Skessuhorn - 20.12.2017, Qupperneq 51
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017 51
ÓSKUM STARFSMÖNNUM OG LANDSMÖNNUM ÖLLUM
GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI
Runólfur Hallfreðsson ehf.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Kannanir hafa sýnt að eldvarnir eru
ófullnægjandi á mörgum heimilum
og íbúarnir því berskjaldaðir fyr-
ir eldsvoðum. Hættan er mest þeg-
ar líður að jólum, þegar skreyting-
um fjölgar. Svo um sjálfar hátíðirn-
ar þarf að passa upp á enn fleira, svo
sem raforkunotkun, ástand reyk-
skynjara, logandi kerti og margt
fleira.
Í ljósi þess að nú gengur í garð
sá árstími þar sem hætta er á elds-
voðum af völdum kertaljósa og jóla-
skreytinga hefur Bjarni K. Þor-
steinsson slökkviliðsstjóri í Borg-
arbyggð tekið saman lista með at-
riðum sem nauðsynlegt er að hafa
í huga um hátíðirnar. Bjarni tekur
fram að hann mælir fyrir hönd allra
slökkviliða í landshlutanum, sömu
heilræða, eiga allsstaðar við. Ábend-
ingar Bjarna fylgja hér á eftir.
Lágmarkseldvarnir á heim-
ilum eru:
Virkir reykskynjarar, tveir eða •
fleiri.
Léttvatns- eða duftslökkvitæki •
við helstu flóttaleið.
Eldvarnateppi á sýnilegum stað •
í eldhúsi.
Gætum varúðar um jól og
áramót
Reykskynjarar eru sjálfsögð og •
ódýr líftrygging, skipta skal um
reykskynjara á tíu ára fresti. Og
rafhlöður í byrjun desember ár
hvert eða oftar ef þörf er á.
Átt þú handslökkvi-•
tæki? Er það í lagi?
Hvenær var það síð-
ast yfirfarið?.
Slökkvitæki á að •
vera á sýnilegum
stað, ekki í felum
inni í skáp!
Ofhlöðum ekki fjöl-•
tengi og gætum að
gömlum og lélegum
rafbúnaði.
Notum ávallt við-•
urkenndar rafvörur
og fjöltengi með
slökkvara og gaum-
ljósi.
Eldvarnateppi skal •
vera í hverju eldhúsi
og á aðgengilegum
og sýnilegum stað.
Gerum flóttaáætlun •
úr íbúðinni vegna
eldsvoða með öll-
um á heimilinu og
æfum hana reglu-
lega. Tvær greiðar
flóttaleiðir úr hverri
íbúð!
Gætum varúðar í •
umgengni við kerta-
ljós og skreyting-
ar, skiljum börn aldrei eftir eft-
irlitslaus nærri logandi kertum
eða eldi.
Aðgætum íbúðir okkar áður •
en gengið er til hvílu, eða þær
eru yfirgefnar að degi til, hvort
nokkursstaðar logi á kerti eða
skreytingum.
Logandi kertaljós séu aldrei •
höfð í gluggum vegna dragsúgs
og lausra gardína.
Dreifið sem mest raforkunotk-•
un við matseld um jól og ára-
mót. Það kemur í veg fyrir
hugsanleg óþægindi vegna mik-
ils álags á dreifikerfi rafmagns.
Ullar- eða leðurvettlingar á •
höndum og öryggisgleraugu á
öll nef við meðferð flugelda um
áramót.
Munum 112 Neyðarlínuna ef •
slys, veikindi eða eldsvoða ber
að höndum. mm
Gagnleg ráð og ábendingar vegna
eldvarna og slysahættu um hátíðarnar