Skessuhorn - 20.12.2017, Page 96
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201796
Kirkjukór Ólafsvíkur, ásamt Skóla-
kór Snæfellsbæjar, hélt jólatónleika
fimmtudaginn 12. desember síðast-
liðinn undir stjórn Veronicu Oster-
hammer og við undirleik Elelenu
Makeeva og Nönnu Aðalheiðar
Þórðardóttur. Skólakórinn hóf tón-
leikana á því að ganga syngjandi inn
og stilla sér upp fyrir framan Kirkju-
kórinn og sungu þau svo saman.
Kórarnir sungu falleg jólalög, sálma
bæði saman og sitt í hvoru lagi og
með einsöng. Jólatríóið þær Steiney
Kr. Ólafsdóttir og systurnar Gerður
og Aðalheiður Nanna Þórðardætur
sungu saman sálminn Hin fegursta
rósin er fundin. Mjög vel var mætt
á tónleikana og var Ólafsvíkurkirkja
nánst full. Heppnuðust tónleikarn-
ir vel og nutu bæði tónleikagestir
sem og kórarnir kvöldsins. Að tón-
leikum loknum var boðið upp á kaffi
djús, piparkökur og konfekt sem all-
ir gæddu sér á, áður en haldið var
heim. þa
Héldu sameiginlega jólatónleika
Starfsmannafélag Slökkviliðs
Grundarfjarðar stendur fyrir útgáfu
dagatals áttunda árið í röð. Ávallt
hefur ágóði af sölu dagatalsins runn-
ið í gott málefni og í ár stendur til
að safna fyrir hitamyndavél fyrir
slökkviliðið. Slökkviliðsmennirnir
eru misjafnlega mikið klæddir á síð-
um dagatalsins en þeir voru ekkert
að kveinka sér þó að þeir hafi þurft
að maka á sig smá olíu og sýna smá
hold í þágu göfugs málefnis. tfk
Dagatal Slökkviliðs
Grundarfjarðar komið út
Rúnar Þór Ragnarsson tekur sig vel út á síðu maímánaðar.
Síðastliðinn föstudag fór árlegur
Jólasveinatvímenningur Bridge-
félags Borgarfjarðar fram í Loga-
landi. Hefð er fyrir því að þá draga
spilarar sig saman í pör. Létt var
yfir mannskapnum og allir áttu gott
kvöld. Með sigur af hólmi fóru þau
Sigríður Arnardóttir og Logi Sig-
urðsson. Í öðru sæti urðu Ólafur
Sigvaldason og Þórir Indriðason
en í þriðja sæti Flemming Jessen og
Stefán Jónsson. mm
Jólasveinar briddsfélagsins
Börn í 6. bekk Grunnskóla Snæ-
fellsbæjar skelltu sér á skauta með
kennaranum sínum og skólastjór-
anum síðastliðinn föstudag. Farið
var á tjarnir sem eru við flugvöllinn
í Rifi. Krakkarnir skautuðu við frá-
bærar aðstæður á sléttu svelli í blíðu
en köldu veðri. Var þetta mikil upp-
lifun fyrir þau en mörg þeirra voru
að fara á skauta í fyrsta skipti. Tóku
þau með sér bálpönnu sem skólinn
festi kaup á í haust og nýta í ýmis
konar útivist og kennslu. Hituðu
þau sér vatn í kakó og fengu sér
loftkökur og piparkökur með. Það
voru ánægðir krakkar sem komu
heim úr þessari velheppnaðri ferð.
þa
Mörg á skautum
í fyrsta skipti
Leikskólinn Sólvellir hélt jóla-
ball í Samkomuhúsi Grundar-
fjarðar á dögunum. Þar voru mörg
spennt andlit enda rauðir sveinar
sem heiðruðu krakkana með nær-
veru sinni. Það voru þeir Stekkjas-
taur og Skyrgámur sem mættu með
pakka fyrir hvern og einn sem þeir
dreifðu til barnanna glaðbeittir eins
og þeim einum er lagið. Það voru
þónokkrir sem leist ekkert á gassa-
ganginn í þeim bræðrum en tóku
þó við gjöfum í öruggu fangi for-
eldra eða ömmu og afa.
tfk
Jólaball leikskólans Sólvalla