Heimsmynd - 01.03.1986, Blaðsíða 68
m
Lagt af stað úr Reykjavík til bjargar manni úr jökulsprungu í Kverkfjöllum.
öfgar. Verslunarstjóri Skátabúðarinnar
varð eitt sinn var við að lítil sala var á
siglínum sem hann hafði pantað. Þegar
hann komst að ástæðunni blöskraði hon-
um; línurnar voru af röngum lit.
KARLMENNSKAN UPPMÁLUÐ
Meðlimir björgunarsveita virðast sækj-
ast mikið eftir því að vera karlmannlegir.
Ekki er með þessu átt við að menn vilji
ganga sérstaklega beinir í baki, heldur er
það eins og víða annars staðar þar sem
hópar ævintýramanna koma saman-að
þar gerast hlutirnir. Ef sportið er ekki til
þá er bara að búa það til. Eitt dæmi um
slíkt. Menn leigja þyrlu undir sig og sitt,
sem skilar þeim upp á Eiríksjökul eða á
annan ákjósanlegan stað. Með stutt
gönguskíði á bakinu er stigið út úr þyrl-
unni og síðan þeytast menn niður.
Fjallgöngur og erfiðar æfingar sem oft
standa sólarhringum saman einkenna að
miklu leyti starfsemi hjálparsveitanna.
Þá eru ótaldar þrekæfingar, betl um aura
fyrir nýjum tækjum og mikil önnur starfs-
semi.
Það er ekki meðalmaðurinn sem tekur
þátt í maraþonsfjallahlaupi eins og
nokkrir harðjaxlar út skátunum stund-
uðu á sínum tíma. Köfun í ísköldum sjón-
um hér við land, bjargsig, fjallamennska,
fallhlífarstökk, svifdrekaflug og leitir við
erfiðar aðstæður gera það að verkum að
þeir menn sem veljast í björgunar-
sveitirnar verða að vera öðrum meiri
hvað varðar atgervi og hreysti.
HERSTJ ÓRAR
Þeir menn sem hafa náð langt í met-
orðastiganum hjá hinum ýmsu björgun-
arsveitum hafa svipað vald og herstjórar
erlendis. Þeir hafa ákveðinn mannskap
undir höndum til að vinna ákveðin verk.
Pað er oft erfið ákvörðun að senda menn
til þess að vinna tvísýn verkefni og vita
ekki hvort þeir koma til baka, sagði einn
af þeim mönnum sem er við stjórnvölinn
í herbúðum skátanna.
Nauðsynlegt er fyrir yfirmanninn að
gerþekkja þá menn sem vinna undir hans
stjórn hverju sinni, svo mögulegt sé að
tefla fram því sem þörf er á til að árangur
náist.
ATVTNNUBJÖRGUNARMENN
Draumurinn hjá mörgum þeirra, sem
manna sveitir þær er leita rjúpnaskytta
og illa búinna fjallagarpa, er að stofnuð
verði atvinnubjörgunarsveit þar sem þeir
geti varið öllum sínum tíma við æfingar
og áætlunargerð. Af þessu verður þó
ekki meðan þessi kynslóð sem nú stendur
í þessu er á ferli á fjöllum uppi, því eina
framlagið sem ríkið veitir í raun til þess-
arar starfsemi eru laun Snorra Magnús-
sonar, mannsins sem sér um sporhund-
ana fyrir Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði.
Hjálparsveitirnar sjálfar sjá um af-
ganginn.
Á meðan þessir úrvalsmenn vilja lifa
og hrærast í björgunarstörfum og því sem
þeim fylgja, og eiga afkomu sína undir
happadrættum og flugeldasölu, er ekki
viðbúið að við eignumst okkar útgáfu af
glaða græna risanum sem þeir Kefla-
víkurmenn státa af.
68 HEIMSMYND