Skessuhorn - 20.12.2017, Qupperneq 69
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017 69
Hvert styður annað
Nú er sonur þeirra hjóna sestur að í
Stóra Ási. Hann býr í gamla húsinu
með konu sinni og barni, í sama húsi
og Lára og Kolbeinn hófu sinn bú-
skap. Hann er menntaður smiður og
búfræðingur og hefur mikinn áhuga
á því að skapa sér atvinnu heima.
„Sonurinn hefur verið að fjölga roll-
unum,“ segir Kolbeinn, „og eig-
um við núna samtals um 200 kind-
ur og svo erum við með holdanaut.
Hann er líka að smíða með mér, því
það lifir enginn af sauðfjárbúskap í
dag. Svo fóru hann og eiginkonan
af stað með hestaleigu í sumar sem
tengdadóttirin sér aðallega um. Það
var gert til að styðja við þá starfsemi
sem er hérna og við sjáum alveg fyr-
ir okkur meiri tengingar við bæinn
meðal annars í sölu afurða beint
frá býli. Hér erum við að framleiða
bæði lamba- og nautakjöt sem nýtt
er í veitingarekstrinum. Þar reynum
við einnig að bjóða upp á mat sem
byggir að mestu á hráefni úr héraði.
Geitaosta frá Háafelli og grænmetið
úr gróðurhúsunum hér í kring því af
nógu er að taka. Hvert og eitt skref
er þar af leiðandi hugsað sem hluti
af stærri heild.“ Hjónin eru sammála
um að það sé dásamlegt að unga
fólkið hafi sest þarna að. Það gefi líf-
inu líka gildi.
Frístundirnar
Þessi vinnusömu hjón segjast
reyna að hafa vit á því að stunda
einhver áhugamál og fara aðeins í
frí. Meira að segja hafi þau tvo síð-
ustu vetur skroppið til útlanda og
búin að leggja drög að ferð í vetur.
Þau segja brosandi að það sé hitinn
sem verið sé að sækja í. „Við reyn-
um að gefa okkur tíma fyrir útreið-
ar og höfum svona óreglulega far-
ið í lengri hestaferðir,“ segir Lára,
„en undanfarin ár höfum við frekar
bara hengt tjaldvagninn aftan í bíl-
inn og brunað af stað. Það er hins
vegar alltaf dáldið ónæði af síman-
um“ segir hún brosandi. „Það er
kosturinn við að fara í frí erlendis
að það skiptir engu þótt að hringt
sé. Þú bjargar engu frá útlöndum.“
Lára segist einnig fara svolítið í
gönguferðir og sig dreymi um að
fara með karlinum í lengri ferðir,
sem þó hafi ekki orðið af ennþá.
„Það er þetta með tímann, hann
hefur ekki fundist enn,“ og Lára
hlær. Það er ekki örgrannt um að
söng-gen sé í fjölskyldunni því
hjónin bæði og tvö barnanna syngja
í kórum. Feðgarnir eru í karlakórn-
um Söngbræðrum en Lára er bæði
í Reykholtskórnum og í Freyju-
kórnum þar sem dóttirin syngur
einnig með. Þau eru sammála því
að þetta sé gríðarlega gefandi starf
og gott að mæta á söngæfingar að
afloknum löngum vinnudegi. „Það
er nú svo að maður ætlar stund-
um ekki að hafa sig af stað, það fer
auðvitað tími í þetta,“segir Kol-
beinn, „en alltaf er ég jafn glað-
ur þegar heim er komið því það er
hvoru tveggja gaman, að syngja og
hitta félagana.“
Ásamt þessu hefur Kolbeinn að
undanförnu varið löngum stund-
um í félagsmál hestamannafélag-
anna sem formaður Faxa og þá
ekki síst að sameiningu hesta-
mannafélaganna Faxa í Borgarfirði
og Skugga í Borgarnesi en stefnt er
að formlegri sameiningu fljótlega á
nýju ári. Hann telur sameininguna
verða til mikilla bóta því út úr því
myndi koma eitt öflugt félag, sem
gæti orðið eitt öflugasta félagið
í dreifbýli. „Á þennan hátt gæt-
um við jafnvel einnig ráðið mann
í hlutastarf því það er orðið erfitt
að manna alla þá miklu sjálfboða-
vinnu sem þarf til að halda svona
félagsskap virkum. Tími fólks er
bara minni í þessháttar vinnu en
var og þetta myndi létta verulega
undir.“
Alltaf verið að spá
Þau vilja lítið tjá sig um framtíðina,
hjónin í Stóra Ási þegar þau eru innt
eftir áframhaldandi uppbyggingu í
ferðaþjónustu. „Við erum alltaf að
spá eitthvað,“ segir Kolbeinn bros-
andi í véfréttastíl, „það hefur bara
alltaf verið stefnan að taka lítil skref
í einu og fara gætilega og hafa for-
sjálnina að leiðarljósi því við vilj-
um búa hér áfram.“ Lára bætir við
að það sé engin hætta á því að þau
verði atvinnulaus. Smiðurinn hafi
meira en nóga vinnu og svo hafi
meira segja verið í hruninu. „Við
skulum segja að þá hafi þetta far-
ið niður í að vera passlegt,“ seg-
ir Kolbeinn kankvís, „en í dag er
ég með svona 4-5 karla í vinnu og
meira á sumrin þegar skólakrakk-
arnir koma heim.“ Þau segjast vera
nokkuð sátt með það sem lífið hafi
fært þeim þau þrjátíu ár sem þau
hafa búið í Stóra Ási. „Við eigum
þrjú börn sem öll eru hér í grennd-
inni og þrjú barnabörn. Það er al-
veg yndislegt að hafa fólkið sitt hjá
sér og horfa á nýja kynslóð vaxa og
dafna,“ segja hjónin að endingu því
nú er mál að linni. Kolbeinn þarf
að fara á fund í hestamannafélag-
inu og Lára á söngæfingu. Það
er alltaf nóg að gera í sveitinni.
bgk
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár.
Við sendum okkar bestu óskir
um gleðilega jólahátíð og
þökkum árið sem er að líða.Farfuglaheimilið í Borgarnesi er nýuppgert og með fjölbreytt
úrval herbergjategunda.
Glæsileg eldunaraðstaða fyrir
gesti og góð sameiginleg rými.
Við erum stolt af áherslu okkar
á umhverfisvernd og sjálfbærni.
Farfuglaheimili eru frábær
kostur fyrir einstaklinga,
fjölskyldur og hópa
Þau eru öllum opin og bjóða
gestum sínum góða gistingu á
hagkvæmu verði.
Nánari upplýsingar
á www.hostel.is.
Merki með hvítum texta,
fyrir dökkan bakgrunn
->
GRÆNI LITUR SVANSINS
LETUR SVANSINS ER FUTURA STD
NÁNAR:
HTTP://WWW.SVANEN.NU/DEFAULT.ASPX?TAB
NAME=SWANLOGO&MENUITEMID=7081
WWW.SVANURINN.IS
C: 100
M: 0
Y: 80
K:0
R: 0
G: 135
B: 0
BLÁI LITUR SVANSINS
C: 80
M: 40
Y: 0
K:0
R: 36
G: 132
B: 198
Það er gaman í fjárhúsunum með afa, Ásdís Telma þriggja ára og Kolbeinn í
ilmandi heyinu.
Hjónunum finnst yndislegt að horfa á nýja kynslóð vaxa og dafna. Afi og amma,
Kolbeinn og Lára Kristín, með Emil Aron sem fæddist í júní.