06.2019, Qupperneq 60
HM Í FRAKKLANDI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Þrátt fyrir að sjö Evrópuþjóðir séu
eftir á HM kvenna í fótbolta er það
ekki Evrópuþjóð sem þykir sigur-
stranglegust nú þegar 8-liða úrslitin
eru að hefjast. Veðbankar eru á því
að ríkjandi heimsmeistarar Banda-
ríkjanna eigi enn mesta möguleika á
titlinum, þrátt fyrir að Spánverjar
hafi sýnt fram á það í 16-liða úrslit-
unum að bandaríska liðið er ekki
neitt ofurlið.
Flestir virðast telja Bandaríkin og
Frakkland sigustranglegust á
mótinu en þau mætast í París annað
kvöld. Sjálfsagt þykir einhverjum
leitt að liðin mætist strax á þessu
stigi mótsins, þrátt fyrir að bæði hafi
unnið alla sína leiki hingað til, en það
er ekkert við því að gera. Sigurliðið
mætir annaðhvort Noregi eða Eng-
landi í undanúrslitunum en keppni í
8-liða úrslitum hefst í kvöld með leik
Noregs og Englands. Á laugardag-
inn lýkur 8-liða úrslitunum þegar
Ítalía mætir Hollandi og Þýskaland
mætir Svíþjóð.
María man vonbrigðin vel
England og Noregur mættust
einnig á HM 2015, í 16-liða úrslitum,
og þá hafði England betur, 2:1.
Chelseakonurnar Maren Mjelde og
María „okkar“ Þórisdóttir hafa stað-
ið vaktina vel í vörn Noregs og
María segir liðið hafa harma að
hefna í kvöld:
„Ég var gríðarlega vonsvikin [eft-
ir tapið á HM í Kanada 2015] og
þetta situr enn í mér í dag. Ég var
ung þarna en þetta var gríðarlega
erfitt,“ sagði María við vef FIFA, og
eftir vonbrigðin fyrir fjórum árum
og á EM 2017 segir hún norska liðið
mun betur í stakk búið til að vinna
England nú.
„Stærsti munurinn er þessi mikla
og sterka samheldni í okkar liði. Við
höfum byggt upp mjög gott leik-
skipulag á síðustu tveimur árum og
erum sterkari bæði innan og utan
vallar en árið 2015. Leikstíllinn okk-
ar leyfir okkur að gera ein og ein
mistök, og gefur okkur sjálfstraust
til þess að halda boltanum. Við erum
ekkert að stressa okkur og senda
bara langar sendingar fram,“ sagði
María.
Ekkert stress, segir Neville
England hefur komist nokkuð
þægilega áfram í 8-liða úrslitin en
miðverðirnir Steph Houghton og
Millie Bright gætu misst af leiknum
í kvöld, að sögn þjálfarans Phil Ne-
ville. Houghton meiddist í 3:0-
sigrinum á Kamerún í 16-liða úrslit-
um en Bright hefur verið að glíma
við flensu, sem Neville segir hafa
angrað sitt lið aðeins.
England náði sínum besta árangri
á HM fyrir fjórum árum þegar liðið
hlaut bronsverðlaun og áhugi á lið-
inu og knattspyrnu kvenna hefur
aukist mikið í Englandi síðan þá.
Neville segir leikmenn sína nógu
þroskaða til að njóta þess:
„Áður fyrr hefði maður kannski
viljað verja leikmennina af ótta við
að þeim mistækist en þess þarf ekki
með mínar stelpur. Fyrir 3-4 árum
dauðlangaði okkur að fá þá athygli
og sýnileika sem við höfum núna, og
þegar við svo fáum athyglina þá ætl-
um við ekki að hætta við og segja að
þetta taki aðeins á taugarnar. Við
ætlum að njóta þess. Við erum með
ótrúlegan hóp af manneskjum sem
eru nákvæmlega þar sem þær vilja
vera, þar sem þær hefur alltaf
dreymt um að vera, og þær munu
standa fyrir sínu. Það mun sjást á
vellinum. Mínir leikmenn kunna
best við sig í stórum leikjum,“ sagði
Neville.
Ólympíusæti í húfi
Þýskaland og Noregur eru einu
Evrópulöndin sem unnið hafa heims-
meistaratitilinn. Evrópuþjóðirnar
sjö berjast ekki einungis um að ná
sem lengst á HM heldur einnig um
sæti á Ólympíuleikunum í Tókýó á
næsta ári. Aðeins þrjár Evrópu-
þjóðir fá sæti á ÓL og verða það þær
þjóðir sem ná lengst á HM. Ef
Bandaríkin vinna Frakkland munu
því liðin þrjú sem vinna í hinum ein-
vígunum í 8-liða úrslitunum öll kom-
ast á ÓL. Vinni Frakkland á morgun
mun leikurinn um bronsverðlaunin á
HM einnig snúast um þátttökurétt á
ÓL.
