Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 20178 Þingmenn NV í nefndaforystu ALÞINGI: Í síðustu viku fór fram kosning í nefndir Alþing- is. Þingmenn Norðvesturkjör- dæmis eru þar býsna atkvæða- miklir. Stjórnarandstæðan fær þrjá formenn fastanefnda. Þar af var Bergþór Ólason Miðflokki kosinn formaður umhverfis- og samgöngunefndar. Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður VG verður formaður atvinnu- veganefndar og Haraldur Bene- diktsson þingmaður Sjálfstæð- isflokks varaformaður fjárlaga- nefndar. -mm Þyrlan í sjúkraflug SNÆFELLSNES: Þyrlu Landhelgisgæslunnar var seint á fimmtudagskvöldið síðasta send til móts við sjúkrabíl af Snæ- fellsnesi og sótti mikið veikan mann. Lenti þyrlan við Vega- mót og flutti manninn á Land- spítalann þar sem lent var um klukkan 1:30 um nóttina. -mm Sigríður Júlía í sveitarstjórn B O R G A R - BYGGÐ: Eins og nýlega var greint frá í frétt Skessuhorns hef- ur Ragnar Frank Kristjánsson ver- ið ráðinn sviðs- stjóri umhverf- is- og skipulagssviðs Borgar- byggðar. Hann mun samtímis hverfa úr sveitarstjórn þar sem hann hefur verið fulltrúi VG. Á fundi í flokksfélagi VG nýver- ið var ákveðið að Sigríður Júlía Brynleifsdóttir tekur sæti Ragn- ars Franks í sveitarstjórn. Vara- fulltrúi hennar verður Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir. -mm Safn lykilorða í umferð á netsíð- um tölvuþrjóta LANDIÐ: Netöryggissveit- in CERT-ÍS hvetur fólk til að huga að lykilorðum sínum á netinu. Síðustu daga hef- ur komið í ljós stórt safn lyk- ilorða og notendanafna sem hefur verið í umferð á netsíð- um tölvuþrjóta. Mælt er með að hver notandi fari reglulega gegnum alla sína reikninga og herði öryggi, m.a. breyti lykilorðum, a.m.k. þeim sem orðin eru meira en eins árs gömul. Hægt er að kanna hvort upplýsingar þínar hafi verið gerðar opinberar á síð- um eins og https://havei- beenpwned.com/ og gera þá strax ráðstafanir til að breyta sínum aðgangsupplýsingum. -mm Jólaaflatölur fyrir Vesturland dagana 9.-15. desember Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu Akranes: 1 bátur. Heildarlöndun: 508 kg. Mestur afli: Þura AK: 508 kg í einum róðri. Arnarstapi: 2 bátar. Heildarlöndun: 24.478 kg. Mestur afli: Tryggvi Eð- varðs SH: 20.279 kg í tveim- ur löndunum. Grundarfjörður: 8 bátar. Heildarlöndun: 364.848 kg. Mestur afli: Bylgja VE: 75.736 kg í einni löndun. Ólafsvík: 14 bátar. Heildarlöndun: 293.889 kg. Mestur afli: Tryggvi Eðvars SH: 50.080 kg í fjórum róðr- um. Rif: 16 bátar. Heildarlöndun: 417.006 kg. Mestur afli: Tjaldur SH: 112.423 kg í tveimur lönd- unum. Stykkishólmur: 6 bátar. Heildarlöndun: 121.096 kg. Mestur afli: Þórsnes SH: 37.059 kg í einni löndun. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Bylgja VE - GRU: 75.736 kg. 13. desember. 2. Hringur SH - GRU: 67.670 kg. 13. desember. 3. Steinunn SF - GRU: 59.891 kg. 9. desember. 4. Tjaldur SH - RIF: 58.372 kg. 9. desember. 5. Tjaldur SH - RIF: 54.051 kg. 14. desember. -kgk Hjúkrunarfræðingar óskast á Skjól hjúkrunarheimili Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga á Skjóli. Stöðurnar eru lausar nú þegar eða e�ir samkomulagi. Starfshlu�all og vinnu�mi e�ir samkomulagi. Til boða stendur að fá leigt húsnæði á vegum heimilisins, �mabundið. Starfslýsing: Starfið felst m.a. í stjórnun, ábyrgð og skipulagning á almennum hjúkrunarstörfum í samræmi við hugmyndafræði og markmið heimilisins. Skráning í RAI-gagnagrunn. Hæfniskröfur: Íslenskt hjúkrunarleyfi. Jákvæ� viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfileikar auk faglegs metnaðar og sjálfstæðis í vinnubrögðum. Nánari upplýsingar vei�r: Guðný H. Guðmundsdó�r framkvæmdastjóri hjúkrunar í síma: 522 5600 Umsóknir sendist á gudny@skjol .is Á Skjóli hjúkrunarheimili eru 106 rými á fimm deildum. Skjól er stofnaðili að hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi og eru hjúkrunarheimilin rekin í nánu samstarfi. Áhersla er lögð á faglega hjúkrunar– og læknisþjónustu auk sjúkra – og iðjuþjálfunar. Skjól hjúkrunarheimili Kleppsvegi 64, 104 Reykjavík Sími 522 5600 Á fundi sveitarstjórnar Borgar- byggðar í