Þjóðarbúskapurinn

Eksemplar

Þjóðarbúskapurinn - 01.04.1995, Side 57

Þjóðarbúskapurinn - 01.04.1995, Side 57
til bankastofnana og lífeyrissjóða að gert verði átak í að skuldbreyta lánum. Ráðgjöf Húsnæðisstofnunar verður efld. • Unnið verður að úrbótum í málum fólks í atvinnuleit með virkum aðgerðum á sviði verkmenntunar og starfsþjálfunar. Á þessu ári verður 15 m.kr. viðbótarframlagi ráðstafað sérstaklega til þessara mála. • Ríkisstjómin mun í samráði við aðila vinnumarkaðarins undirbúa aðgerðir sem takmarki svonefnda gerviverktöku og tryggi réttindi launþega. • Varið verður 3ja milljóna kr. viðbótarfé í tillögugerð um hvemig megi draga úr launamun kynjanna. • Ríkisstjómin mun beita sér fyrir afgreiðslu frumvarps til laga um breytingu á skattalögum þar sem m.a. er kveðið á um að sannanlega tapað hlutafé í félögum, sem orðið hafa gjaldþrota, skuli teljast til rekstrargjalda. Sama mun gilda um hlutafé, sem tapast hefur vegna þess að það hefur verið fært niður í kjölfar nauðasamninga. • Athugað verði að skipta ábyrgðasjóði launa þannig að fyrirtæki innan VSÍ og VMS myndi sérdeild og aðrir vinnuveitendur sérstaka deild. • Lögum um Atvinnuleysistryggingar verði breytt í því skyni að gera fastráðningu fiskvinnslufólks mögulega. Mars Þann 1. mars gaf félagsmálaráðherra út reglur um úthlutun styrkja úr Atvinnuleysis- tryggingasjóði árið 1995 til átaksverkefna á vegum sveitarfélaga. Þann 2. mars voru gefin út lög um vísitölu neysluverðs. Vísitala neysluverðs kemur í stað framfærsluvísitölu og er útreikningi hennar hagað með sama hætti. Þann 10. mars hækkaði Seðlabankinn ávöxtun í endurhverfum ríkisvíxlaviðskiptum um 0,4 prósentustig, í 7,3%, og forvexti reikningskvóta um 0,9 prósentustig, í 6,4%. Jafnframt ákvað bankastjórn að fella tímabundið niður endurhverf kaup annarra verðbréfa en ríkisvíxla og lækka úthlutaðan reikningskvóta innlánsstofnana úr 10 í 5 dagmilljarða króna. Þessar breytingar eiga rætur í óróa á gjaldeyrismörkuðum, lækkun á gengi Bandaríkjadollars og hækkun vaxta hjá seðlabönkum erlendis. Þann 28. mars var skrifað undir nýjan kjarasamning milli kennarafélaganna og samninganefndar ríkisins eftir 6 vikna verkfall kennara. Kjaradeilan leystist eftir að deiluaðilar samþykktu sáttatillögu ríkissáttasemjara. Samningurinn er til ársloka 1996. Helstu atriði hans eru: • launatafla hækkar í tvígang um 3,1% og 3% • breytingar eru gerða á starfsaldursákvæðum og röðun í launaflokka • kennsluskylda er lækkuð • kennsludögum er fjölgað meðal annars með fækkun starfsdaga 55

x

Þjóðarbúskapurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðarbúskapurinn
https://timarit.is/publication/1367

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.