Skessuhorn - 20.12.2017, Síða 24
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201724
Samvera
er besta
jólagjöfin
Fjölskyldan
saman um jólin
,,Ætli veiðinni sé ekki best lýst með
því að segja að hún hafi verið upp og
ofan. Hafís og brælur voru að gera
okkur lífið leitt á tímabili en ef vind-
áttin var rétt og hafísinn hopaði þá
var stundum feiknaleg veiði,“ segir
Eiríkur Jónsson, skipstjóri á Stur-
laugi H. Böðvarssyni AK í sam-
tali við HB Granda vefinn. Togar-
inn kom til hafnar í Reykjavík í byrj-
un síðustu viku eftir ágæta veiði-
ferð á Vestfjarðamið og þar með
fór áhöfnin í jólafrí. Ráðgert er að
skipið fari í síðustu veiðiferð ársins
á öðrum degi jóla. Í byrjun næsta árs
flyst áhöfnin svo yfir á hinn nýja ís-
fisktogara Akurey AK.
,,Við byrjuðum veiðiferðina á að
dóla okkur austur á Strandagrunn
í brælu en þar var róleg veiði. Við
fórum því á Þverálshornið og Hal-
ann en þar var þá erfitt að athafna
sig vegna hafíss. Þannig var ástandið
reyndar í öllum kantinum og það var
ekki fyrr en við komum vestur und-
ir Víkurál að við fundum lítið svæði
til að athafna okkur á. Þar var mjög
góð þorskveiði en eftir því sem skip-
unum fjölgaði þá minnkaði veiðin,“
segir Eiríkur en hann brá þá á það
ráð að fara aftur norður eftir.
,,Við vorum komnir aftur norð-
ur síðdegis á laugardag og þá gerði
norðaustan golu. Við það tók haf-
ísinn að hörfa. Þá komumst við í
Djúpkrókinn og þá um kvöldið og
aðfararnótt sunnudagsins var mjög
góð þorskveiði. Þetta var greinilega
göngufiskur, sem við höfum verið
að bíða eftir í vetur, því það vottaði
fyrir hrognum og svilum, og þótt
það lóðaði ekki á loðnutorfur þá var
þessi fiskur vel haldinn af loðnuáti,“
segir Eiríkur en þegar hér var komið
sögu var góðum þorskskammti náð
og því ekki um annað að ræða en að
halda til hafnar. ,,Við tókum reynd-
ar eitt karfakast á Jökultungunni í
birtunni á heimleiðinni og það var
ágætt,“ segir Eiríkur.
mm
Feiknaveiði á Vestfjarðamiðum
þegar hafísinn hopar
Sturlaugur H. Böðvarsson AK. Eiríkur Jónsson skipstjóri.
Fjárhagsáætlun A- og B-hluta
Grundarfjarðarbæjar fyrir árið
2018, ásamt þriggja ára áætlun, var
samþykkt á fundi bæjarstjórnar 14.
desember síðastliðinn. Á næsta ári
eru heildartekjur sveitarfélagsins
áætlaðar 1.034,4 m.kr. Laun eru
áætluð 535,7 m.kr., önnur rekstr-
argjöld 347,1 m.kr. og afskrift-
ir 52,8 m.kr. Rekstrarniðurstaða
er því jákvæð um 98,8 m.kr., fyrir
fjármagnsliði. Fjármagnsgjöld eru
áætluð 70,3 m.kr., þannig að þegar
tekið hefur verið tillit til þeirra er
rekstrarniðurstaða samstæðunnar í
heild jákvæð um 28,4 m.kr.
Í sjóðsstreymisyfirliti áætlun-
arinnar kemur fram að veltufé frá
rekstri er 118,0 m.kr. Þessi fjárhæð
nýtist til afborgana lána og nauð-
synlegra fjárfestinga sem brýnt er
talið að ráðast í á árinu 2018. Sveit-
arstjórn ráðgerir að fjárfestingar
nettó verði 116,9 m.kr., afborganir
lána 106,9 m.kr. og að tekin verða
ný lán að fjárhæð 60 m.kr. Gengið
er á handbært fé um 45,7 m.kr. sem
í upphafi árs er ráðgert að sé 64,8
m.kr. Handbært fé í árslok 2018
er því áætlað 19,1 m.kr. gangi fjár-
hagáætlun næsta árs eftir.
