Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 48
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201748
Alvarleg vélarbilun í Baldri
Í lok nóvember varð bilun í aðalvél flóabátsins Baldurs.
Fljótlega kom í ljós að skipið yrði bundið við bryggju í marg-
ar vikur vegna þessa. Vélin var tekin úr skipinu nú fyrrihlut-
ann í desember og stendur viðgerð á henni enn yfir í Garða-
bæ og erlendis. Bjartsýnustu spár gera ráð fyrir að skipið
komist í áætlunarsiglingar að nýju í janúar. Ekkert skip er
til að leysa Baldur af og er það afar bagalegt fyrir atvinnulíf
og íbúa beggja megin Breiðafjarðar að siglingar liggi niðri
þetta lengi. Ekki hvað síst kemur þetta sér illa þar sem vega-
bætur á sunnanverðum Vestfjörðum hafa verið jafn litlar og
raun ber vitni.
Hótelið háa - æsispennandi
framhaldssaga úr Borgarnesi
Sagan endalausa í Borgarnesi þetta árið var bygging hótels og
fjölbýlishúss við Borgarbraut 57-59 þar í bæ. Eftir mikið japl,
jaml og fuður, kröfumál og deilur, var hafist handa við að reisa
hótelbygginguna á nýjan leik á liðnu sumri og fjölbýlishús-
ið í haust. Síðan þá hafa framkvæmdir gengið nokkuð greið-
lega fyrir sig, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem tekin
var í lok nóvember. Hótelbyggingin verður fjórar hæðar en á
fimmtu hæðinni verður inndregin bygging með stórum hótel-
herbergjum eða svítum. Hótelið verður alls með 84 herbergj-
um. Íbúðablokkin á lóð 57 verður lítið eitt hærri, eða alls sjö
hæðir. Líkt og í hótelbyggingunni er gert ráð fyrir inndregn-
um mannvirkjum á sjöundu hæðinni þar sem verða þrjár íbúð-
ir með miklu útsýni til allra átta. Alls verða 28 íbúðir í fjöl-
býlishúsinu.
Samið um niðurrif
Sementsverksmiðjunnar
Bæjaryfirvöld á Akranesi gengu til samninga við fyrirtæk-
ið Work North ehf. um niðurrif bygginga og búnaðar Sem-
entsverksmiðjunnar á Akranesi nú í byrjun desembermánað-
ar. Samkvæmt verkáætlun á þessum fyrsta áfanga niðurrifsins
að verða lokið fyrir októberlok á næsta ári. Strompurinn er vel
að merkja ekki inni í fyrsta áfanga niðurrifsins, svo því sé hald-
ið til haga. Um framtíð hans fá Akurnesingar að kljást á næsta
ári, annálaritara til mikillar tilhlökkunar.
Dalamenn tóku vel
á móti forsetanum
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid for-
setafrú, fóru í opinbera heimsókn í Dali ásamt fríðu föruneyti
í byrjun mánaðarins. Þar heimsóttu þau fyrirtæki og stofnan-
ir í Dalabyggð, fræddust um sögu héraðsins og hittu íbúana.
Er það mál manna að afar vel hafi tekist til og hafði forset-
inn á orði að Dalamenn væru höfðingjar heim að sækja. Á
meðfylgjandi mynd má sjá forsetann með sverð á lofti á Ei-
ríksstöðum, viðbúinn að skera upp herör gegn mönnum sem
ganga í einlitum sokkum og setja ananas á pizzur.
Fréttaannáll ársins 2017 í máli og myndum
Fátt er notalegra en leita hentugra jólatrjáa í aðdraganda hátíðarinnar sem í hönd fer. Þessi frísklega fjölskylda var í slíkum erindagjörðum í Borgarfirði um liðna helgi, en þarna eru þau Ingvar Svavarsson og
Bryndís Gylfadóttir með dætur sínar þrjár. Að endingu fannst hentugt tré sem prýðir nú ljósum skrýtt hús þeirra á Akranesi.
mm