Þjóðarbúskapurinn - 01.04.1995, Qupperneq 41
Niðurstöður úr atvinnukönnunum Þjóðhagsstofnunar, þar sem forsvarsmenn
fyrirtækja eru beðnir að meta stöðuna á vinnumarkaðnum, sýna ótvíræð batamerki.
Könnunin er gerð þrisvar á ári, í janúar, apríl og september. Þannig var vilji stjómenda
til fækkunar starfsfólks helmingi minni í janúar síðastliðnum en á sama tíma í fyrra.
Atvinnuástand er jafnan lakast á þessum árstíma og vilji til fækkunar starfsfólks hefur
verið ríkjandi meðal stjómenda í janúar um nokkurt skeið. I september síðastliðnum
töldu stjómendur hins vegar ekki þörf á breytingum í starfsmannahaldi, en fyrir þann
tíma vildu þeir fækka starfsfólki í öllum könnunum frá því í september 1991.
Tekjur, verðlag og kaupmáttur
í spá sinni um verðlag og kaupgjald í aðildarríkjum sínum hefur OECD gert ráð fyrir að
laun hækki um 3,4% á þessu ári og um 4% á næsta ári. Launakostnaður á framleidda
einingu er talinn aukast um 1,6% í ár og 2,2% á því næsta, en í þessu felst að framleiðni
vinnuafls aukist um 1,8%. Verðbólguspá stofnunarinnar hljóðar upp á 2,3% á þessu ári
og 2,6% á því næsta, sem boðar að kaupmáttur launa í OECD ríkjunum gæti aukist um
1,1% á þessu ári og 1,4% á því næsta. í Tyrklandi ríkir enn óðaverðbólga, sem nam
118% í fyrra og er það land undanskilið þegar meðaltalsverðbólga OECD ríkjanna er
metin.
Verðlagsmarkmið ríkisstjórnarinnar hefur verið byggt á að halda verðbólgunni
innan við meðaltal í öðrum OECD ríkjum og hefur þetta markmið verið haft að
leiðarljósi við gerð kjarasamninga nú í vetur.
Áætlaðar Iaunahækkanir í einkageira OECD ríkja, % frá fyrra ári
1993 1994 Áætlanir og spár 1995 1996
Bandaríkin 3,7 3,3 4,1 5,0
Japan 0,8 2,5 2,3 2,7
Þýskaland 4,5 2,9 2,2 3,4
Bretland 4,7 3,9 4,1 4,7
Sjö stærstu iðnríkin, samtals 3,2 3,0 3,3 4,0
Danmörk 2,8 3,6 3,6 4,1
Finnland 3,1 3,3 2,7 3,3
Noregur E0 3,1 3,1 3,4
Svíþjóð 7,4 4,3 3,7 3,5
Evrópuríki OECD 4,4 3,3 3,1 3,6
OECD í heild 3,7 3,3 3,4 4,0
Kjarasamningar nær allra launþega voru lausir um síðustu áramót. Kjarasamningar
tókust milli landssambanda er standa að ASÍ og vinnuveitenda þann 21. febrúar
síðastliðinn. Samningamir gilda til loka árs 1996, en eru þó uppsegjanlegir með
mánaðarfyrirvara frá 1. janúar 1996 ef marktæk frávik frá samningsforsendum koma í
ljós. Helstu ákvæði samingsins eru:
39