Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201726 Við þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug og stuðning á árinu vegna andláts og útfarar okkar ástkæra Helga Björgvinssonar í sumar. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki HVE, stuðningsmönnum og aðstandendum ÍA. Stuðningur ykkar allra hefur verið okkur ómetanlegur. Óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Ingibjörg Sigurðardóttir og fjölskylda Leik- og grunnskóli Hvalfjarðar- sveitar auglýsir lausa stöðu þroska- og/eða iðjuþjálfa Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar er starfræktur á tveimur starfsstöðvum í sveitarfélaginu, Heiðarskóli við Leirá við Skarðsheiði og Skýjaborg í íbúðarhverfinu Melahverfi. Laus er staða þroska- og/eða iðjuþjálfa. Starfshlutfall er 100%, 80% á leikskólasviði og 20% á grunnskólasviði. Um framtíðarstarf er að ræða. Umsóknarfrestur um starfið er til 3. janúar 2018. Ef ekki fæst þroska- og/eða iðjuþjálfi verður litið til menntunar og reynslu. Nánari upplýsingar um helstu verkefni, ábyrgð, hæfniskröfur og umsóknarfyrirkomulag er að finna á http://skoli.hvalfjardarsveit.is. S K ES SU H O R N 2 01 7 Yggdrasill markþjálfun og Me- tabolic Akranesi standa í samein- ingu fyrir góðgerðarsöfnun fyr- ir Geðhjálp í aðdraganda jólanna. Hún felst í því að Ingólfur Péturs- son, eigandi Yggdrasils, ætlar að hjóla hvorki meira né minna en eitt þúsund kaloríur á Assault bike þrekhjóli til styrktar Geðhjálp, án þess að stíga nokkrun tímann af hjólinu á meðan. „Þúsund kaloríur er talsvert mikið,“ segir Ingólfur í samtali við Skessuhorn. „Á venju- legri æfingu í 20 mínútur, þar sem maður tekur vel á því allan tímann, telst bara gott að ná um það bil 200 kaloríum. Þá er maður mjög þreyttur eftir á,“ útskýrir hann. En hvernig datt Ingólfi þetta eiginlega í hug? „Þetta byrjaði nú bara sem grín. Ég er að æfa í Me- tabolic og á einhverri æfingunni náði ég 250 kaloríum á hjólinu. Ég var hæstánægður með það og þurfti aðeins að monta mig. Þá spurði Gunnhildur [Jónsdóttir] unnusta mín hvenær ég ætli eiginlega að ná 500? Vildi einmitt svo til að Rúna Björg Sigurðardóttir, þjálfari og eigandi Metabolic, hafði einmitt spurt mig að þessu sama á æfing- unni. Ég svaraði því til að það yrði ekkert mál að ná 500, frekar skyldi ég fara upp í þúsund án þess að stíga af hjólinu,“ segir hann. „Síð- an einhvern veginn var bara ákveð- ið að gera þetta. Upphaflega ætl- aði ég nú bara að gera þetta til að gera þetta, bara fyrir mig sjálfan og jafnvel til að skapa stemningu í æf- ingahópnum. En svo fannst okk- ur bara upplagt að gera þetta að góðgerðarmáli og ákváðum að slá til. Undanfarið hef ég verið í stífu þjálfunarprógrammi hjá Rúnu þar sem hún er að undirbúa mig fyrir þetta,“ segir Ingólfur. „Ég er bú- inn að vera að vinna mig upp und- anfarnar vikur, hjólaði 750 kalorí- ur á stórri æfingu síðasta laugardag og æfi á hjólinu eingöngu tvisvar sinnum í viku. Ég ætla að ná þús- und kaloríum einu sinni áður en Þorláksmessa gengur í garð,“ seg- ir hann. Rauði þráðurinn að ræða um málin Spurður hvers vegna ákveðið hafi verið að safna fyrir Geðhjálp