Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 100

Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 100
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017100 Á suðvesturströnd Grænlands, stærstu eyju í heimi þar sem búa tæp- lega 56 þúsund manns, stendur þyrp- ing nokkurra smáhýsa í lítilli vík sem heitir Kugssuangup. Þessir kofar eru í eigu íslenska fyrirtækisins Laxár. Laxá hefur í um 30 ár selt veiðileyfi í margar lax- og silungsveiðiár á Ís- landi en einnig í Skotlandi, Rússlandi og á Grænlandi. Björn Hilmarsson rafvirki (Bjössi) og Guðrún Hjaltalín fulltrúi unnu sem leiðsögumenn fyr- ir Laxá á Grænlandi í tvo mánuði á þessu ári. Þau ferðuðust um á bátum og veiddu hreindýr, silung og þorsk sér til matar og segja dvölina hafa verið ævintýri út í gegn. „Við sáum á fésbókinni auglýsingu frá byssu- smið á Selfossi sem kallaður er Bóbó en við fórum með honum í veiðiferð til Grænlands fyrir þremur árum síð- an. Hann vantaði mann með sér til Grænlands í sumar til að „gæda“ eða leiðsegja veiðimönnum. Kröfurn- ar voru þær að hann þurfti að hafa pungapróf og kunna að skjóta,“ seg- ir Bjössi en bæði eru þau mikið úti- vistar- og veiðifólk og fara á hrein- dýraveiðar austur á Hérað þegar þau eru svo heppin að fá úthlutað dýri. „Mér fannst það voða fyndið, hringdi í Guðrúnu og sagði henni frá þessu. Hún hafði þá séð auglýsinguna og spurði strax: Ertu búinn að hringja í Bóbó? Nei, sagði ég. Hringdu núna, bæ! sagði hún og skellti á. Fimm mín- útum síðar var ég búinn að ráða okk- ur bæði í vinnu á Grænlandi. Þetta var núna í vor. Við fórum svo út í lok júlí og komum heim í byrjun októ- ber,“ segir Bjössi. Labbar ekkert og skreppur út í búð Bjössi og Guðrún ráðstöfuðu sum- arfríi sínu í þetta verkefni og fengu auk þess launalaust leyfi frá sínum daglegu störfum en þau vinna bæði hjá Norðuráli á Grundartanga. Riffl- ar, veiðistangir og föt til skiptanna í tveimur bakpokum og einni tösku var allt og sumt sem þau tóku með sér. En höfðu þau einhverja hug- mynd um hvað þau voru að fara út í? „Við vissum bara að við vorum að fara að veiða. Ef þú ætlaðir að fá eitthvað að borða þá þurftirðu að veiða það,“ segir Bjössi. Þau vissu líka að þau myndu ferðast um á bát- um, hefðu ekkert netsamband og lít- ið sem ekkert símasamband. Að lífið væri fábrotið og að þau væru í raun að fara að lifa á því sem náttúran gef- ur. „Þú labbar ekkert og skreppur út í búð þarna,“ segir Guðrún. Það var hálftíma sigling úr búðunum, eða kampinum svokallaða, í verslun í því þorpi sem næst þeim var. „Þar var alltaf spurning hvað var til og hversu langt var síðan skip kom síðast með vistir. Í því þorpi hafa 17 manns heils árs búsetu,“ segir Bjössi. Og þó versl- unin hafi ekki verið stór minnti hún á aðra vel þekkta verslun sem eitt sinn var á Akranesi. „Búðin er svona jafn stór og innri hlutinn af stofunni okk- ar hérna heima. Þar fékkst matvara, olía, brennivín, bjór, búsáhöld og skotfæri,“ segir Guðrún. „Allt sem þér dettur í hug,“ bætir Bjössi við og heldur áfram. „Þeir voru þó hætt- ir að selja byssur í þeirri búð. Eigin- lega var hún eins og Axelsbúð hér á Akranesi var, plús bjór og matvara.“ „Bara eins og gömlu kaupfélögin,“ segir Guðrún. Laukur, hnífar, skotvopn og skóladót Í stærri bæjum eins og Narsaq, þar sem búa um 600 manns, var hægt að fá föt, mat, skotvopn og skóla- dót. „Það var náttúrlega ekkert rosa- legt vöruúrval. Það voru bara þrjár tegundir af bjór, fjórar tegundir af rauðvíni og hvítvíni og tvær tegund- ir af viskíi. Svo voru nokkrar gerðir af kryddi; sumar voru kannski bún- ar og þá voru þær ekki til næstu tvo mánuðina,“ segir Bjössi. Ekki reynd- ist alltaf auðvelt að útvega lauk en beikon var gripið glóðvolgt hvar sem til þess sást. „Við sigldum einu sinni í tvo bæi, það var fimm tíma sigling. Í Qaqortoq fórum við í búðir til að reyna að finna lauk. Við keyptum beikon í öllum búðum, hreinsuðum alveg upp úr einni búðinni en eng- inn laukur fannst. Í síðustu búðinni var okkur sagt að laukurinn kæmi með næsta skipi. Það var meira mál að kaupa lauk heldur en skotfæri og riffla,“ segir Bjössi og brosir. Og meðferð vopna er með öðrum hætti á Grænlandi en hér. „Það