Morgunblaðið - 27.06.2019, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 27.06.2019, Qupperneq 61
Í EYJUM Arnar Gauti Grettisson sport@mbl.is Víkingar eru komnir í 4-liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta eftir ótrúlegan 3:2 sigur á ÍBV í Vest- mannaeyjum í gærkvöldi. Eyjamenn voru með 2:0 forystu í hálfleik eftir 2 mörk frá Guðmundi Magnússyni en þrjú mörk frá Sölva Geir, Nikolaj Hansen og Erlingi Agnarsyni komu Víkingum áfram. Öll mörkin sem Eyjamenn fengu á sig í leiknum eru einstaklingsvarn- armistök og litu varnarmenn liðsins vægast sagt hræðilega út. Mistök eins og þessi eru nánast ófyrirgef- anleg en jafnframt dæmigerð fyrir lið sem er í botnbaráttu og vinnur ekki marga leiki. Þetta er annar leikurinn í röð hjá Eyjamönnum þar sem þeir eru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en tapa samt sem áður leiknum. Und- irritaður hefur alls ekki skýringuna á því hvað veldur en það er nokkuð augljóst að Eyjamenn þurfa að fara að stoppa í götin í sínum varnarleik ætli þeir sér að fara að vinna fót- boltaleiki, geri þeir það ekki mun sumarið enda verulega illa hjá þeim. Sýndu sitt rétta andlit í bókstaflegum mótvindi Ekki er hægt að taka neitt af Vík- ingum sem spiluðu sinn flotta fót- bolta á löngum köflum í þessum leik. Þeir áttu í erfileikum að spila bolt- anum þegar þeir léku með vindi í fyrri hálfleik en þegar þeir voru á móti vindi í þeim síðari náðu þeir að sýna sitt rétta andlit og uppskáru eftir því. Skiptingin sem þeir gerðu seint í síðari hálfleik þegar þeir voru 2:1 undir breytti leiknum. Nikolaj Han- sen kom inn á fyrir Örvar Eggerts- son. Nikolaj fiskaði víti, sem að hann skoraði sjálfur úr og bjó til sig- urmarkið upp á sitt einsdæmi með því að fara afar illa með vörn Eyja- manna. Þriðji sigurleikur Víkinga í röð staðreynd og þeir geta verið já- kvæðir upp á framhaldið. Þrír leikir í kvöld Hinir þrír leikirnir í átta liða úr- slitum keppninnar fara allir fram í kvöld. KR, topplið úrvalsdeild- arinnar, tekur á móti Njarðvík- ingum, eina liðinu utan efstu deildar sem enn er eftir í keppninni. Óskar Örn Hauksson fyrirliði KR mætir þar sínu uppeldisfélagi. Njarðvík hefur tapað fimm leikjum í röð. Breiðablik fær Fylki í heimsókn á Kópavogsvöll en skammt er frá bráðfjörugum sjö marka leik liðanna á Íslandsmótinu sem Fylkir vann 4:3. Þá mætast FH og Grindavík í Kaplakrika en tvö stig skilja liðin að í deildinni þar sem þau hafa ekki mæst enn en eiga einmitt leik í Grindavík á mánudaginn kemur, eft- ir aðeins fjóra daga. Innkoma Hansen lykill að frábærri endurkomu  Víkingar lentu 2:0 undir en komust í undanúrslit bikarsins með sigri í Eyjum Ljósmynd/Sigfús Gunnar Ekki nóg Guðmundur Magnússon skorar hér sitt annað mark fyrir ÍBV í gær, og staðan 2:0, en Víkingar unnu 3:2. ÍÞRÓTTIR 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2019 Smáatriðin skipta máli Fáðu sérmenntaðan lýsingarráðgjafa Pfaff í heimsókn án endurgjalds. Pfaff býður upp á framúrskarandi ráðgjöf í lýsingu viðskiptavinum okkar að kostnaðarlausu. Lýsingarráðgjafi Pfaff kemur í heimsókn, tekur út lýsingu á heimilinu og bendir á lausnir sem henta í hverju rými. Hugað er sérstaklega að því hvernig lýsingin kemur út útlitslega og hvaða birta hentar hverjum aðstæðum. Vinsamlega pantið tíma í pfaff@pfaff.is  Hornamaðurinn Andri Þór Helga- son er genginn í raðir handknattleiks- liðs Stjörnunnar eftir þriggja ára dvöl hjá Fram. Andri var þriðji markahæsti leikmaður Fram í vetur en liðið endaði í 10. sæti úrvalsdeildarinnar, þremur stigum á eftir Stjörnunni. Andri, sem er tæplega 25 ára, var áður hjá HK og var viðloðandi liðið sem varð Íslands- meistari 2012.  Þór Akureyri hefur samið við kól- umbíska landsliðsmanninn Hansel Atencia. Hann mun því leika með lið- inu í úrvalsdeildinni í körfubolta á næstu leiktíð, þar sem Þórsarar verða nýliðar. Karfan.is greindi frá þessu. Atencia kemur beint úr bandaríska há- skólaboltanum þar sem hann lék með Masters-háskólanum í NAIA-deildinni, en hann er 22 ára leikstjórnandi. Atencia hefur leikið með kólumbíska landsliðinu en er einnig með spænskt ríkisfang.  Bjarki Pétursson úr Golfklúbbi Borgarness er í 8. sæti eftir fyrsta hring á Evrópumeistaramóti áhuga- kylfinga sem fram fer í Austurríki. Bjarki lék á -4 högg- um í gær, fékk fimm fugla og einn skolla, og er tveimur höggum á eftir efstu mönnum. Gísli Sveinbergsson lék hins vegar á +4 höggum og er í 106. sæti af 144 keppendum. Eitt ogannað Hinn 19 ára gamli Már Ægisson tryggði 10 „þjálfaralausum“ Fröm- urum dísætan 2:1-sigur á Þrótti R. í 1. deildinni í fótbolta, Inkasso- deildinni, í Safamýri í gærkvöld. Hiti var í mönnum í þessum granna- slag en að honum loknum eru Framarar á toppi deildarinnar með 17 stig, stigi á undan næstu liðum sem eiga leik til góða. Þróttur er í 8. sæti með 10 stig. Þróttarar skoruðu eina mark sitt á 4. mínútu en það gerði Daði Bergsson. Þeir náðu ekki að nýta sér það að vera 11 gegn 10 Fröm- urum síðasta hálftíma leiksins. Jón Þórir Sveinsson, þjálfari Fram, fékk rautt spjald eftir kjaftbrúk undir lok fyrri hálfleiks, og Fred Saraiva var rekinn af velli eftir að hafa rennt sér með háskalegum hætti í Arnar Darra Pétursson, markvörð Þróttar, á 62. mínútu. Sa- raiva hafði rétt áður lagt upp jöfn- unarmark Helga Guðjónssonar með því að stela boltanum. Tíu Framarar fögnuðu toppsætinu án þjálfarans Morgunblaðið/Arnþór Átök Það var hart tekist á í slagnum um Suðurlandsbrautina í gærkvöld.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.