Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 66

Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 66
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201766 Dularfulla Búðin Gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum góðar viðtökur á árinu 2017 Sjáumst aftur á nýju ári Vilborg Kristófersdóttir nálgast óðum nítugasta og fimmta aldursár sitt. Hún er heilsuhraust utan augn- sjúkdóms sem hrjáði hana í marga áratugi en hún fékk bót á með nýj- um hornhimnum árið 1988. Síð- an þá hefur hún ekki kvartað undan slæmri heilsu. Blaðamaður Skessu- horns mælti sér mót við hana á köld- um desembermorgni til að ræða um farskólann í Skorradal, en Vilborg var farkennari þar veturinn 1944-45. Flestir bæir í Skorradal sem Vil- borg talar um eru nú komnir í eyði. Vilborg er skörp og man vel eftir kennslunni, sveitinni og börnunum sem hún kenndi. Kennt var á fjórum bæjum; Mó- fellsstöðum, Efstabæ, Grafardal og Vatnshorni. Fór Vilborg á milli á hesti með fylgd. Börnunum var kennt á hverjum bæ fyrir sig, sum gistu, önnur gengu aftur heim að kennslu lokinni en flest voru bæði í hádegismat og miðdegiskaffi á þeim bæ sem skólinn var hverju sinni. Vil- borg skráði dagbók um veturinn. Gefum Vilborgu orðið þar sem hún skrifar frá Mófellsstöðum í byrjun veturs 1944: Ágæta vinkona! Gefið loforð um að rispa þér eins konar dagbók skal nú hafið. Ferð- in hingað gekk vel. Ég lagði af stað með áætlunarbílnum Akranes-Reyk- holt og fór með honum að Innri- Skeljabrekku. Þar beið einn bóndi úr Skorradal eftir mér. Hann var með hest og vagn, fyrir dót mitt og jarpan stólpagrip er mér var fenginn til ásetu. Maður þessi heitir Eiríkur Sigurðsson og býr í Mófelsstaðakoti, það er næsti bær hér fyrir vestan. Eftir að hafa þegið hressingu hjá Þóru og Gísla á Brekku lögðum við Eiríkur af stað. Veður var suðvestan éljagangur en bjart á milli. Ekki vor- um við fyrr komin úr hlaði en Ei- ríkur segir mér að Ágústa í Neðri- Hrepp biðji okkur að gjöra svo vel og borða hjá sér hádegismat og það sé útilokað annað en þiggja þetta boð því hún muni bíða með mat- inn tilreiddan handa okkur. Ég segi að hann skuli því ráða og héldum við heim að Neðri-Hrepp. Ekki er það að orðlengja að Ei- ríkur hafði rétt fyrir sér með mat- inn. Hans þurfti ekki að bíða. Fyrir okkur var borinn glænýr silungur og dýrðlega góðar kartöflur og annað tilheyrandi. Eftir að hafa notið þessa góða matar og hlýja viðmóts þessa mér alsókunnuga fólks héldum við sem leið liggur hingað. Þetta er eng- inn vegur að heitið geti, bara troðn- ar slóðir sem hægt er að skrönglast með vana eftir. Hér byrjar svo vetrarstarfið. Fyrsta daginn þegar börnin voru að koma fannst mér ég alveg ætla að missa minn litla kjark en úr því sem kom- ið var, var ekki um annað að gera en duga, því aftur var ekki snúið að svo stöddu. Þetta verða hér þrettán börn í skóla, níu drengir og fjórar stúlkur. Ekki veit ég hvað skólastofan er stór en hún er líka mitt svefn- og vinnu- pláss. Upphitun er reykofn frá kola- ofni í næsta herbergi. Heimilisfólk hér er hjónin Guðfinna Sigurjóns- dóttir og Vilmundur Jónsson, systk- ini Vilmundar, Þórður, Guðmund- ur og Júlíana, alltaf kölluð Júlla. Svo eru tveir synir þeirra hjóna Bjarni og Þórður, hann er í skóla, á að fermast í vor. Þórður eldri er blindur frá sjö ára aldri. Hann er framúrskarandi smið- ur. Hann hefur smíðastofu í kjallar- anum á íbúðarhúsinu. Hann heyrist oft syngja við vinnu sína. Það er hefð að þeir er hafa verið hér kennarar lesi fyrir Þórð og eigi skal ég því bregð- ast. Þá situr hann og rær og fær sér gjarnan í pípu. Hann er sá eini hér á bæ er snertir tóbak. Þórður er 70 að aldri. Honum var í afmælisgjöf í vor gefinn farmiði með flugvél frá Stóra Kroppsmelum til Reykjavíkur. Honum fannst þetta mjög mikið æv- intýri því hann hafði svo mikla löng- un til að finna hvernig væri að fljúga og ekki orðið fyrir vonbrigðum. Ein- hver var sem fræddi hann um lands- lagið er flogið var yfir. Nú er ég búin að vera á fundi með fræðslunefndinni. Í henni eiga sæti þrír bændur: Kristján Guðmunds- son á Indriðastöðum, Skarphéð- inn Magnússon í Dagverðarnesi og Eiríkur Sigurðsson Mófelsstaða- koti. Fundurinn var haldinn á Indr- iðastöðum og nú er búið að kveða hvernig skólanum verður skipt. Héð- an fer ég að Efstabæ, það er innsti bærinn í dalnum og verð þar í fjór- ar vikur. Þá er aftur komið hingað og verið fram að jólafríi og aftur eftir jól þá farið að Grafardal og verið þar 4 vikur. Þá verið hér í 4 vikur að Vatns- horni í 4 vikur og endað hér senni- lega í 10 daga. Hver dagur er öðrum líkur. Börnin eru stundvís og prúð, gera sitt besta til náms en á mörgu er að taka og tíminn stuttur. Þau fara flest heim og heiman. Ein stúlka er í dvöl hér hún á svo langt heim og svo eru systkini sem komið er fyrir á Indriðastöðum. Það er næsti bær hér fyrir innan en þar á bæ eru tvö fósturbörn þeirra hjóna. Ferðalög á milli bæja í öllum veðrum Vilborg þurfti að ferðast reglulega á milli bæjanna í sveitinni til að ná til allra barnanna. Vegirnir í Skorradal voru þá ekki upp á marga fiska, ein- göngu troðnir slóðar sem farnir voru á hestum. Vilborg skrifar næst frá Efstabæ í nóvember en ferðin þang- að var erfið og löng í vetrarmyrkr- inu. Ferðalag okkar Vilmundar hingað verður víst lengi í minni bæði mínu og annarra. Frá Mófellsstöðum og Endurminningar um farskóla í Skorradal Vilborg Kristófersdóttir á Læk segir frá farskólakennslu í Skorradal veturinn 1944-45 Vilborg Kristófersdóttir að Læk í Hvalfjarðarsveit. Hún var far- kennari í Skorradal um veturinn 1944-45. Hér er hún stödd í gamla húsinu á Hvítanesi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.