Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 106

Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 106
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017106 Fyrir rétt um ári tók Steinunn Ein- arsdóttir, ung kona úr Borgarfirði, ákvörðun um að hún væri komin með nóg af kuldanum og skamm- deginu á Íslandi. Á þessum tíma vann hún í fiskvinnslu í Vestmanna- eyjum og var nýbúin að fá útborg- að. Steinunn ákvað að nú skyldi hún finna ódýrt flug til útlanda og taka sér frí. Fór hún til Ísraels ásamt vin- konu sinni í þrjár vikur í desember fyrir ári og er óhætt að segja að þessi ferð hafi breytt miklu fyrir hana. Blaðamaður Skessuhorns hafði sam- band við Steinunni, sem nú er stödd í Ísrael á ný eftir að hafa ferðast mjög víða um heiminn síðasta árið. Hér er brot af ferðasögu hennar. Flutti á unglingsárum í Borgarfjörðinn Steinunn er fædd í Vestmannaeyj- um en flutti með foreldrum sínum að Sólbyrgi í Borgarfirði á unglings- árum og lauk grunnskólagöngu í Kleppjárnsreykjaskóla. Eftir ferða- lagið til Ísrael má segja að ekki hafi verið aftur snúið fyrir Steinunni. Hún var komin með heimsborgara- bakteríuna og langaði lítið að koma aftur heim til Íslands. „Eitt kvöld- ið þegar við vorum í Ísrael langaði okkur að kynnast skemmtanalífinu í Tel Aviv en vissum ekki hvernig við ættum að bera okkur að. Við heyrð- um af svokölluðu barrölti þar sem fylgdarmaður frá hosteli í borginni fer með ferðamenn saman í hóp að skoða skemmtanalífið og við ákváð- um að skrá okkur. Fylgdarmaður- inn útskýrði fyrir mér hvernig hann var að vinna á hostelinu gegn því að hann fengi að búa þar frítt,“ seg- ir Steinunn. „Um leið og ég kom heim til Íslands aftur fann ég hvern- ig skammdegið heima hefur slæm áhrif á mig og mig langaði að fara út aftur. Ég setti mig í samband við strákinn frá hostelinu og hann hjálp- aði mér að fá vinnu þar. Ég fór því fljótlega aftur út til Ísraels og var þar í einn mánuð að vinna á hostelinu í Tel Aviv.“ Var í Dubai í tvo mánuði Steinunn fór með vinum sínum, sem hún kynntist í Tel Aviv, í helgarferð til borgarinnar Eilat. „Þar fórum við að kafa í Rauðahafinu og synda með höfrungum, sem var alveg ólýsan- leg upplifun. Ég setti inn myndir af þessu á Instragram og stuttu seinna fékk ég skilaboð frá konu frá Hurg- hada í Egyptalandi þar sem hún spurði hvort ég hefði áhuga á að læra köfun, hún hafði nefnilega séð myndirnar mínar. Það varð þó ekk- ert úr því þarna því ég var að hefja ferli til að gefa egg. Ég fór frá Ísra- el til Dubai í febrúar en það er einn fallegasti staður sem ég hef kom- ið til og fólkið þar er virkilega in- dælt. Á þessum tíma var ég að hefja egggjafaferlið og þurfti því að fara reglulega til læknis, láta skoða leg- ið og taka blóðprufur en það var ekki mikið mál að gera það í Dubai. Eftir tvo mánuði þar var orðið lít- ið eftir af peningum svo ég ákvað að finna ódýra borg í Evrópu þar sem ég gæti unnið á hosteli með svipuðu fyrirkomulagi og í Tel Aviv og það- an sem ég gæti flogið í beinu flugi heim til Íslands. Ég fann vinnu á hosteli í Búdapest og var þar í þrjár vikur. Borgin kom mér skemmti- lega á óvart en þar kynntist ég frá- bæru fólki og náði að skoða mig vel um. Eitt af því merkilegasta sem ég upplifði þar var skemmtanalífið. Þar fór ég á svokallaða rúnabari sem allir eru staðsettir í gömlum byggingum og margir hverjir út frá jarðgöngum sem liggja neðanjarðar undir borg- inni, mjög töff,“ segir Steinunn. Fór til Kýpur að gefa egg „Eggheimtan var á vegum Global Egg Donors og fór fram á klíník á Kýpur. Ég fór þangað með systur minni í sumar. Við vorum í ellefu daga og eitt það eftirminnilegasta við þá ferð var hversu mikið var um ágenga pelicana. Þessir fuglar eru al- veg einstakir, þeir eru ekkert hrædd- ir við mannfólk og koma iðulega í leit að matarbita inn á veitingastaði og kaffihús, starfsmönnum ekki til svo mikillar gleði,“ segir Steinunn og hlær. „Þeir hoppuðu upp á borð- in og stálu mat. Í eitt skipti sáum við meira að segja starfsmann á kaffi- húsi slást við pelicana með matseð- il að vopni. Pelicaninn ætlaði inn en starfsmaðurinn ætlaði að halda hon- um úti. Þó starfsmaðurinn hafi ekki verið sérlega glaður þarna gátum við hlegið mikið.