Þjóðarbúskapurinn - 01.04.1995, Page 10
dró nokkuð úr halla á rekstri hins opinbera en vaxandi halli næstu árin á undan var
mikið áhyggjuefni. Þá var viðunandi jafnvægi í viðskiptum helstu iðnríkja. Þann skugga
bar hins vegar á þessa hagstæðu mynd að atvinnuleysi jókst í Evrópu en á móti
minnkaði það í Bandaríkjunum. í OECD í heild stóð atvinnuleysið því í stað.
Horfumar fyrir árið 1995 og áfram mótast af þessari hagstæðu framvindu á
síðastliðnu ári. Talið er að nýtt hagvaxtarskeið sé byrjað og spár alþjóðaefnahags-
stofnana gera ráð fyrir að það iifi öldina.
Spáð er að hagvöxtur í aðildarríkjum OECD verði að meðaltali um 3% á þessu ári og
að hann verði svipaður áfram næstu árin á efitir. Jafnframt er reiknað með að stöðugleiki
ríki áfram á verðlagssviðinu, þótt búist sé við að verðbólga aukist lítillega. Þessar
aðstæður fela í sér forsendur til þess að atvinnuleysi minnki smám saman á næstu árum.
Horfur í þróunarríkjunum eru einnig fremur uppörvandi. Áfram er búist við örum
hagvexti í Asíu og víða annars staðar hafa birst merki um batnandi hag. í Suður-
Ameríku eru horfur óljósari efitir Qármálakreppuna í Mexíkó. Þeim ríkjum í Austur-
Evrópu sem búa við hagvöxt fer ljölgandi en miklir erfíðleikar eru þó enn í mörgum
þeirra.
Þótt hér sé dregin upp björt mynd af efnahagshorfunum ríkir óvissa um nokkur atriði
sem geta skyggt á þessa mynd þegar fram í sækir. I því sambandi má benda á tvennt.
Annars vegar hefur verið mikið umrót á alþjóðlegum gjaldeyrismörkuðum að
undanförnu. Þannig hefur gengi Bandaríkjadollars og fleiri gjaldmiðla hækkað stórlega
gagnvart jeni og þýsku marki og tengdum gjaldmiðlum. Þótt almennt sé talið að þetta
umrót veiki ekki að marki hagvaxtarhorfur í iðnríkjunum getur dregið til þess ef
framhald verður á því. Hins vegar hafa raunvextir af Qárskuldbindingum til langs tíma
verið tiltölulega háir að undanförnu, sérstaklega í þeim löndum þar sem miklir
erfíðleikar steðja að í ríkisfjármálum. Ef raunvextirnir haldast áfram jafnháir er hætt við
að afitur dragi úr ijárfestingu atvinnuvega og jafnframt getur einkaneysla orðið minni en
spáð er.
I þessu ljósi er mikilvægt að við hagstjóm á næstu misserum verði þrjú atriði einkum
höfð að leiðarljósi. I fyrsta lagi að koma í veg fyrir að verðbólga færðist í aukana á ný
og jafnvægisleysi myndist í íjármálum eins og á níunda áratugnum. I öðru lagi að
treysta stöðu opinberra íjármála og í þriðja lagi að stuðla að skilvirkari vinnumarkaði,
einkum í Evrópu, með það fyrir augum að draga hraðar úr atvinnuleysi á næstu árum en
spár gera ráð fyrir.
8