Heimsmynd - 01.03.1986, Blaðsíða 41

Heimsmynd - 01.03.1986, Blaðsíða 41
„En þó eining ríki meðal meirihlutaflokkanna í Kópa- vogi virðist ekki vera hægt að segja sömu sögu af Akur- eyri. Þar segja heimildar- menn okkar að mikil þreyta sé komin í samstarfið, og munar að sögn manna mikið um fráfall Sigurðar Óla Brynj- ólfssonar, fyrsta manns á lista Framsóknarflokksins, sem lést ári eftir að hann átti manna mest þátt í að mynd þann meirihluta sem verið hefur við völd síðan." og lætur tengdasyni sínum Hannesi Ein- arssyni það eftir, en Hannes var áður í þriðja sæti listans. Guðfinnur Sigurvins- son verður áfram í öðru sæti á lista Al- þýðuflokksins. Þá er enn einu sinni orðrómur uppi um sérframboð Gylfa Guðmundssonar, en ekki er víst að það komi fram. Slíkt framboð myndi, samkvæmt hugmyndum Gylfa, verða þverpólitískt. En það verða semsagt miklar svipting- ar í stjórnmálum í Keflavík og segja þeir sem til þekkja að Sjálfstæðisflokkurinn muni sennilega tapa sínum fjórða manni og Alþýðuflokkurinn bæta við sig sínum þriðja og jafnframt haldi Framsóknar- flokkurinn áfram að tapa eins og hann hefur gert síðustu ár. í grannbænum Njarðvíkum verða einnig sviptingar. Þar ætlar til dæmis Áki Granz hætta, svo og Halldór Guðmunds- son sem hættir vegna veikinda. í efstu sætunum gætu orðið þeir Sveinn Eiríks- son, eða Patton öðru nafni, og Ingólfur Bárðarson. Framsóknarmaðurinn Ólafur Hannesson hættir einnig og hjá Alþýðu- bandalaginu er nýtt andlit í efsta sæti, Sólveig Þórðardóttir, deildarstjóri fæð- ingadeildar Sjúkrahússins, og gæti hún bætt fylgi Alþýðubandalagsins eitthvað. En samkvæmt heimildum okkar stend- ur hinn hreini meirihluti Sjálfstæðis- flokksins höllum fæti, og gæti því dregið til tíðinda í Njarðvíkum í vor. Á Húsavík verða mannabreytingar verulegar. Hallmar Freyr hjá Alþýðu- bandalaginu fer ekki fram aftur né held- ur Hörður Þórhallsson, efsti maður Sjálf- stæðisflokksins og tekur Katrín Eymundsdóttir væntanlega efsta sætið. Hjá Framsóknarmönnum fara þeir fram aftur Tryggvi Finnsson og Sigurður Kr. Sigurðsson, en Aðalsteinn Jónasson, sem skipaði þriðja sætið síðast er látinn. Heimildarmaður okkar á Húsavík tel- ur að ef miklar breytingar verða gerðar á lista Alþýðubandalags miðað við síðustu Árni Sigfússon er kannski dæniigerður fyrir borg- arstjórnarfulltrúa fram- tíðarinnar. Hann eyddi hundruðum þúsunda í kosningabaráttu sína og náði öruggu sæti. I viðtali við dagblöð vildi hann ekki viðurkenna að hann væri frjálshyggjumaður, en á hann var litið sem fulltrúa yngri frjálshyggjuafla flokksins. kosningar gæti sá listi unnið aftur bæjar- fulltrúann sem Alþýðubandalagið tapaði síðast til Alþýðuflokks með 8 atkvæðum. Núverandi meirihluti á Húsavík er skipaður Framsóknarmönnum, Alþýðu- flokksmönnum og Sjálfstæðismönnum, en ef Alþýðubandalagið bætir við sig manni gæti það þýtt meirihlutasamstarf þess og Framsóknarflokks, og spillir ekki fyrir þeim möguleika að þeir Kristján og Tryggvi vinna saman við útgerð Kol- beinseyjar, annar sem framkvæmdastjóri en hinn sem útgerðarstjóri. í