Í tilkynningu segir: „Eins og fram
hefur komið er ráðgert að verja
16,9 m.kr. í framkvæmdir. Helst er
þar að nefna lagfæringar á húsnæði
leikskólans, áframhaldandi lagfær-
ing á húsnæði grunnskólans, bætt
íþróttaaðstaða, leikdót á útisvæði,
gatnagerð og gangstéttir, göngu-
stígur um Paimpolgarð frá Hrann-
arstíg að Borgarbraut við skólann,
nauðsynlegar lagfæringar í sam-
komuhúsi, áframhaldandi vinna að
nýju aðalskipulagi fyrir sveitarfé-
lagið, sem ráðgert er að verði lok-
ið á komandi vori, verklok á þak-
viðgerðum íbúða eldri borgara að
Hrannarstíg 18 og lagfæringar inn-
andyra, lagfæring bæjargirðinga,
tjaldstæðis og annarra eigna sveitar-
félagsins. Auk þessa verður keypt-
ur búnaður fyrir skóla, áhaldahús
og slökkvistöð. Að lokum þá er
gert ráð fyrir að hafist verði handa
við byggingu viðbyggingar við svo-
kallaðan Norðurgarð hafnarinnar.
Vonast er til að fjárframlag fáist til
þess að hefja framkvæmdir á kom-
andi ári. Auk fleiri atriða sem ekki
eru talin upp hér.“
Meginmarkmið áætlunarinnar
er að sinna vel allri grunnstarfsemi
sveitarfélagsins og vinna að nauð-
synlegu viðhaldi og framkvæmdum.
Jafnframt er brýnt að lækka skuld-
ir enn frekar en orðið er. „Áfram
verður unnið að hagræðingu hinna
mismunandi rekstrarþátta sveitar-
félagsins og þar verður sérstaklega
kallað eftir liðsinni forstöðumanna
og starfsfólks bæjarins. Ljóst er að
bestur árangur næst í þeim efn-
um ef allir starfsmenn vinna sam-
an að því að reka samfélagið sitt
á sem hagkvæmastan hátt. Takist
að láta alla þætti ganga fram eins
og áætlað er fyrir í fjárhagsáætlun
Grundarfjarðarbæjar árið 2018 og
einnig áranna 2019-2021 þá geta
Grundfirðingar litið björtum aug-
um til framtíðarinnar. Að lokum er
öllu starfsfólki sem komið hefur að
þessari vinnu þakkað fyrir vel unnin
störf,“ segir í tilkynningu frá Þor-
steini Steinssyni bæjarstjóra.
mm
Gert ráð fyrir rekstrarafgangi í fjár-
hagsáætlun Grundarfjarðarbæjar
Aðfangadagskvöld
Hallgrímskirkja í Saurbæ
Hátíðarguðsþjónusta kl. 23
Prestur: Sr. Eðvarð Ingólfsson
Jóladagur
Leirárkirkja
Hátíðarguðsþjónusta kl. 13:30
Prestur: Sr. Þráinn Haraldsson
Innra-Hólmskirkja
Hátíðarguðsþjónusta kl. 15
Prestur: Sr. Þráinn Haraldsson
Gamlársdagur
Guðsþjónusta kl. 13:30
Prestur: Sr. Eðvarð Ingólfsson
Saurbæjarprestakall
Zsuzsanna Budai, organisti og kórstjóri, leikur á orgelið
í öllum athöfnum um jól og áramót.
Kirkjukór Saurbæjarprestakalls syngur.
Prestar Akraneskirkju þjóna Saurbæjarprestakalli
í veikindaleyfi sóknarprests.
GLEÐILEGA JÓLAHÁTÍÐ!
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7