Heimsmynd - 01.03.1986, Blaðsíða 82
HÓPSÁLLR?
Þungarokkarinn
Eiríkur Hauks-
son, segir að
gömul gildi eigi
aftur vinsældum
að fagna.
„Hjónaband og
fjölskyldulíf eru
aftur að komast
í tísku.“
(Ljósm.: Arni
Sæberg).
Þótt Eiríkur Hauksson tónlistarmaður,
sem jafnframt starfar sem kennari, til-
heyri þeim hópi sem hér hefur verið
nefndur þungarokkarar er hann þó ef til
vill enn meiri staðfesting á því að „við
lifum í heimi efnishyggjunar“, en margur
myndi halda. Eiríkur sem er í útliti og
klæðaburði hinn táknræni þungarokkari,
í snjáðum gallabuxum og gallabuxna-
jakka, sem ermarnar hafa verið klipptar
af, með griflur á höndum og mikið, sítt
hár, starfar sem kennari, er nýgifur, hef-
ur nýverið keypt íbúð og á eina dóttur
barna. Hann endurspeglar því þessa
þversögn, sem kennd hefur verið við '86-
kynslóðina.
Að hans mati hefur almennt viðhorf
ungs fólks mjög breyst. ,,'86-kynslóðin er
mikil efnishyggjukynslóð“, segir þunga-
rokkarinn Eiríkur. „Hjónabandið er til
dæmis mikið að komast í tísku aftur. 18
til 20 ára aldurshópurinn endurspeglar
þessa breytingu best held ég. ‘86-kyn-
slóðin er orðin materíalískari. Fólk um
þrítugt tekur lífsbaráttuna ekki eins al-
varlega og yngra fólkið, sem veigrar sér
ekki við að skrá sig í byggingarfélög."
Eiríkur Hauksson telur sig hafa orðið
fyrir áhrifum af aukinni efnishyggju og
nefnir sem dæmi íbúðarkaup sín. Hann
er tuttugu og fimm ára gamall og segir að
sú ákvörðun sé nokkuð sem hann hefði
aldrei látið sig dreyma um fyrir tveimur
árum eða svo. „Ég fann allt í einu ofsa-
lega þörf hjá mér til að kaupa húsnæði og
steypa mér í skuldir. Þessi húsnæðiskaup
eru spurning um orsök og afleiðingu. Það
verður til dæmis alltaf erfiðara og erfið-
ara að leigja, sem gæti á hinn bóginn
stafað af kreppuástandi. Annars leikur
enginn vafi á því að mikill þrýstingur er
frá samfélaginu um að maður sé maður
með mönnum, eigi fjölskyldu, hús og bíl.
Það er alltaf verið að tala um að ekki sé
lifandi í þessu þjóðfélagi nema maður
fylgi þessu mynstri. Ég veit ekki hvort
þetta eru einhver kreppuáhrif." Einu
kreppuáhrifin sem hann segist raunveru-
lega kannast við eru frá barnsæsku. „Þá
fékk ég föt sem eldri systkini mín voru
vaxin upp úr og mér líkaði það aldrei illa.
Það er kannski þess vegna sem ég er
svona latur við að kaupa mér glingur eða
legg lítið upp úr dýrum eða vönduðum
fatnaði.“
Eiríkur segir að unga kynslóðin nú sé
ekki einsleitur hópur. Þessi kynslóð er
hópaskipt. Það er til dæmis skírskotað til
mín sem þungarokkara og slíkt hugtak
væri varla notað, ef það vísaði ekki til
ákveðins hóps, sem sker sig úr heildinni.
Skiptingin fer ekki svo mikið eftir aldri
og innan „míns“ hóps eru mismunandi
hópar. Ég hefði til dæmis orðið fyrir-
myndar hippi. Bróðir minn var skipti-
nemi í Bandaríkjunum um tíma og kom
heim með hár niður á bak. Mér fannst
það æði.
Þungarokk eða framsækið rokk er hins
vegar ekki í anda gamla hippatímabilsins
en lífstíllinn sem er því samfara og
kannski pönkinu er ekki ósvipaður. Að
mörgu leyti er hér um sömu hópsálirnar
að ræða. Fólk myndar stóra hópa í anda
einhverrar ákveðinnar stefnu, til dæmis
tónlistarstefnu og bakkar hvert annað
upp. Hann segist sjálfur vera hópsál.
„Mér hefur alltaf fundist einstaklings-
hyggjan blómstra of mikið á íslandi. Ég
er þess vegna svolítið hvekktur á því að
’86-kynslóðin skyldi missa af hippatíma-
bilinu, sem er að mínu mati eini tíminn
þar sem fólk losnaði svolítið undan þess-
ari einstaklingshyggju." En þrátt fyrir
það segist hann finna að hann sleppi ekki
undan þessu fremur en aðrir jafnaldrar
sínir.
4
i
Á FRAMABRAUT
Ólafur Árnason,
fulltrúi þess
hóps ungu kyn-
slóðarinnar nú
sem margir telja
til ungs fólks á
framabraut. „Sá
hópur er tví-
mælalaust sá
fjölmennasti
innan þessarar
kynslóðar.“
(Ljósm.: Árni
Sæberg).
Ólafur Arnarson er 23 ára viðskipta-
fræðinemi í sambúð, var fulltrúi Vöku í
Lánasjóði íslenskra námsmanna og telur
sig til þess hóps ungu kynslóðarinnar,
sem er ungt fólk á framabraut. Hann
segir um ungu kynslóðina nú að tilhneig-
ing sé til hópaskiptingar en þó telji hann
tvo hópa mest áberandi, annars vegar
“fólk sem geri sér grein fyrir að lífsbarátt-
an sé hörð, að þetta sé harður heimur. *
Þessi hópur sem hefur verið nefndur ungt
fólk á framabraut eða uppar, er tvímæla-
laust langstærsti hópur þessarar kynslóð-
ar.“ Hann aftekur þó með öllu að efnis-
hyggjan sé alls ráðandi eða að þetta unga
fólki hafi ekki áhuga á andlegum efnum.
„Ég held að við séum mun síður for-
dómafull en þessi svokallaða ‘68-kynslóð
og það sem einkennir okkur helst er við- ^
leitnin að breyta ekki öðrum. Við erum
það mikið einstaklingshyggjufólk að við
viljum leyfa náunganum að fara sínu
fram í því sem hann vill.“ t
Ólafur Arnarson talar um sína kynslóð
sem kreppukynslóð. Af nokkru stolti tal-
82 HEIMSMYND