Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 108
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017108
Það er mikil einsemd í myndinni af
fæðingu Frelsarans. Þau eru tvö ein
yfir jötunni, þau María og Jósef, þeg-
ar fjármennirnir vitjuðu þeirra utan
úr óbyggðinni. Þar hafði einsemd
þeirra verið rofin, þegar nóttin varð
björt og fjöldi himneskra herskara
stóð yfir þeim, til þess að senda þá á
fund Frelsarans og þeir fundu ung-
barn reifað og liggjandi í jötu.
Allur er boðskapurinn um Jesúm
Krist þverstæðukenndur. Hið háa,
volduga og einstæða, hið kunnug-
lega, hversdagslega og margreynda,
hið viðtekna mætir hinu einstæða;
því sem hvorki fyrr nje síðar hefur
orðið og það verður umbreyting alls
hjá þeim, sem snortnir eru af þessu,
hinu einstæða.
Þess vegna varð aftöku- og píslar-
tæki Rómverjanna, krossinn, að tákni
vonar og sigurs á sjálfum dauðan-
um, því Kristur, hinn krossfesti, lif-
ir. Hann er upp risinn frá dauðum.
Maðurinn á krossinum er sá hinn
sami og þeir fundu í jötunni í Betle-
hem þarna á jólanóttina.
Jesús sagði við sína kynslóð:
„Heyrandi heyra þeir ekki og sjáandi
sjá þeir ekki.“ Hann hafði gjört ótrú-
legustu kraftaverk í augsýn allra, en
enginn gaf gaum að merkingu þeirra.
Þeir ljetu sjer nægja árangurinn. Þeir
átu og urðu mettir og vildu meira
af sama. Enginn sá táknið og svo er
enn. Trúin á Frelsarann Jesúm Krist,
er meira en hagnýtu ráðin, sem hann
gaf vinum sínum, eins og þetta, að
koma fram við aðra menn eins og
menn vildu, að aðrir kæmi fram við
þá sjálfa. Trúin á Jesúm snýst miklu
fremur um það, hver hann sje, barnið
í jötunni og maðurinn á krossinum,
þessi Kristur, sem ritningarnar full-
yrða að sje sonur lifanda Guðs; Orð-
ið sem varð hold og bjó með oss full-
ur náðar og sannleika.
Trú er margslunginn veruleiki.
Hún tekur stundum við þar sem
þekking endar. Hún tekur þá við,
þar sem rökum hins viðtekna og
margreynda sleppir. Mörgum er
hún viðbótin, sem gefur lífi og til-
veru merkingu og samhengi. Páll
postuli lýsir þverstæðum kristinnar
trúar þegar hann segir, að „vjer pre-
dikum Krist krossfestan, Gyðingum
hneyksli og heiðingjum heimsku.“
Aðkoma fólks að trúnni er líka
mismunandi. Í háspeki miðalda
sögðu sumir: „Credo ut intelli-
gam,“ eg trúi til þess að skilja, á
meðan aðrir sögðu: „Intelligam ut
credo,“ ég skil til þess að trúa. Lík-
lega er síðarnefnda leiðin mörg-
um geðfelldari í samtíðinni. Þetta
er leið raunvísindanna, tilraunanna
og rannsóknanna. Þetta var leið
Guðfræðinnar í textarannsóknun-
um, leið „nýju Guðfræðinnar,“ sem
svo hefur verið nefnd og skilað hef-
ur henni inn á vegu fjelagsvísinda,
feminisma og pólitísks rjetttrúnað-
ar í samtíðinni. Margir leiða það hjá
sjer, að trú getur verið viljaákvörðun
manns. Hann getur valið að trúa, til
þess að skilja. Vissulega er þetta um
leið leið trúarbaráttu, þar sem skyn-
semin og efinn krefja trúmanninn
sífellt svara. Þetta er leið síra Hall-
gríms, sem gefur það ráð, að;
„Bæn þína aldrei byggðu fast á
brjóstvit náttúru þinnar.
Í Guðs orði skal hún grundvallast það
gefur styrk trúarinnar.“
Brjóstvit náttúrunnar er gott svo
langt sem það nær, en það staldr-
ar við mörk sín og þau liggja innan
hinztu marka mannlegrar veru. Þau
þrýtur við gröfina og þær hinztu
sannanir sem fást með rannsókn-
um raunvísinda. Þau vísindi færa
sífellt út kvíarnar og nema verald-
ir í víðernum alheimsins og í undri
efnis og orku inn á við. Þau leiða í
ljós grunsemdir um að handan alls
þess, sem sjeð verður og rannsak-
að um óminnisdjúp efnislegrar ver-
aldar hljóti að vera einhver sú vera,
er allt hafi byrjað. Sagt er, að þeg-
ar Einstein var tjáð, að afstæðis-
kenning hans þækti nú sönnuð, hafi
hann haft á orði, að nú varðaði hann
mest um það, sem hafi verið í huga
Guðs, þegar hann byrjaði sköpun-
arverkið.
Trúmaðurinn gerir ráð fyrir Guði
í leit sinni að þekkingu. Aðferð hans
er sú sama og hinna, sem gera ekki
ráð fyrir hinum mikla leyndardómi,
sem Guðstrúarmaðurinn sjer að
baki alls sem er.
