Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 59
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017 59
og þá var oft erfitt að keyra leigubíl í
Reykjavík, göturnar lítið ruddar, allt
á kafi í snjó og því erfitt að sjá all-
ar merkingar og skilti.“ Diddi segir
mikið hafa verið að gera í leiguakstr-
inum í Reykjavík en hann hætti að
keyra árið 2007 og þau hjónin fluttu
aftur til Akraness og keyptu sér íbúð
við Skarðsbrautina.
Sóttu oft um
íbúð á Höfða
Þau Diddi og Gurrý seldu svo íbúð-
ina á Skarðsbrautinni. „Við lentum
á smá flakki. Við leigðum fyrst lítið
hús hér inn við Höfða en svo seld-
ist það og þá leigðum við húsið hans
Gísla Sig. en svo seldist það líka. Við
vorum alltaf að bíða eftir að kom-
ast inn hérna á Höfða og sóttum
um íbúð hér fjórum eða fimm stöð-
um áður en við fengum þessa. Hérna
er mjög gott að vera. Öll þjónusta
hérna er til fyrirmyndar og starfs-
fólkið alveg einstaklega gott. Þetta
eru góðar íbúðir en kannski kominn
tími á endurnýjun. Hann er alveg
eiturgrænn þessi framsóknarlitur
hérna,“ segir Diddi og hlær. Sjón-
depra hefur orðið til þess að Diddi
getur ekki lengur keyrt bíl og síð-
asti leigubíllinn hans E-160 stend-
ur nú á bílastæðinu við Höfða og er
ekki hreyfður nema Diddi fái bíl-
stjóra með sér. „Þetta númer var
á fyrstu rútunni sem ég keyrði hjá
Manga Gull og ég hef verið lengi
með það og síðan sem einkanúmer
eftir að númerabreytingin varð. Ég
er með ónýta augnbotna og sjónin
er orðin döpur. Þess vegna nýt ég
t.d. ekki nógu vel þessa góða útsýn-
is sem er úr íbúðinni okkar hér yfir
Langasandinn og höfnina.“
Diddi átti sex systkini, þau Gunn-
ar Líndal, Ingu Lóu, Guðmund
Jens, Hallgrím Þór, Jónas Braga og
Pétur Sævar. Diddi var þriðji í ald-
ursröðinni en tveir bræðranna þeir
Gunnar og Pétur eru látnir núna.
Þau Diddi og Gurrý eiga saman
fimm börn en auk þess á Diddi þrjú
börn með tveimur konum. Hann
segir Gurrý hafa haldið tryggð við
sig þrátt fyrir þetta en þau hafi þó
skilið í tvö ár. Þetta eru allt fínir
krakkar sem ég á, mikill fjársjóð-
ur og svo er barnabarnahópurinn
orðinn stór. Það held ég nú,“ seg-
ir þessi aldni og hressi bílstjóri að
endingu. hb
Vinstrihreyfingin grænt framboð
í Norðvesturkjördæmi óskar íbúum kjördæmisins
og lesendum Skessuhorns gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þökkum samstarfið og stuðninginn á árinu sem er að líða.
Gleðileg jól
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Diddi sker afmælistertuna í áttræðisafmælinu í sumar með aðstoð Ingu Birnu
Ölludóttur barnabarns.
Sigurður og Guðrún með börnum sínum. Efri röð f.v.: Stefanía, Alla, Jakob og
Sigrún. Neðri röð f.v. Diddi, Gurrý og Sissa.
Systkinin, sem enn eru á lífi, Jónas, Inga Lóa, Sigurður, Guðmundur og Hallgrímur
Þór.
Börn og tengdabörn Didda. Myndin er tekin eftir jólahlaðborð en systkinin hafa hist árlega á jólahlaðborði í rúm tuttugu ár.