Þjóðarbúskapurinn

Issue

Þjóðarbúskapurinn - 01.04.1995, Page 37

Þjóðarbúskapurinn - 01.04.1995, Page 37
halli verði á vinnslu botnfisks og að í heild verði afkoma veiða og vinnslu botnfisks nokkum veginn í jámum. Að meðtöldum veiðum og vinnslu rækju og loðnu er talið að sjávarútvegsfyrirtækin munu skila nokkrum hagnaði á þessu ári og að afkoman verði ekki síðri en hún var á árinu 1994. Aðrar atvinnugreinar. I kaflanum um framvinduna 1994 hér að framan var stuttlega lýst afkomu atvinnuveganna í heild undanfarin ár. Með líkum hætti og þar er gert má fá Iauslega hugmynd um afkomuna á árinu 1995. Sé byggt á forsendum þjóðhagsspár er þess að vænta að hagur atvinnuveganna vænkist nokkuð frá fyrra ári. Lauslegar áætlanir benda til þess að þegar á heildina er litið megi búast við um 27 milljarða króna hagnaði af atvinnurekstrinum í heild en til samanburðar var hagnaðurinn áætlaður röskur 21 milljarður á liðnu ári. Batann í afkomu má öðru fremur rekja til þess að reiknað er með nokkurri framleiðniaukningu hjá fyrirtækjunum og auk þess er reiknað með að fjármagnskostnaður minnki nokkuð vegna niðurgreiðslu skulda. Fjármál hins opinbera og peningamál Tekjuhalli hins opinbera á árinu 1995 er áætlaður um 15'/2 milljarður króna á rekstrargrunni, eða sem svarar til 3,4% af Iandsframleiðslu, borið saman við rúmlega 17 milljarða króna halla í fyrra. Reiknað er með að tekjur hins opinbera verði um 161 milljarður króna eða rúmlega 35% af landsframleiðslu, þar af rennur fimmtungur teknanna til sveitarfélaga. Aætlað er að beinir skattar hins opinbera verði um 66 milljarðar króna og óbeinir skattar um 83 milljarðar króna. í heild er áætlað að skatttekjumar aukist um nálægt 1% að raungildi milli ára. Heildarútgjöld hins opinbera munu hins vegar dragast saman um 1% að raungildi og verða um 177 milljarðar króna eða um 38,5% af landsframleiðslu. Samneyslan er þó talin aukast um 4'A milljarð króna milli ára í krónum talið eða um 2% að raungildi. Yfirlit um fjármál hins opinbera 1994-1995 1 milljörðum króna Brb. Áætlun Hlutfall af VLF 1994 1995 1994 1993 Heildartekjur............................ 154,5 161,1 35,6 35,1 1. Skatttekjur......................... 142,7 148,9 32,9 32,4 2. Aðrartekjur.......................... 11,7 12,2 2,7 2,7 Heildarútgjöld........................... 171,5 176,7 39,6 38,5 3. Samneysla............................ 87,4 92,0 20,2 20,0 - þar af afskriftir................... 2,7 2,8 0,6 0,6 4. Önnurútgjöld ........................ 86,8 87,5 20,0 19,1 Tekjuafgangur............................ -17,1 -15,6 -3,9 -3,4 Á ijárlögum A-hluta ríkissjóðs fyrir þetta ár, sem eru á greiðslugrunni, er gert ráð fyrir að tekjuhallinn verði um 7,5 milljarðar króna eða svipaður og á síðasta ári. 35

x

Þjóðarbúskapurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðarbúskapurinn
https://timarit.is/publication/1367

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.