Þjóðarbúskapurinn

Tölublað

Þjóðarbúskapurinn - 01.04.1995, Blaðsíða 48

Þjóðarbúskapurinn - 01.04.1995, Blaðsíða 48
5. Efnahagshorfur á næstu árum Hér á efitir verður lýst í megindráttum efnahagshorfum fyrir árin 1996-1999 eins og þær eru nú metnar. Að baki matinu liggja gefnar forsendur um þróun ytri skilyrða og er gerð grein íyrir þeim sem mestu máli skipta. Þegar þetta er skrifað hefur ný ríkisstjóm hins vegar ekki verið mynduð og því ríkir nokkur óvissa um efnahagsstefnuna sem fylgt verður á næstu árum. Þar vegur þyngst að ekki liggur fyrir langtímaáætlun í opinberum fjármálum. Hér var því valin sú leið að byggja á því að halli á rekstri hins opinbera verði óbreyttur frá því sem hann stefnir í á þessu ári. Þótt þessi forsenda sé vafasöm í ljósi þeirrar áherslu sem hefur verið lögð á að treysta afkomu hins opinbera er gagnlegt að meta horfumar á þessum grunni og hafa til samanburðar við endurmat þegar aðgerðaáætlun liggur fyrir í opinberum fjármálum. Helstu forsendur sem Þjóðhagsstofnun hefur stuðst við em þessar: Hið opinbera. Gert er ráð fýrir að samneysla aukist um 2'/2% á ári að jafnaði, en að opinber fjárfesting minnki um 1% á ári. Reiknað er með óbreyttri skattbyrði. Efnahagshorfur á alþjóðavettvangi. Hér eru lagðar til grundvallar spár OECD um hagvöxt, verðbólgu, vexti og fleiri mikilvægar hagstærðir á umræddu tímabili. Þessar spár byggja meðal annars á því að meðalhagvöxtur í aðildarríkjum OECD verði tæplega 3% á ári, árleg verðbólga verði um 2'/2% og vextir þokist niður á við efitir því sem á tímabilið líður. Þessar forsendur gera því í aðalatriðum ráð fyrir að framhald verði á því vaxtarskeiði sem hófst í heimsbúskapnum í fyrra, verðbólgu verði haldið í skefjum og viðunandi jafnvægi verði í fjármálum. Útflutningur. Miðað er við að unnt verði að auka þorskveiðar lítið eitt frá því sem nú er á árunum 1998-1999. Ekki er reiknað með breytingum á öðrum afla, en gengið er út frá að framlegð sjávarafurðaframleiðslunnar aukist nokkuð ár frá ári, meðal annars með hagkvæmari ráðstöfun aflans og hagstæðari markaðsaðstæðum. Að öllu samanlögðu er gert ráð fyrir 1 /2% árlegum vexti útflutnings sjávarafurða að jafnaði 1996-1999. Þótt nokkrar horfur séu nú á nýijárfestingu í orkufrekum iðnaði, er ekki reiknað með slíku hér og einvörðungu gert ráð fyrir lítillegri aukningu útflutnings ISAL. Gert er ráð fyrir að vöruútflutningur án afurða sjávarútvegs og stóriðju aukist um 5% árlega á tímabilinu. Gengið er út frá að verð á flestum tegundum út- og innflutnings fylgi erlendum verðlagsbreytingum. Kísiljám er eina undantekningin, en gert er ráð fýrir að verð á því hækki um 6/2% 1996-1997. Viðskiptakjör verða því nánast óbreytt. 46
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Þjóðarbúskapurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðarbúskapurinn
https://timarit.is/publication/1367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.