“ Eftir eggheimt- una fór Steinunn aftur til Íslands þar sem hún vann á hosteli í Borg- arnesi síðasta sumar. „Ég frétti af því nokkrum vikum eftir að ég kom heim að konan sem fékk eggið mitt á von á barni. Hún hafði fengið egg gefins ellefu sinnum án árangurs en nú á hún loksins von á litlum strák á næsta ári,“ segir Steinunn og bros- ir. „Þar sem þetta var opin egggjöf fæ ég að fylgjast með og vita hvern- ig gengur, þó ég geti ekki haft beint samband við konuna sjálf.“ Fór í kafaraskóla í Egyptalandi Þegar skammdegið fór að hellast yfir Íslendinga á ný í október fór Stein- unn strax að huga að næsta ferða- lagi. „Á þessum tíma var ég enn í sambandi við konuna sem sendi mér skilaboðin eftir að hafa séð myndina af mér við köfun í Rauðahafinu. Ég ákvað að slá til og fara til Hurghada að læra að kafa, en fyrst fór ég í smá frí til vinar míns í Þýskalandi. Þaðan ætlaði ég að fljúga til Hurghada en átti að millilenda í nokkrar klukku- stundir í Istanbúl. Mér fannst tilval- ið að lengja dvöl mína þar og breytti fluginu mínu svo ég gæti átt tvo daga til að skoða Istanbúl. Þar skoðaði ég mig vel um og kynntist stelpum frá Marokkó og eyddi degi með þeim,“ segir Steinunn. Þegar hún kom til Hurghada var klukkan þrjú að nóttu til og hún fór með leigubíl að íbúðinni sem hún hafði leigt. „Ég ætlaði ekki að trúa eigin augum þegar ég sá hverf- ið sem íbúðin er í. Þetta er algjört gettó hverfi, eiginlega verra en ég hefði mögulega getað ímyndað mér og á þessum tímapunkti var ég eig- inleg bara skíthrædd og trúði ekki að þarna ætti ég að búa. Fyrir framan íbúðina var ruslahaugur þar sem um 50 kettir bjuggu og þarna var varla hægt að tala um götulýsingu. Íbúð- in sjálf var þó alveg ágæt og kostaði líka ekki mikið, ekki nema um 50 evrur fyrir tvær og hálfa viku, það eru um 6000 íslenskar krónur,“ seg- ir Steinunn og bætir því við að verð- lag í Egyptalandi sé mjög lágt. „Ég mæli klárlega með Egyptalandi fyr- ir fólk sem vill ferðast og fá einstaka upplifun fyrir lítinn pening.“ Ferðaðist um Egypta- land og Jórdaníu Steinunn lærði að kafa í Rauðahaf- inu sem er alveg einstaklega fallegur köfunarstaður. „Að fá að læra köfun í Rauðahafinu er alveg einstakt, þar er svo fallegt og fjölbreytt dýralíf. Ég var þarna með mörgum köfur- um sem hafa kafað um allan heim og allir voru sammála um að Rauðahaf- ið væri alveg einstakt,“ segir Stein- unn. Eftir tvær og hálfa viku í köf- unarskólanum var Steinunn komin með réttindi til að kafa og tók þá við ferðalag um Egyptaland og Jórdan- íu. „Ég fór ásamt hópi fólks í ferð þar sem við skoðuðum m.a. Kaíró, pýramída og fleira á ferð okkar frá Egyptalandi yfir til Amman í Jórd- aníu, þar sem ferðin endaði. „Við fórum inn í pýramídana, en ég vissi ekki að það væri hægt. Þeir eru al- veg einstakir og ég mæli með því fyrir alla að fara og skoða þá,“ seg- ir Steinunn. Það getur verið flókið að ferðast í þessum heimshluta og komst Stein- unn einmitt að því þegar hún fór frá Amman í Jórdaníu yfir til Tel Aviv í Ísrael. „Mér fannst einmitt svo gott við ferðina sem ég fór í um Egypta- land og Jórdaníu að hún átti að enda í Amman, sem er stutt frá landa- mærum Ísraels. Ég sá fyrir mér að þá gæti ég komist nokkuð fljótt og þægilega á milli staða, svo var ekki. Ég fór með leigubíl frá Amman að landamærum og þar byrjaði vesen- ið, það tók mig fjórar klukkustundir að komast yfir landamærin. Ég lenti í vegabréfaeftirliti í þriðja skiptið og í öll skiptin hefur það tekið þrjár og hálfa klukkustund. Þegar ég var komin í gegn þurfti ég að koma mér með rútu til Tel Aviv en gat ekki far- ið beina leið. Ég þurfti að byrja á að koma mér til Jerúsalem, en vissi ekki að það væri hægt að fara með rútu þangað frá landamærunum, svo ég fór krókaleið. Ég byrjaði á að taka rútu til palestínsku borgarinnar Jer- icho. Þaðan gat ég ekki farið beint til Jerúsalem því það er Palestínumenn mega ekki keyra þangað því hún er á ísraelskum landshluta. Ég fór því næst með rútu til Betlehem, þaðan svo loks til Jerúsalem og að lokum til Tel Aviv. Þetta var því mjög lang- ur dagur,“ segir Steinunn. Steinunn Einarsdóttir heimshornaflakkari tekin tali Í Philae Temple í Egyptalandi. Við Philae temple á eyju í ánni Níl. Hér er Steinunn að kafa í Blue Hole við Dahab í Egyptalandi. Hér er Steinunn að skoða Sphinxinn í Giza.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.