Íslandsbanar gegn Svíþjóð
Alex Morgan er enn markahæst á
mótinu, eftir mörkin fimm gegn Taí-
landi, en Bandaríkin þurfa helst
meira frá henni gegn Frakklandi á
morgun en hún sýndi í 2:1-sigrinum
á Spáni þar sem bæði mörk Banda-
ríkjanna komu úr vítaspyrnum Meg-
an Rapinoe. Frakkland vann Bras-
ilíu í framlengdum leik í 16-liða
úrslitum og er nú einum sigri frá því
að komast til Lyon, þar sem undan-
úrslitin og úrslitaleikurinn fara
fram, en margir leikmanna liðsins
eru einmitt leikmenn Lyon, Evr-
ópumeistara síðustu fjögurra ára.
Frakkland hefur aðeins einu sinni
komist í undanúrslit á HM, þegar
liðið endaði í 4. sæti 2011.
Þýskaland, sem varð heimsmeist-
ari 2003 og 2007, komst á HM með
því að enda fyrir ofan Ísland í und-
ankeppninni þrátt fyrir afar óvænt
tap gegn Íslandi á heimavelli. Liðið
mætir Svíum sem hafa best náð 2.
sæti á HM, 2003. Hvorki Ítalía né
Evrópumeistarar Hollands hafa
komist í undanúrslit á HM og annað
þessara liða mun því leika um verð-
laun á HM í fyrsta sinn.
AFP
Mæta Englandi María Þórisdóttir og stöllur í norska liðinu fagna sigrinum á Ástralíu í 16-liða úrslitum HM, þar sem úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni.
Úrslitaleikurinn á morgun?
Bandaríkin og Frakkland sigurstranglegust þegar 8-liða úrslitin hefjast á HM
María í hefndarhug gegn Englandi í kvöld Þrjú bestu frá Evrópu til Tókýó
60 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2019
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Vottaður hífi- og festingabúnaður
Námskeið um notkun á hífibúnaði
Skoðanir og eftirlit á hífibúnaði
Hífi- og festingabúnaður
Mjólkurbikar karla
8-liða úrslit:
ÍBV – Víkingur R..................................... 2:3
Guðmundur Magnússon 13., 32. – Sölvi
Geir Ottesen 57., Nikolaj Hansen 80., Er-
lingur Agnarsson 84.
Inkasso-deild karla
Fram – Þróttur R..................................... 2:1
Helgi Guðjónsson 60., Már Ægisson 90. –
Daði Bergsson 4. Rautt spjald: Jón Þórir
Sveinsson (þjálfari Fram) 45., Fred Sa-
raiva (Fram) 62.
Staðan:
Fram 9 5 2 2 15:11 17
Þór 8 5 1 2 15:6 16
Fjölnir 8 5 1 2 14:9 16
Keflavík 8 4 2 2 13:7 14
Grótta 8 4 2 2 16:13 14
Víkingur Ó. 8 4 1 3 9:6 13
Leiknir R. 8 4 0 4 13:14 12
Þróttur R. 9 3 1 5 16:15 10
Haukar 9 2 3 4 13:15 9
Afturelding 8 3 0 5 12:18 9
Njarðvík 9 2 1 6 8:17 7
Magni 8 1 2 5 10:23 5
Inkasso-deild kvenna
ÍR – Fjölnir ............................................... 0:4
Sara Montoro 4., 7., Eva María Jónsdóttir
64., Rósa Pálsdóttir 80.
Augnablik – Afturelding ........................ 1:0
Þórdís Katla Sigurðardóttir 38.
Staðan:
Þróttur R. 6 5 0 1 22:4 15
FH 6 4 1 1 18:8 13
ÍA 6 3 2 1 8:5 11
Tindastóll 5 3 0 2 14:12 9
Augnablik 6 3 0 3 6:6 9
Grindavík 5 2 2 1 5:5 8
Afturelding 6 2 1 3 7:8 7
Haukar 6 2 0 4 6:6 6
Fjölnir 6 1 2 3 7:11 5
ÍR 6 0 0 6 2:30 0
Noregur
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Viking – Stabæk ...................................... 5:2
Samúel Kári Friðjónsson sat á vara-
mannabekk Viking. Axel Óskar Andrésson
er frá keppni vegna meiðsla.
Kongsvinger – Mjøndalen ...................... 0:3
Dagur Dan Þórhallsson kom inn á sem
varamaður hjá Mjøndalen á 66. mínútu.
Rosenborg – Aalesund ............................ 1:1
Aalesund vann 5:4 í vítakeppni.
Hólmbert Aron Friðjónsson, Aron Elís
Þrándarson og Davíð Kristján Ólafsson
voru í byrjunarliði Aalesund. Davíð fékk
rautt spjald á 45. mínútu en Hólmbert og
Aron léku allan leikinn sem var framlengd-
ur. Hólmbert skoraði úr síðasta víti Aale-
sund. Daníel Leó Grétarsson var ekki í
leikmannahópi liðsins.
Hvíta-Rússland
Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit:
Sputnik Rechytsa – BATE Borisov ....... 2:5
Willum Þór Willumsson skoraði eitt
mark fyrir BATE og átti þátt í öðru en
hann lék allan leikinn.
KNATTSPYRNA