síðustu viku var tekin til umræðu skýrsla nefndar Umhverf- isráðuneytisins um stofnun þjóð- garðs á miðhálendinu svo og álykt- um Sambands íslenskra sveitarfé- laga um sama efni. Sveitarstjórn bókaði vegna þessa enda snert- ir umræða um þjóðgarð á miðhá- lendinu Borgarbyggð verulega vegna tengingar sveitarfélagsins við hálendið. „Ljóst er að stofnun miðhálendisþjóðgarðs myndi hafa í för með sér verulegar breyting- ar á landnotkun og landskipulagi hérlendis og kalla á verulega um- sýslu hvað varðar almenna stjórn- sýslu og margháttað utanumhald,“ segir í ályktun sem Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri hefur sent umhverfisráðuneytinu. Varðandi þessi mál vill sveitarstjórn Borg- arbyggðar skora á umhverfisráð- herra og þingmenn kjördæmisins að beita sér fyrir því að stofnun Þjóðgarðs á miðhálendinu verði sett niður á Hvanneyri í Borgar- firði. „Fyrir þeirri afstöðu liggja marg- vísleg rök,“ segir í bókun sveit- arstjórnar. „Mikilvægt er að fag- stofnun sem Þjóðgarðastofnun yrði fundinn staður þar sem hún yrði landfræðilega vel staðsett, myndi starfa í nánum tengslum við meg- inviðfangsefni sitt og hefði fagleg- an og samfélagslegan styrk af sínu nánasta umhverfi. Allar þessar for- sendur eru til staðar á Hvanneyri í Borgarfirði.“ Ýmis rök mæla með staðsetningu á Hvanneyri Sveitarstjórn rökstyður þessa áskorun sína í nokkrum tölulið- um. Meðal annars að Hvanneyrar- jörðin og nánasta umhverfi hennar í Andakíl hafi hlotið formlega við- urkenningu sem friðland. Land- svæðið hafi verið friðlýst sam- kvæmt náttúruverndarlögum árið 2002 og friðlandið síðan stækkað enn frekar árið 2011. Árið 2013 fékk landsvæðið viðurkenningu sem Ramsarsvæði, en það er al- þjóðlegt búsvæði fugla. Það und- irstrikar enn frekar sérstöðu þessa svæðis. Gömlu húsin á Hvann- eyri og engjarnar voru síðan frið- lýst í heild sinni sem sérstakt bú- setuminjasvæði árið 2015. Það er einstakt á Íslandi að heilt búsetu- minjasvæði, sem nær bæði yfir byggingar og nærliggjandi land- svæði, sé friðlýst sem ein heild. Þá segir í ályktun sveitarstjórnar að í Borgarbyggð eru sex önnur frið- lönd og fjöldi landssvæða á nátt- úruminjaskrá. Hluti sveitarfélags- ins nær inn á miðhálendið eins og það hefur verið skilgreint. Þar má nefna stóran hluta Langjökuls, Ei- ríksjökul, Geitland, Hallmundar- hraun, Arnarvatnsheiði og Tví- dægru. Þá bendir sveitarstjórn á að Hvanneyri sé auk þess í þjóðbraut eins og leið liggur milli Snæfells- ness, Vestfjarða, Norðurlands, Suðurlands og höfuðborgarsvæð- isins. Sveitarstjórn bendir á að við Landbúnaðarháskóla Íslands hafi undanfarin 15 ár verið starfrækt kennslubraut í þjóðgarðafræðum og náttúruvernd. Fjöldi B.s. og M.s. nema hafa verið útskrifaðir frá námsbrautinni á þeim tíma sem hún hefur starfað. LbhÍ er auk þess með fjölbreytt nám í landnýtingu svo sem búfræði, búvísindum, um- hverfisskipulagi, skógrækt og land- græðslu. Þá er bent á að vorið 2018 verði opnuð gestastofa í Halldórs- fjósi á Hvanneyri. Gestir stofunnar munu þar fá tækifæri til að fræðast um fuglalífið í friðlandinu Anda- kíl. Auk þessara atriða er bent á að Gamli skólinn og skólastjórahús- ið á Hvanneyri séu nátengd þróun og uppbyggingu búfræðimennt- unar á Íslandi. Þessar byggingar eru í eigu ríkisins en hafa lítið ver- ið nýttar eftir að hinu upprunalega hlutverki þeirra lauk þrátt fyrir að vera í mjög góðu ástandi. Kjörið tækifæri er því til að koma þar fyr- ir starfsemi sem tengist opinberri stjórnsýslu og náttúruvernd. Þjóð- garðastofnun Íslands er því tilval- inn kostur í því sambandi. „Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir sig reiðubúna að ræða stofn- un miðhálendisþjóðgarðs við um- hverfisráðherra í tengslum við ofangreint erindi. Sú afstaða fel- ur þó ekki í sér óskoraðan stuðn- ing við stofnun miðhálendisþjóð- garðs því áður en slíkrar ákvörð- unar kemur þarf að sætta mörg ólík sjónarmið,“ segir að endingu í erindi Borgarbyggðar til Um- hverfisráðuneytisins. mm Vilja að Miðhálendisþjóð- garður fái aðsetur á Hvanneyri Svipmynd frá Hvanneyri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.