Þjóðarbúskapurinn - 01.04.1995, Blaðsíða 14
Markaðsverð sjávarafurða í SDR
Vísitölur 1987=100
125
120
115
110
105
100
95
90
1992
1993
1994
1995
Verð annarra útflutningsafurða hækkaði yfirleitt í samræmi við almennar verð-
hækkanir í viðskiptalöndunum og í heild hækkaði verðvísitala almenns vöruútflutnings
um 5/2% í krónum frá fyrra ári.
Verðþróun á innflutningi var í aðalatriðum í hátt við verðlagsþróun í helstu
viðskiptalöndum að viðbættum áhrifum gengislækkunar krónunnar á miðju ári 1993.
Undantekning frá þessu er þó að olíuverð hélt áffam að lækka. Verð á eldsneyti hefur
lækkað ár frá ári síðan 1990 samtals um 30% sé miðað við hráolíu á heimsmarkaði.
Framan af árinu var olíuverð í lágmarki en seinni hluta ársins hækkaði það nokkuð en
var þó lægra en að meðaltali árið á undan.
í heild hækkaði verðvísitala almenns vöruinnflutnings um tæp 5% sem svarar til um
!4% lækkunar í erlendri mynt miðað við breytingar á gengi krónunnar samkvæmt
innflutningsvog. Án innflutnings vegna stóriðju og olíu hækkaði verðlag innflutnings
um tæplega 6%% eða um 1% miðað við fast gengi.
Á þjónustuhlið urðu óverulegar breytingar á viðskiptakjörum. Þar skiptir vaxta-
þróunin mestu máli, en samkvæmt bráðabirgðatölum hækkuðu meðalvextir erlendra
lána einungis um 0,1 prósentustig milli ára. Þessi litla hækkun á meðalvöxtum erlendra
lána skýrist af því að mestur hluti vaxtagreiðslnanna fellur til með um hálfs árs tímatöf
miðað við gildandi vexti erlendis. Þar af leiðandi voru áhrif hækkandi vaxta á erlendum
Ijármagnsmörkuðum á síðasta ári ekki að fullu komin fram á árinu 1994.
Viðskiptakjör vöru og þjónustu án vaxta bötnuðu samtals um 1,3% á síðasta ári
miðað við árið þar á undan. Sé eingöngu litið til vöruviðskipta nam batinn 1,1%, en að
viðskiptum stóriðjufyrirtækjanna undanskildum var um 1,2% rýmun að ræða. Þegar
tekið hefur verið tillit til breytinga á vöxtum á erlendum skuldum juku bætt viðskipta-
kjör tekjur þjóðarbúsins um 0,4% miðað við þjóðarframleiðslu.
12