Vestmannaeyjum hafa Sjálfstæðis- menn nú 6 af 9 bæjarfulltrúum, en reiknað er með að þeir missi alla vsga einn þeirra í vor. Þrír fulltrúar flokksins í bæjarstjórn hætta í vor, þau Sigurgeir Ólafsson, sem hættir vegna sjúkleika, Sigurbjörg Axelsdóttir og Þórður Rafn Sigurðsson, sem var fyrsti varamaður f bæjarstjórn. Samkvæmt heimildum HEIMS- MYNDAR er nokkur óánægja með störf meirihlutans í Vestmannaeyjum og þykir til dæmis hitaveita staðarins dýr, en þar kostar tonnið af heitu vatni 59 krónur, en nýlega samþykkti bæjarstjórn að nið- urgreiða vatnið um 3 krónur tonnið, og þótti ýmsum þessi aðgerð lykta dálítið af kosningabaráttunni. Eins og áður segir þykir næsta líklegt að sjötti maður á lista Sjálfstæðisflokks verði að láta sér lynda að vera varamaður í bæjarstjórn og sagði einn viðmælenda okkar í Vestmannaeyjum að Sjálfstæðis- flokkurinn þyrfti að halda vel á spöð- unum til að halda fimmta manninum inni. Þótt Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyj- um virðist á einhverju undanhaldi er ekki sömu sögu að segja af flokksbræðrum þeirra á ísafirði. Eftir góða þátttöku, að mati þeirra, í prófkjöri flokksins stefna þeir á hreinan meirihluta í bæjarstjórn kaupstaðarins næsta kjörtímabil. Meirihlutinn nú er myndaður af Al- þýðuflokki, Alþýðubandalagi, Fram- sóknarflokki og Óháðum borgurum. Mikili flótti virðist hafa gripið um sig í röðum óháðra borgara því fjórir efstu frambjóðendur í síðustu kosningum eru farnir, ýmist úr bænum eða til annarra flokka. Þá flutti fulltrúi Alþýðubandalagsins, Hallur Páll Jónsson, til Reykjavíkur fyrir ári síðan og starfar nú hjá Kaupþingi hf, en við sæti hans tekur Þuríður Péturs- dóttir. Guðmundur Sveinsson hjá Framsókn- arflokknum hættir og er talið líklegt að Einar Hreinsson, útgerðartæknir og framkvæmdastjóri Smábátaeigendafél- agsins Hugins taki við sæti hans, en Framsóknarmenn viðhafa ekki prófkjör að þessu sinni. Hér hefur aðeins verið minnst á nokk- ur sveitarfélög en mörgum sleppt. Það er þó greinilegt miðað við þær upplýsingar sem við öfluðum okkur víðs vegar um landið að það má búast við nokkrum sveiflum í kosningunum í vor. Hvort spár heimildarmanna okkar ræt- ast eða ekki skiptir kannski ekki megin- máli, enda enn langt í kjördaginn og kosningavélarnar rétt að fara af stað. Það er hins vegar greinilegt á viðbúnaði flokkanna að þeir leggja mikla áherslu á að halda sínum fulltrúum inni í sveitar- stjórnunum og eru þingmenn og ráðherr- ar þegar farnir að leggja í leiðangra til að styðja sveitarstjórnarmenn í kjördæmum sínum og bjóða aðalskrifstofur flokkanna í Reykjavík upp á aðra aðstoð í kosninga- baráttunni. Hver endanleg úrslit verða skal ósagt látið en það verða greinilega miklar sviptingar víða; miklar mannabreytingar og ýmsir miklir skörungar sem hverfa af sjónarsviðinu. Hver áhrif verða af þeim breytingum geta aðeins úrslitin gefið til kynna-og efnahagsástandið í landinu síð- ustu daga og vikur fyrir kosningar getur einnig haft mikil áhrif. HEIMSMYND 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.