seg- ir hann samtökin bæði honum og Rúnu hugleikin. „Okkur er þetta báðum hugleikið. Ég þekki ekki hennar ástæður en hvað mig sjálf- an snertir þá hef ég misst tvo félaga mína vegna sjálfsvígs. Í bæði skipt- in kom það öllum algerlega í opna skjöldu. Enginn í kringum þá vissi hvað þeir voru að glíma við,“ seg- ir Ingólfur. „Eins og margir vita þá hefur verið holskefla af sjálfsvígum hjá ungum karlmönnum undanfarin ár þrátt fyrir nokkra vitundarvakn- ingu í þeim efnum. Það er langur vegur framundan því það er enn þannig að karlar virðast síður þora að tjá sig en konur ef eitthvað amar að. Í gegnum tíðina hefur myndast sú stemning í samfélaginu að líðan sé eitthvað tabú hjá körlum og þeir eigi ekkert að tala um það,“ seg- ir hann. „En ekkert er fjarri sanni og Geðhjálp varð fyrir valinu því það eru stór samtök með mikla og góða starfsemi þar sem rauði þráð- urinn er að ræða um málin. Lögð er áhersla á að segja frá líðan og vakin athygli á því að það sé ekki aðeins í lagi að tala um hlutina heldur sjálf- sagt að tala um og vinna í hlutnum. Ekki síst þess vegna varð Geðhjálp fyrir valinu,“ segir Ingólfur. Hægt að hjóla honum til samlætis Þrekraunina ætlar Ingólfur að leggja á sig á Þorláksmessu, 23. desember næstkomandi og hann kvíðir þess ekki að jólahald muni raskast á heimili hans vegna þessa. „Aðfangadagur verður góður, ég skelli mér kannski á morgunæfingu ef ég verð í stuði,“ segir hann og hlær við. „En auðvitað mun þetta taka á. Þegar ég hjólaði 750 kalorí- ur um daginn tók það klukkutíma og níu mínútur. Ég ætla að gefa mér alveg tvo klukkutíma í að fara upp í þúsund,“ segir hann og hvet- ur alla sem vilja leggja málefninu lið að mæta í Metabolic á Þorláks- messu. „Við bjóðum fólki að koma milli 10:00 og 12:00 á Þorláks- messu, kaupa sig inn á annað hjól með frjálsum framlögum og hjóla mér til samlætis,“ segir Ingólfur að endingu. Einnig er hægt að leggja söfnun- inni lið með því að leggja inn og millifæra frjáls framlög á reikning í heimabanka. Reikningsupplýs- ingar má finna á Facebook-síðum Yggdrasils markþjálfunar og Me- tabolic Akranesi. kgk Hjólar fyrir Geðhjálp á Þorláksmessu Ingólfur Pétursson á þrekhjólinu. Ingólfur ásamt Rúnu Björg Sigurðardóttur, þjálfara og eiganda Metabolic Akranes. Aðfangadagur Aftansöngur kl. 18 Prestur: Sr. Eðvarð Ingólfsson Forsöngvarar úr röðum kórfélaga. Miðnæturguðsþjónusta kl. 23 Prestur: Sr. Þráinn Haraldsson Jóladagur Hátíðarguðsþjónusta kl. 14 Prestur: Sr. Eðvarð Ingólfsson Rut Berg Guðmundsdóttir leikur á þverflautu Annar í jólum HÖFÐI Hátíðarguðsþjónusta kl. 12.45 Prestur: Sr. Eðvarð Ingólfsson Gamlársdagur Aftansöngur kl. 18 Prestur: Sr. Eðvarð Ingólfsson Nýársdagur Hátíðarguðsþjónusta kl. 14 Prestur: Sr. Þráinn Haraldsson Ekki messað aftur fyrr en 14. janúar nk. Akraneskirkja Sveinn Arnar Sæmundsson, organisti og kórstjóri, leikur á orgelið í öllum athöfnum um jól og áramót. Kór Akraneskirkju syngur. Minnum á Nýárstónleika Kórs Akraneskirkju í Bíóhöllinni 6. janúar nk. kl. 20. Miðasala í versluninni Bjargi. GLEÐILEGA JÓLAHÁTÍÐ! SK ES SU H O R N 2 01 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.