Heimsmynd - 01.03.1986, Qupperneq 6
FRÁ RITSTIÓRA
MSMVND
HEIMSMYND mars 1986,1. tbl. 1. árg.
ÚTGEFANDI
Ófeigur hf. Aöalstræti 4,101 Reykjavík.
SÍMI
62 20 20 og 62 20 21.
AUGLÝSINGASÍMI
1 73 66.
RITSTJÓRI
Herdís Þorgeirsdóttir.
STJÓRNARFORMAÐUR
Kristinn Björnsson.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Þórunn Þórisdóttir
FULLTRÚI RITSTJÓRA
Sverrir Albertsson.
BLAÐAMAÐUR
Helga Guðrún Jónasdóttir.
SKRIFSTOFUSTJÓRI
Thelma Hansen.
AUGLÝSINGASTJÓRI
Lilja Hrönn Hauksdóttir.
ÚTLIT
Jón Óskar Hafsteinsson.
LJÓSMYNDARAR
María Guðmundsdóttir,
Þorvarður Árnason,
Árni Sæberg o. fl.
ÚTLIT TÍSKU
Brynja Nordquist
UMBROT
HEIMSMYND
SETNING, LITGREINING, PRENTUN
Oddi hf.
ÚTGÁFUSTJÓRN
Herdís Þorgeirsdóttir,
Kristinn Björnsson,
Sigurður Gísli Pálmason,
Jóhann Páll Valdimarsson,
Helgi Skúli Kjartansson,
Ólafur Þ. Harðarson.
HEIMSMYND kemur út annan hvern mánuð og þrisvar
fyrri hlutaárs 1986.
ÁSKRIFTARVERÐ fyrir tímabilið er kr. 595.
Verð þessa eintaks í lausasölu er kr. 239.
l.ANDSQCH AS AF tt
3 8 5 91
iSI ÁNflS
TVENNT vekur lotningu mína, stjörnuhvelfingin
umhverfis okkur og siðalögmálið í brjósti okkar,
sagði þýski heimspekingurinn Immanuel Kant.
Stjórnmálafrœðingurinn Isaiah Berlin segir að
hverjum augum maður líti mannlegt atferli yfirleitt
móti skoðanir manns, bæði á sjálfum sér og öðrum,
sem og lífsviðhorf manns eða — heimsmynd!
Þannig birtist tilgangur þessa tímarits í nafni þess,
HEIMSMYND. Yfirgripsmikið nafn, sem gefur
okkur svigrúm til að láta ekkert okkur óviðkomandi.
Hvort um er að ræða mynd úr mannlífinu, mynd úr
heimi stjórnmála, lista, tísku eða vísinda, mynd úr
hugarheimi einstaklinga, mynd af umheiminum,
alheiminum eða úr heimi íslensks þjóðlífs. Allt eru
þetta viðfangsefni sem HEIMSMYND í anda
Immanuels Kants ber næga lotningu fyrir til að kanna.
Það hafa margir komið við sögu íþessufyrsta
tölublaði HEIMSMYNDAR. Þekktir
greinarhöfundar á ýmsum sviðum þjóðlífsins fjalla
um athyglisverð mál á sviði alþjóðamála, vísinda og
lista. En það erufleiri sem koma við sögu við vinnslu
eins tímarits sem þessa, Ijósmyndarar og
útlitshönnuðir að ógleymdu öðru starfsfólki blaðsins,
sem hefur lagtstóran skerf af mörkum íþeirri trú að
viðfangsefnið sé verðugt. Alltþettafólk hefur mikla
reynslu á sviði fjölmiðlunar eða tímaritaútgáfu. Og öll
gera þau sér grein fyrirþví að íþeirri hörðu
samkeppni, sem íslenskur fjölmiðlaheimur er, þýðir
ekkert annað en að vinna að því að gefa út vandað
tímarit, trúverðugt og athyglisvert.
Þettafyrsta tölublaðspannar nokkuð breittsvið eins
og vera ber, forsíðuviðtal HEIMSMYNDAR er við
Óskarsverðlaunahafann Meryl Streep, eina dáðustu
kvikmyndastjörnu nútímans, sem íslenskir
kvikmyndahúsagestir sjá í hlutverki dönsku
skáldkonunnar Karen Blixen nú um páskana, fjallað
er um kynþáttavandamál í Evrópu og hinnfræga
þýska rannsóknarblaðamann Giinter Wallraff, viðtal
er við íslenska rannsóknarblaðamanninn Halldór
Halldórsson, rætt um afleiðingar
Hafskipsumræðunnar íþjóðlífinu, hinn ógnvænlega
kjarnorkuvetur, vortískuna og bókmenntir svo
nokkur dœmi séu nefnd.
Ennþá eru þó ótalin öll þau viðfangsefni sem
HEIMSMYND hyggst takafyrir í náinni framtíð...