Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201728
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Stjórn og starfsfólk Búnaðarsamtaka
Vesturlands sendir bændum og búaliði
á starfssvæði Búnarsamtakanna
hugheilar jólakveðjur með ósk um
farsælt komandi ár.
Þökkum samstarf á árinu sem er að líða.
Sendum öllum félagsmönnum og
ölskyldum þeirra hugheilar óskir um
gleðilega hátíð og farsæld á komandi ári.
Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
Stjórn SDS
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu
Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Fjölbrautaskóli Vesturlands og
Menntaskóli Borgararðar eru aðilar að Fjarmenntaskólanum
Sjóvá Akranesi, sími 440-2360
Sjóvá Borgarnesi, sími 440-2390
Óskum Vestlendingum og
landsmönnum öllum gleðilegra
jóla og farsældar á nýju ári.
Þökkum ánægjulegt samstarf
á árinu sem er að líða.
Golfsamband Íslands hefur val-
ið kylfinga ársins 2017. Þeir eru
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (GR)
og Axel Bóasson (GK). Í tilkynn-
ingu frá Golfsambandinu segir:
„Ólafía Þórunn náði frábær-
um árangri á sínu fyrsta tímabili á
LPGA mótaröðinni sem er sterk-
asta atvinnumótaröð heims. GR-
ingurinn endaði í 74. sæti á stiga-
listanum með árangri sínum og er
hún í forgangi á öll mótin á LPGA
mótaröðinni á næsta tímabili. Axel
Bóasson átti sitt besta tímabil frá
upphafi á árinu 2017. Keilismað-
urinn fagnaði sínum öðrum Ís-
landsmeistaratitli með eftirminni-
legum hætti á heimavelli á Hval-
eyrarvelli. Axel sigraði á tveim-
ur mótum á Nordic Tour atvinnu-
mótaröðinni og er hann fyrsti ís-
lenski kylfingurinn sem sigrar á
þeirri mótaröð.“
mm
Kylfingar ársins
Slysavarnafélagið Landsbjörg hef-
ur tekið í notkun endurbættan
einkennisfatnað fyrir björgunar-
sveitafólk. Uppfyllir hann kröfur
um aukinn sýnileika. Gallinn er
komin í sölu á skrifstofu félagsins
í Skógarhlíð í Reykjavík. Tekið er
fram í orðsendingu að jakkar með
kvennmannssniði eru ekki væntan-
legir fyrr en í janúar 2018. Verðið á
jakkanum er 33.000 kr. og buxun-
um sömuleiðis.
Á myndinni má sjá helstu breyt-
ingar frá fyrri hönnun.
mm
Endurbættur einkennisfatnaður
björgunarsveitafólks
Farfuglaheim-
ilið í Borgarnesi
er fyrsti Svans-
merkis leyfishaf-
inn á Vesturlandi
í flokki gisting-
ar og fyrsta Far-
fuglaheimi l ið
utan Reykjavíkur til að uppfylla vott-
unarkröfur norræna umhverfismerk-
isins Svansins. „Farfuglaheimilið í
Borgarnesi hefur að undanförnu ári
undirgengist viðamiklar endurbæt-
ur og hefur nú uppfyllt strangar um-
hverfiskröfur Svansins. Settir hafa
verið upp ferlar og innleiddar ýms-
ar aðgerðir til að lágmarka umhverf-
isáhrif vegna rekstursins. Áhersla er
lögð á að minnka orkunotkun, efna-
notkun og úrgang. Svanurinn er
opinbert umhverfismerki Norður-
landanna sem hefur frá stofnun náð
að skapa sér sterka markaðsstöðu og
er í dag leiðandi umhverfismerki í
heiminum,“ segir í tilkynningu.
Farfuglar ses, sem eiga og reka
Farfuglaheimilið í Borgarnesi, leggja
áherslu á umhverfisvernd og sjálf-
bærni í allri starfsemi sinni. „Sam-
tökin eru sannarlega í fararbroddi og
er nú handhafi helmings Svansleyf-
anna sem hafa verið útgefin í flokki
gistingar á Íslandi. Farfuglaheimilið í
Laugardal reið á vaðið árið 2004 og
er fyrsti Svansleyfishafinn á Íslandi
í flokki hótel- og veitingarekstrar.
Farfuglaheimilið á Vesturgötu fékk
sína Svansvottun árið 2010 og Loft
í Bankastræti árið 2013. Með fjórða
leyfinu hafa því öll Farfuglaheimilin
í eigu samtakana hlotið umhverfis-
vottun Svansins. mm
Farfuglaheimilið í Borgarnesi hlýtur Svansvottun
Reykjavík hefur verið valin Ævin-
týraáfangastaður Evrópu fyrir árið
2018 af fagtímaritinu Luxury Tra-
vel Guide (LTG). Þetta er ann-
að árið í röð sem þetta virta tímarit
verðlaunar Reykjavík sem áfanga-
stað en borgin var valin Vetrará-
fangastaður Evrópu á þessu ári.
Dómnefnd LTG er skipuð fagfólki
á ýmsum sviðum ferðaþjónustunnar
og í umsögn kemur fram að Reykja-
vík sé menningarborg, í stórbrotnu
landslagi með norðurljósadýrð og
fjölbreytta afþreyingu. Fjölskyldu-
ferð til Reykjavíkur sé uppskrift að
spennandi ævintýrum og einstökum
minningum sem enginn eigi að láta
fram hjá sér fara.
Í umsögn dómnefndar fyrir árið
2018 kemur fram að viðurkenning-
in sé einungis veitt til þeirra sem eru
framúrskarandi á sínu sviði út frá ít-
arlegum kröfum fagfólks. Með því sé
tryggt að einungis þeir áfangastaðir
eða fyrirtæki fái viðurkenningu sem
beri af. Reykjavíkurborg megi vera
afar stolt yfir að hafa náð þeim ár-
angri að vera valin Ævintýraáfang-
astaður Evrópu árið 2018.
Í viðurkenningunni fyrir árið
2018 felst m.a. forsíðugrein í tíma-
riti LTG um Reykjavík og ferða-
þjónustu á hér á landi. Tímarit-
inu verður dreift til yfir 500 þúsund
áskrifenda, á tíu þúsund lúxushót-
el, á setustofur flugvalla, skemmti-
ferðaskip og ferðaskrifstofur um all-
an heim.
mm
Reykjavík útnefnd sem Ævintýrastaður Evrópu