Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2017, Page 38

Skessuhorn - 20.12.2017, Page 38
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201738 Fréttaannáll ársins 2017 í máli og myndum „Það sætir tíðindum“ Skagastúlka fyrsti Vestlendingurinn Það var ekki fyrr en að kvöldi 2. janúar, laust eftir klukkan 18, sem fyrsta barnið kom í heminn á Heilbrigðisstofnun Vest- urlands á Akranesi. Var það myndarstúlka, vó 3.508 grömm og var 51 sentímetri að lengd. Þessi fyrsti Vestlendingur árs- ins reyndist vera Skagastúlka, en foreldrar hennar eru María Sigríður Kjartansdóttir og Gunnar Þóroddsson á Akranesi. Stúlkan er þeirra fjórða barn. Hóf leigubílaakstur í Borgarnesi Í ársbyrjun hóf Jón Kr. Kristjánsson leigubílaakstur í Borgar- nesi undir merkinu Taxi Borgarnes. Áður en Jón tók til starfa snemma í janúar hafði ekki verið gerður út leigubíll í Borgar- nesi svo árum skiptir. Heimtu fé um hávetur Um miðjan janúar sást til kinda á Þverdal í Dölum. Settu bændur á Vatni, Stóra-Vatnshorni og Fellsenda umsvifalaust í smalagírinn þegar veður var gott og heimtu tíu skjátur af fjalli. Þrjár af ánum tíu reyndust útigengnar frá fyrra ári. Dalabænd- ur nýttu sér tæknina og fóru á eftir fénu á fjórhjólum, enda snjór á dalnum og erfitt að fara á göngu. Gekk ágætlega að smala fénu og fékk að minnsta kosti ein kind far á einu hjól- anna, eftir að hafa orðið viðskila við hópinn. Fiskþurrkun á Akranesi sett á ís Fyrirhugaðar framkvæmdir HB Granda við fiskþurrkun sína á Akranesi, sem áður hét Laugafiskur, voru lagðar til hliðar í janúar. Þá hafði engin starfsemi verið í fiskþurrkuninni frá því vorið áður vegna erfiðra markaðsaðstæðna. HB Grandi hafði fyrirhugað uppbyggingu á nýju húsnæði fiskþurrkun- innar og stóðu miklar deilur um málið á Akranesi. Einkum var deilt um lyktarmengun frá þurrkuninni og hvort slík starf- semi ætti heima nærri íbúabyggð. En þar sem fallið hefur ver- ið frá framkvæmdum við fiskþurrkun er því málinu lokið, að minnsta kosti í bili. Eigendaskipti á Loftorku í Borgarnesi Á áramótum tóku nýir eigendur við hinu fornfræga iðnfyr- irtæki Loftorku í Borgarnesi. Feðgarnir Óli Jón Gunnars- son og Bergþór Ólason seldu fyrirtækið nýju dótturfyrirtæki Steypustöðvarinnar í Reykjavík. Nýr framkvæmdastjóri Loft- orku er Andrés Konráðsson, en hann er einmitt sonur Kon- ráðs Andréssonar sem stofnaði fyrirtækið á sínum tíma. Rétt- um tíu árum áður hafði Andrés gegnt sömu stöðu og því býsna hagvanur. Stofnuðu drónahóp Allar Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á sunnanverðu Vesturlandi, svæði 4, tóku sig saman og stofn- uðu drónahóp. Starfar hópurinn saman að æfingum og skipu- lagi, en hver sveit festi kaup á dróna og vinna sveitirnar sam- an að þjálfun björgunarsveitarmanna við leit með dróna og björgun. Í byrjun febrúar hittist drónahópur björgunarsveit- anna á æfingu við virkjunarstífluna úr Skorradalsvatni. Menn skiptust þar á upplýsingum og miðluðu þekkingu sinni auk þess sem allir prófuðu að fljúga tækjunum. Ernir, mávar og hrafnar fylgdust með í háloftunum. Skagamenn skiptu um bæjarstjóra Regína Ásvaldsdóttir var snemma í febrúar ráð- in sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Lét hún af starfi bæjarstjóra á Akra- nesi og hófu bæjaryfirvöld leit að eftirmanni hennar. Um mánuði síðar var heima- maðurinn Sævar Freyr Þrá- insson ráðinn bæjarstjóri á Akranesi, en hann hafði áður verið forstjóri 365 miðla frá árinu 2014. Bleyta þorra í Borgarnesi Það er um það bil árviss viðburður að þeir sem skella sér í heita pottinn í sundlauginni í Borgarnesi bleyti þorra, það er að segja haldi sitt eigið þorrablót í heitapottinum. Blót- ið er haldið í „Vizkubrunninum“ sem er pottur númer eitt í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. Er þessi hefð pottverja orð- in meira en aldarfjórðungsgömul, en fyrst var bleytt í þorra í „Litla pottinum“ við innisundlaugina. Á þorrablautinu var boðið upp á þorramat hvers konar og á dagskrá voru drápur, kviðlingar, minni karla og kvenna, málshættir og gamanmál. Jóhanna Fjóla skipaður forstjóri HVE Hinn 1. febrúar var Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir hjúkr- unarfræðingur settur for- stjóri Heilbrigðisstofnun- ar Vesturlands. Tók hún við starfinu af Guðjóni Brjáns- syni, sem tók sæti á þingi fyr- ir Samfylkinguna. Jóhanna Fjóla hefur starfað við stofn- unina óslitið frá árinu 1981, við hjúkrun og stjórnunar- störf. Skallagrímskonur komust í bikarúrslitin Vestlendingar fengu ná- grannaslag í undanúrslit- um Maltbikars kvenna í körfuknattleik síðasta vet- ur þegar Snæfell og Skalla- grímur mættust í Laugar- dalshöllinni. Borgnesingar og Hólmarar fjölmenntu á leikinn og stemningin í hús- inu var mögnuð. Leikurinn var æsispennandi og úrslitin réðust ekki fyrr en á síðsutu sekúndum leiksins, þegar Sigrún Sjöfn Ámundadóttir setti niður þriggja stiga skot og tryggði Skallagrími sig- ur. Þremur dögum seinna léku Skallagrímskonur til úrslita gegn Keflavík en urðu að játa sig sigraðar eftir spenn- andi úrslitaleik. Sjómannaverkfallið á enda Þriðju helgi í febrúar greiddu sjómenn atkvæði um nýjan kjarasamning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Var samn- Ágæti lesandi, mig langar að draga upp myndir fyrir þig. Drátthagur er ég ekki en get þó dregið til stafs, með aðstoð lyklaborðs og því teiknað með orðum: Blaðamaður setur blek í penna og fyllir blaðfákinn af eldsneyti áður en hann ekur áleiðis út á Snæfellsnes og hittir þar fólk sem er að stofna fyrirtæki, stendur fyrir viðburði, hefur reynt ýmislegt um ævina eða hefur einfaldlega skemmtilega sögu að segja. Næstu viku á eftir fer hann sambærilega ferð í Dali eða Reyk- hólasveit, um Borgarfjörð eða Borgarnes, Hvalfjörð eða Akranes. Hvaðanæva að leggur undurfagran ilm frá nýbökuðum fréttum og ferskum viðmælendum. Blaðamaðurinn veit ekki lengra en fréttanef hans nær og fylgir því þess vegna í einu og öllu. Það er hans baggi og blessun. Ýmislegt tókst blaðamönnum Skessuhorns að þefa uppi á árinu, gleðifréttir og slæmar fréttir, léttar og þungar. Margt var okkur bent á og mörgu tókum við eftir. Hér á eftir verður stiklað á stóru í atburðum ársins 2017 í máli og myndum. Kæri lesandi, þakkir fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða. Takk fyrir að lesa fréttir. Ást og friður, Kristján Gauti Karlsson. Framhald á næstu opnu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.