Þann leyndardóm sjáum vjer á
krossinum og vjer vitjum hans í jöt-
unni í Betlehem og það er hver einn
með sjálfum sjer í þeirri leit, þótt
flestir eigi margfalda fjölskyldu að
sjer þar sem heilög kirkja er, fjöl-
skylda kynslóðanna utan um fjöl-
skyldur og kynslóðir. Hjer og nú,
tveimur þúsöldum síðar, er kirkja
Krists gruflandi, trúlítil, ráðvillt og
á flæmingi undan öllu og öllum,
ekki sízt sjálfum oss. Hvar er hún
stödd, trúin hjá oss? Er hún ekki
á sínum stað í huga og hjarta eins
og falin glóð, sem blossar upp með
birtu og yl þegar Heilagur Andi
vekur hana með oss þar sem og þeg-
ar Guði þóknast og hún verður oss
styrkur til þess að sigra myrkrin. Sá
gustur megnar enn að gjöra mörg-
um það skiljanlegt að; „svo elsk-
aði Guð heiminn að hann gaf Son
sinn eingetinn til þess að hver sem
á hann trúir glatist ekki heldur hafi
eilíft líf.“ Fagna þeirri gjöf um þessi
jól og ætíð. Gleðileg jól.
Séra Geir Waage, sóknarprestur í
Reykholti.
Grundarfjörður –
miðvikudagur 20. desember
Útskriftarhátíð Fjölbrautaskóla
Snæfellingar verður haldin í
hátíðarsal skólans í Grundarfirði.
Hátíðin hefst kl. 15:00 og að
henni lokinni verða kaffiveiting-
ar í boði skólans. Allir velunn-
arar skólans eru velkomnir.
Grundarfjörður –
fimmtudagur 21. desember
Kristinn Bragi Garðarsson verð-
ur með jólatónleika á Kaffi Emil
kl. 17:00. Hann stundar nám
við tónlistarháskólann Berklee
Collage of Music og ætlar bjóða
getum upp á stutta jólastund
þar sem hann syngur og
spilar nokkur lög. Frítt er inn en
möguleiki er á að styrkja hann
til frekara náms í skólanum ef
fólk vill.
Borgarbyggð –
fimmtudagur 21. desember
Opið hús í tilefni 70 ára afmælis
Snorra á Augastöðum. Fjöl-
skylda hans ætlar að bjóða öll-
um sem vilja heiðra hann með
nærveru sinni að Hraunfossum
á afmælisdaginn. Húsið opnar
kl. 18:00 og verður opið fram
að miðnætti. Léttar veitingar
í boði. Snorri vill benda á að
hann þarfnast ekki gjafa, nær-
vera vina er meira en nóg til að
gleðja hann. Allir velkomnir.
Borgarbyggð –
fimmtudagur 21. desember
Jólagleði Borgarfjarðar kóra.
Freyjukórinn, Karlakórinn Söng-
ræður og Reykholtskórinn
syngja inn jólin í Reykholtskirkju
kl. 20:30. Aðgangseyrir er 1.500
kr. og frítt fyrir 12 ára og yngri.
Akranes –
fimmtudagur 21. desember
Jónína Björg Magnúsdóttir
verður með tónleika í Dularfullu
Búðinni kl. 21:00. Boðið verður
upp á guðaveigar í tilefni jóla
og ókeypis inn.
Grundarfjörður –
föstudagur 22. desember
Jól með Jóhönnu Guðrúnu í
Grundarfjarðarkirkju kl. 20:00.
Jóhanna og Davíð ætla að
skapa notalega jólastemningu
og flytja sín uppáhalds jólalög
í glænýjum útsendingum fyrir
gítar og söng.
Akranes – fimmtudagur 22.
desember
Korsiletturnar á samt hljómsveit
koma þér og þínum í ljómandi
jólaskap í Dularfullu Búðinni kl.
21:00. Aðgangseyrir er 2.000 kr.
Akranes –
laugardagur 23. desember
Aðventustemning í Akranesvita.
Það verður sannkölluð aðvent-
ustemning í Akranesvita alla
laugardaga kl. 14:00. Næstkom-
andi laugardag Koma fram þau
Rakel Pálsdóttir söngkona og
Birgir Þórisson. Allir velkomnir
og aðgangur ókeypis.
Akranes –
laugardagur 23. desember
Vertinn í Dularfullu Búðinni og
Gufupönkari Íslands mun halda
uppi stemningunni á Þorláks-
messukvöldi kl. 21:00.
Akranes –
laugardagur 23. desember
Jóla Ingó mætir um kvöldið, kl.
22, ásamt góðum vin. Frítt inn.
Akranes –
laugardagur 23. desember
Símon Vestarr Rokkar inn jólin
á Vitakaffi kl. 23:55. Kvöldið
verður helgað rokktónlist og
eru rokkarar hvattir til að mæta
og syngja hástöfum með trúba-
dornum Símoni Vestarr. Hann
verður á sviðinu í köflóttu skyrt-
unni og rifnu gallabuxunum.
Akranes –
þriðjudagur 26. desember
Stuðlabandið verður með
jólaball á Gamla kaupfélaginu
kl. 23:59.
Borgarbyggð –
fimmtudagur 28. desember
Árlegir jólatónleikar Borgar-
fjarðardætra í Reykholtskirkju kl.
20:30. Á dagskrá verða jólalög
úr hinum ýmsu áttum, ein-
söngslög, dúettar og samsöngs-
lög. Aðgangseyrir er ókeypis
en tekið verður við frjálsum
framlögum í söfnunarbauk í
anddyrinu.
Ólafsvík –
mánudagur 1. janúar
Áramótaball í Klifi kl. 1:00 eftir
miðnætti. Aldurstakmark er 18
ára og frítt inn.
Á döfinni
Fagna komu Krists
Reykholt. Ljósm. Guðlaugur Óskarsson.
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmar 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness