Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2017, Page 46

Skessuhorn - 20.12.2017, Page 46
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201746 Haldið upp á fertugsafmæli FVA Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi varð fertugur á liðnu hausti og haldið var upp á afmæli skólans með hátíðardag- skrá laugardaginn 16. september. Þar voru flutt ávörp og sett- ar upp ljósmynda- og myndbandasýningar frá starfi skólans í gegnum tíðina. Nemendur í fjölmiðlaáfanga gáfu út veg- legt afmælisrit í tilefni tímamótanna, hljómsveitin Tíbrá og fleiri tónlistarmenn og skemmtikraftar sem numu við skólann komu fram á hátíðinni. Forseti gripinn við fjárdrátt Þegar réttað var í Þverárrétt í Eyja- og Miklaholtshreppi á liðnu hausti sáu margir réttarmanna kunnuglegu andliti bregða fyrir. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, var þar staddur og dró rígvæna dilka í réttinni eins og hann hefði aldrei gert annað. Rýrt knattspyrnusumar Knattspyrnulið vestlensk riðu ekki feitum hesti frá keppnis- tímabilinu 2017. Skagamenn vermdu botnsæti Pepsi deild- ar karla bróðurpart sumars og féllu niður í 1. deild. Víking- ur Ólafsvík háði harða fallbaráttu til lokaleiks þar sem þeir mættu einmitt ÍA á Akranesvelli. Þurftu þeir að sigra til að halda sér uppi og treysta á hagstæð úrslit annarra leikja. Hvor- ugt lánaðist þeim því leiknum lauk með markalausu jafntefli og önnur úrslit urðu þeim í óhag. Þar með féll Víkingur og leikur ásamt ÍA í 1. deild á næsta ári. Kvennalið ÍA og Víkings Ó. léku bæði í næstefstu deild á liðnu sumri. Víkingskonur áttu erfitt uppdráttar í allt sumar og féllu að lokum úr deildinni og leika því í 2. deild á komandi tímabili. Skagakonur luku aftur á móti keppni um miðja deild og eru vafalítið stórhuga fyrir komandi tímabil. Knattspyrnufélag Kára á Akranesi hóf bikar á loft að loknu sumri, en þeir lönduðu efsta sæti 3. deildar karla og leika þar með í 2. deild næsta sumar. Tvennar tvíburasystur á fæðingadeildinni Tvær tvíburamæður lágu sængurleguna á kvennadeild Heil- brigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi í lok septembermán- aðar. Að sögn ljósmæðra á Akranesi mun þetta vera í fyrsta sinn svo vitað sé að tvenn tvíburasystkini dvelji á deildinni á sama tíma. Oftast fæðast ekki nema ein tvíburasystkini á deild- inni á ári hverju og því afar ólíklegt að rekast þar á tvenn tví- burasystkini sama daginn. Foreldrar barnananna eru annars vegar Bryndís Ottesen og Jón Einar Hjaltested og hins vegar Linda Sif Frímannsdóttir og Jón Már Brynjólfsson, öll búsett á Akranesi. Þeim Bryndísi og Jóni Einari fæddust tvær stúlk- ur, Emilía og Freyja, að morgni þriðjudagsins 19. september. Þær komu í heiminn á Landspítalanum en rúmlega sólarhring síðar færði fjölskyldan sig til sængurlegu á kvennadeildina á Akranesi. Fimmtudaginn 21. september fæddust Lindu og Jóni Má einnig tvær stúlkur, Natalía og Ísabella. Þær komu í heiminn á Akranesi og fjölskyldan lá sömuleiðis sængurleg- una á kvennadeildinni. Reistu íbúðarhús úr krosslímdum viði Fyrsta íbúðarhúsið úr krosslímdum viði, svo vitað sé, var reist á Akranesi nú í haust. Um er að ræða parhús á tveimur hæð- um við götuna Seljuskóga þar sem hvor íbúðin um sig er um 200 fermetrar að stærð. Það eru þeir Bjarni Ingi Björnsson og Jón Þór Jónsson sem byggja húsið fyrir sig og fjölskyldur sín- ar. Einingarnar eru fluttar til landsins af fyrirtækinu Strúktúr ehf. Talsvert er byggt af íbúðarhúsnæði á Akranesi á þessu ári. Við samantekt Skessuhorns í haust voru þá á annað hundrað íbúðir í smíðum eða/og á teikniborðinu. Matarauður Vesturlands Verkefninu Matarauð- ur Vesturlands var ýtt úr vör í landshlutanum á liðnu hausti af Samtökum sveitar- félaga á Vesturlandi. Mark- mið þess er að efla mat- vælaframleiðslu, fullvinnslu hráefnis í héraði, sölu beint frá býli, hráefnistnotkun úr heimahéraði á veitingastöð- um og matartengda upplifun á Vesturlandi. Skessuhorn gaf út sérblaðið Matarauð- ur Vesturlands í samstarfi við SSV og verkefnisstjórn í til- efni af verkefninu. Skin og skúrir við Hraunfossa Veitingastaður var opnaður við Hraunfossa á liðnu sumri af fjölskyldufyrirtækinu Hraunfossar-Barnafoss ehf. Að því standa Snorri Jóhannesson og Jóhanna Björnsdóttir á Auga- stöðum, dóttir þeirra Kristrún og maður hennar Arnar Ey- fjörð Arnarsson. Veitingaskálinn við Hraunfossa er 160 fer- metrar að stærð með 200 fermetra sólpalli. Framtakið er vel heppnað að mati flestra þeirra sem þangað hafa komið, en þeir eru margir því Hraunfossar eru ein fjölsóttasta náttúru- perla Borgarfjarðar. Það vita líka þeir sem hófu í októbermán- uði meinta ólöglega innheimtu bílastæðagjalds við Hraun- fossa. Að henni stóðu eigendur jarðarhlutans Hraunsáss II, sem eru þrír þekktir fjárfestar sem víða hafa komið við í við- skiptalífinu: Lárus Blöndal hrl. og forseti ÍSÍ, Guðmundur A. Birgisson, oft kenndur við Núpa í Ölfusi og Aðalsteinn Karlsson. Keyptu þeir Hraunsás II fyrir nokkrum árum, en hluti jarðarinnar liggur yfir stóran hluta núverandi bílastæð- is við Hraunfossa. Gjaldtaka á bílastæðinu er alfarið í óþökk annarra landeigenda og rekstraraðila veitingaskálans, sem og stjórnvalda. Stóð hún yfir í fjóra daga, frá föstudegi til mánu- dags, þar til lögregla stöðvaði gjaldtökuna enda var þá farið að hleypa farþegum úr hópferðabílum út á þjóðveginn með til- heyrandi stórhættu. Kosið aftur til Alþingis Annað árið í röð gengu Íslendingar til Alþingiskosninga. Kos- ið var 28. október síðastliðinn, eða fimm vikum eftir að rík- isstjórn Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar sprakk. Tildrög stjórnarslitanna voru þau að tveir ráðherrar þeirrar ríkisstjórnar, Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra, höfðu leynt sam- ráðherra sína og samstarfsflokka því að faðir forsætisráðherra, Benedikt Sveinsson, hefði skrifað meðmælabréf vegna um- sóknar dæmds kynferðisafbrotamans um uppreist æru. Sætti Björt framtíð sig ekki við það og ákvað að slíta samstarfinu. Að kosningum loknum tóku stjórnmálaleiðtogar sér tíma til að mynda meirihluta en að lokum varð mynduð ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna undir forystu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Selkópar fóstraðir í Búðardal Fyrr í vetur fengu tveir selkópar úr Fjölskyldu- og húsdýra- garðinum í Reykjavík nýtt heimili þegar þeir voru fluttir í fóst- ur í Búðardal. Þar hafði Svavar Garðarsson útbúið litla afgirta tjörn við höfnina þar sem selirnir hafa síðan verið fóstraðir, en Svavar átti jafnframt hugmyndina að fóstri selanna. Kóparnir una sér vel í Búðardal, éta vel af fóðri og hafa það gott í tjörn- inni. Vonir standa til þess að með tíð og tíma fáist leyfi til að sleppa kópunum og að í framhaldinu verði byggð upp þekking og aðstaða í Búðardal til aðlögunar og síðan sleppingar sela sem hafa af einhverjum ástæðum verið sviptir frelsinu. Fréttaannáll ársins 2017 í máli og myndum Framhald á næstu opnu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.