besta var þegar ég keypti riffil. Hann var uppi á vegg fyrir ofan afgreiðslukassann og vínið og ég sagði við afgreiðslu- manninn: Ég ætla að fá einn svona riffil. Já, á ég að taka hann úr kassan- um fyrir þig? svaraði afgreiðslumað- urinn. Það þótti bara hið eðlilegasta í heimi að rölta í gegnum bæinn með riffil á öxlinni og fullt belti af hnífum utan á sér. En ef þú labbaðir um með skiptilykil, þá varstu eitthvað skrýt- inn,“ segir Bjössi og hlær. Gengið á fiski Samband úr kampinum við um- heiminn var af skornum skammti og ekki með þeim hætti sem við eigum að venjast í dag á tímum farsíma og netsambands. „Í bæjunum var síma- samband en þar sem við bjuggum í kampinum í Kugssuangup var stop- ult samband með gervihnattasíma. Þú þurftir að fara á ákveðinn punkt og standa þar. Þú gast ekkert verið á röltinu með símann,“ segir Bjössi. Fólkið sem vann með Bjössa og Guðrúnu voru Svíar og Grænlend- ingar auk tveggja Íslendinga. „Ég var mikið með einum Grænlendingn- um. Við sigldum á bátum og svipuð- umst um eftir hreindýrum. Ég stökk oft í land, hljóp upp á klettana og at- hugaði hvort ég sá einhver dýr,“ segir Bjössi en starfið fólst aðallega í því að leiðsegja veiðimönnum í hreindýra- og silungsveiði. En af silung var meira en nóg, af frásögn Bjössa að dæma. „Rétt hjá kampinum okkar var lítil á og vatn og þar var meira en nóg af fiski. Það var nú frekar auðvelt að leiðsegja mönn- um í silungsveiðinni. Það er engin lygi að þegar gangan var hvað mest af fiski í ánni á leið upp í vatnið, þá var eiginlega hægt að ganga yfir ána þurrum fótum á fiskinum. Maður sagði bara við veiðimennina: Sérðu svarta stóra flekkinn þarna? Kastaðu á hann, þetta er fiskur. Það var eig- inlega óraunverulegt, hvað það var mikið af fiski þarna. Ef þú ferð í þetta vatn og færð ekki fisk þá ferð þú í sögubækurnar sem einhver alminnsti veiðimaður allra tíma. Vöðlur voru óþarfar vegna þess að fiskurinn var bara í fjöruborðinu. Þetta voru mik- ið þriggja til fimm punda fiskar en stærstu fiskarnir voru um átta pund.“ Nágrannar þeirra í klettunum fyr- ir ofan kampinn voru engir kotbúar því þar hafði haförn gert sér hreiður og hann flaug gjarnan tignarlega um loftin blá yfir kampinum. Heimsþorp veiðimanna Veiðimennirnir sem dvöldu í kamp- inum komu alls staðar að úr heim- inum en fjölmennastir voru Banda- ríkjamenn. „Það var hjá okkur eitt par frá Rússlandi. Svo voru þetta Þjóðverjar, Svisslendingar, Frakk- ar, Nýsjálendingar, Suður-Afríku- menn og Englendingar. Svo fengum við tvo hópa af Íslendingum,“ seg- ir Bjössi og Guðrún heldur áfram. „Það kom bátur á laugardögum og þriðjudögum og veiðimenn voru þarna í þrjá til fjóra daga og upp í viku í senn. Bandarískur sjónvarps- maður, vel þekktur þar, sem hefur farið út um allan heim, var að gera sjónvarpsþátt um Grænland og var hjá okkur í tíu daga. Mest voru 16 veiðimenn í kampinum í einu. Fyrri part sumars eru þarna stangveiði- menn og í ágúst fara skotveiðimenn- irnir að koma í hreindýrin. Svo fara margir að veiða sauðnaut á svæði sem er í um það bil tveggja tíma siglingu norðan við kampinn okkar.“ Í Hvergilandi Kampurinn samanstendur af nokkr- um litlum kofum eða smáhýsum eins og áður segir og í einu slíku gistu þau. „Þetta eru eiginlega garðkof- ar. Þar komast fyrir tvö rúm, nátt- borð og kommóða,“ segir Guðrún. „Þessir kofar eru í kringum 25 fer- metrar og standa saman í þyrpingu. Þarna er samt rafmagn og rennandi vatn og vatnssalerni, hægt að kom- ast í heita sturtu og meira að segja er þarna saunaklefi,“ segir Bjössi. Hann segir Bandaríkjamennina hafa hrósað aðstöðunni í hástert, þótt þetta væri „in the middle of nowhere,“ eins og þeir hafi orðað það, í Hvergilandi. Björn Hilmarsson og Guðrún Hjaltalín dvöldu á Grænlandi í tvo mánuði í sumar: „Ef þú ætlaðir að borða eitthvað þurftirðu að veiða það“ Bjössi og Guðrún á göngu upp að jökli í leit að snæhéra og rjúpu. Víkin í Kugssuangup og smáhýsin sem Bjössi og Guðrún dvöldu í. Myndarlegir ísjakar í innsiglingunni við eyjuna Qassimiut. Bjössi með fallegan silung í vatninu ofan við víkina í Kugssuangup. Guðrún með hreindýrstarf sem hún felldi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.